jún
24
Eiður Smári leigir Landcruiser
24. júní 2007 kl. 18.17 |
Fótboltahetjan Eiður Smári Guðjohnsen er kominn í sumarfrí eftir langt og strangt tímabil með Barcelona á Spáni. Eiður Smári er mættur til Íslands ásamt sambýliskonu sinni Ragnheiði Sveinsdóttur og þremur sonum og dvelja þau í fallegu einbýlishúsi í Fossvoginum sem þau festu kaup á síðasta sumar. Athygli vekur að Eiður Smári á engan bíl hér heldur leigir gullfallegan svartan Toyota Landcruiser hjá Toyota-umboðinu. Ekki amaleg auglýsing það fyrir Toyota.
Ummæli
1 ummæli fram að þessu
Þetta er vefsvæði tímaritsins Sirkus sem fylgir Fréttablaðinu á hverjum föstudegi. Sendu fréttaskot á sirkusfbl@gmail.com
Held að bílinn sé leigður frá Hertz frekar en Toyota.