jún
29
Nýtt Sirkus komið út
29. júní 2007 | Rita ummæli
Nýtt Sirkus er komið út. Í blaðinu í dag má meðal annars finna viðtal við Alexander Peterson, einn kynþokkafyllsta mann Íslands sem og Rósu Björk og Reyni, sem eru ástfangnasta par Íslands. Þóra Sigurðardóttir, sem sumir þekkja sem Birtu úr Stundinni okkar, segir frá ævintýrunum á Bahamas og Dagmar Una Ólafsdóttir segir frá kjólnum sem [...]
jún
24
Eiður Smári leigir Landcruiser
24. júní 2007 | 1 ummæli
Fótboltahetjan Eiður Smári Guðjohnsen er kominn í sumarfrí eftir langt og strangt tímabil með Barcelona á Spáni. Eiður Smári er mættur til Íslands ásamt sambýliskonu sinni Ragnheiði Sveinsdóttur og þremur sonum og dvelja þau í fallegu einbýlishúsi í Fossvoginum sem þau festu kaup á síðasta sumar. Athygli vekur að Eiður Smári á engan bíl hér [...]
jún
22
Nýtt Sirkus komið út
22. júní 2007 | Rita ummæli
Nýtt Sirkus er komið út og barst inn á hvert heimili landsins með Fréttablaðinu í morgun. Í blaðinu er meðal annars að finna úttekt á einkaþotum íslenskra auðmanna en þessar þotur verða æ mikilvægari samgöngutæki í nútíma viðskiptum. Grétar “líkmaður” Sigurðarson ætlar að verða sterkasti maður Íslands, Habitat-hjónin seldu glæsivillu fyrir 160 milljónir og hin [...]
jún
21
Engin veiði í Borgarfirði
21. júní 2007 | Rita ummæli
Þeir eru ekki glaðir veiðimennirnir sem hafa keypt fokdýrar stangir á undanförnum dögum í dýrustu veiðiám Borgarfjarðar. Dagurinn kostar oft um 150 þúsund krónur pr. stöng en nær undantekningalaust koma menn heim með öngulinn í rassinum. Þannig hafa veiðst 2 fiskar í Langá, 2 í Kjarrá, 4 í Norðurá og svipað í Hítará. Það hlýtur [...]
jún
20
Útiloka ekki málaferli gegn forsetanum
20. júní 2007 | 3 ummæli
Mikil og hatrömm nágrannadeilda geisar nú á Laufásveginum á milli þriggja húseigenda annars vegar og embætti forseta Íslands hins vegar. Húseigendurnir Þorsteinn M. Jónsson á Laufásvegi 73, Einar Eiríksson á Laufásvegi 74 og Stefán Matthíasson á Smáragötu 13 hafa ekki fengið að byggja svo mikið sem sandkassa á lóðum sínum þar sem húsin eru öll [...]
jún
19
Ólafur í lúxusíbúðabraski í London?
19. júní 2007 | Rita ummæli
Þó nokkrar vangaveltur hafa verið um það hvaða Íslendingur eigi fyrirtækið Zegna III Holdings sem keypti fasteign í hinu fræga Belgravia-hverfi í London fyrir tíu milljarða íslenskra króna í síðustu viku. Ætlunin er byggja 14 lúxusíbúðir á 66 þúsund fermetra svæði og er búist við verklokum á næsta ári. Fréttablaðinu barst það til eyrna í [...]
jún
19
Sendið okkur fréttaskot
19. júní 2007 | Rita ummæli
Við á Sirkus þiggjum það með þökkum að þið lesendur sendið okkur fréttir og myndir af fræga fólkinu eða einhverju skemmtilegu sem þið lendið í. Hægt er að senda póst á sirkusfbl@gmail.com.
jún
18
Dansflokkurinn djammaði með landsliðinu
18. júní 2007 | 2 ummæli
Leikmenn íslenska landsliðsins í handbolta fögnuðu því vel og innilega að hafa borið sigurorð af Serbum, 42-40, í leik liðanna í Laugardalshöll á sjálfan þjóðhátíðardaginn og tryggt sér þar með sæti í EM í Noregi á næsta ári. Landsliðsmennirnir fóru á Vegamót eftir leikinn og slettu úr klaufunum. Eftir að staðnum var lokað var síðan [...]
jún
18
Flaug Benedikt í boði Baugs?
18. júní 2007 | Rita ummæli
Stórleikarinn Benedikt Erlingsson, sem vann til þriggja verðlauna á leiklistarhátíðinni Grímunni síðastliðið föstudagskvöld, mætti til hátíðarinnar í þyrlu. Hún flutti hann frá Borgarnesi þar sem hann lék í Mr. Skallagrímsson fyrr á föstudaginn og beint á hátíðina. Baugur Group var aðalstyrktaraðili Grímunnar og má búast við því að Benedikt hafi því fengið þyrluflug í [...]
jún
16
Díva setur villu á sölu fyrir 150 milljónir
16. júní 2007 | Rita ummæli
Sópransöngkonan Ólöf Sigríður Valsdóttir, sem er systir leikkonunnar Arnbjargar Hlífar Valsdóttur, hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt og manns síns Tómasar Heiðars Hauks, þjóðréttarfræðings hjá utanríkisráðuneytinu, á sölu. Húsið er staðsett í Mávanesi á Arnarnesinu og herma heimildir Sirkus að hjónin vilji fá í það minnsta 150 milljónir fyrir. Glæsivillan er rúmlega 360 fermetrar að stærð [...]
Þetta er vefsvæði tímaritsins Sirkus sem fylgir Fréttablaðinu á hverjum föstudegi. Sendu fréttaskot á sirkusfbl@gmail.com