Flokkurinn 'Stjórnmál'

Skemmtun eða bara púl

11. mars 2010 kl. 18.29 eftir skandala

„Ég tel,“ sagði Jónas, „að kynlífið sé 90 prósent erfiði og 10 prósent skemmtun.“ „Helvítis della,“ sagði Guðmundur. „Kynlífið er 90 prósent skemmtun og 10 prósent erfiði.“ Um þetta tókst þeim að rífast heil-lengi, eða þar til einn starfsmanna fyrirtækisins, ungur maður með framtíðina fyrir sér, kom þar að. Þeir ákváðu að bera þetta undir hann. Eftir smá íhugun sagði ungi maðurinn:

„Kynlíf er hundrað prósent skemmtun!“
„Af hverju segir þú það,“ spurðu Jónas og Guðmundur báðir í einu….
„Vegna þess,“ sagði ungi maðurinn, „að ef það væri eitthvað erfiði fólgið í því, þá mynduð þið láta mig gera það fyrir ykkur.“

Tapað líf?

10. mars 2010 kl. 21.47 eftir skandala

www.visir.is Lýst eftir þrettán ára dreng

Undanfarið hefur verið auglýst eftir þó nokkuð mörgum unglingum og börnum sem hafa farið að heiman og ekkert fréttst af í nokkra daga. Við fáum ekki að vita hvað er búið að ganga á, hver forsagan er eða framhaldið á lífi þessara krakka.

En af hverju eru sumir krakkar bara róleg heima hjá sér og sátt við sitt á meðan nokkrir jafnaldrar láta sig hverfa og gera íþví að fela slóð sína og vilja ekki finnast?

Það er eitthvað sem veldur þessu og við ættum að reyna að finna ástæðurnar svo hægt sé að koma í veg fyrir þessa vanlíðan allra sem að málunum koma. Krakkarnir eru ósátt, foreldrar í rusli og aðrir ættingjar og vinir líka.

Það er vitað að erfiðar heimilisaðstæður geta valdið því að krakkar fýja að heiman en það er ekki alltaf ástæðan í okkar málum, stundum hafa áföll dunið á krökkunum sem þau ráða ekki við, s.s. nauðganir, sifjaspell eða andlát náinna vina eða ættingja. Í sumum tilfellum held ég að ofdekur sé ástæðan fyrir því að krakkar vaða áfram og telja sig mikið fullorðnari en þau eru og geri það að verkum að þau hverfa til að sýna að þau ráði sjálf yfir sér.

En það sem þessir krakkar eiga sameiginlegt er reiðin, sem við þurfum að losa þau við ef þau eiga að fá möguleika á að njóta lífsins ….. að þau fái að lifa lífinu sátt við sjálfa sig og aðra.

Aðvörun til foreldra vegna lausagöngu bilaðs manns.

9. mars 2010 kl. 21.12 eftir skandala

Kæru foreldrar - forráðamenn
Í dag eftir skóla reyndi ókunnur eldri maður að lokka 8 ára stúlku upp í bíl til sín. Þetta átti sér stað á horninu á Dyngjuvegi og Hjallavegi. Stúlkan brást hárrétt við og hljóp í burtu og lét vita heima hjá sér. Foreldrar kölluðu umsvifalaust til lögreglu og létu skólann vita af atburðinum.  Okkur er ekki kunnugt um lýsingu á bílnum né manninum.

Við viljum upplýsa um þetta mál og hvetja ykkur til að brýna fyrir börnunum að fara ekki upp í bíl hjá ókunnugum og láta okkur fullorðna fólkið vita þegar svona á sér stað. Við munum einnig ræða þessi mál í skólanum.
Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri

(Langholtsskóla, bréfið er birt á Pressunni)

Stórskaðaði okkur

8. mars 2010 kl. 16.30 eftir skandala

www.visir.is Ríkisstjórnin hefur stórskaðað trúverðugleika landsins

Það kemur úr hörðustu átt þegar Framsóknarflokksformaður fullyrðir að núverandi ríkisstjórn hafi stórskaðað landsmenn með framkomu sinni….. hvaða flokkar ætli hafi verið við völd í áraraðir fyrir hrun? HVaða flokkar sáu ekki um að vinna vinnuna sína og létu okkur landsmenn vera í ábyrgð fyrir sparnaði þúsunda íbúa Bretlands og Hollands? Og samþykkti þannig að við borguðum Icesave milljarðana?

Ætlar þessi Sigmundur Davíð að halda því fram að hans flokkur sé saklaus af þeirri svívirðu? Stuðlaði hann ekki að því að stórskaða okkur öll?

Það dugar ekki neinn sakleysissvipur eða orðaleikir. Þessum manni er ekki treystandi, hann er eingöngu að reyna að komast að í stjórn.

Guð forði okkur frá þeim ósköpum.

Æsingur að óþörfu

7. mars 2010 kl. 12.18 eftir skandala

www.visir.is Nefbraut mann á Örkinni

Mikið þurfa sumir að æsa sig og oft út af engu eða litlu. Það sem verra er ……. er þegar fólk fer að æsa sig og ráðast á “vitlausan” aðila með skömmum eða barsmíðum.

Ég veit ekkert meira um málið sem sagt er frá í fréttinni sem ég tengi bloggið við. En ég veit að það var hávaði í húsi einu hér í borginni í nótt, tónlistin hélt vöku fyrir fjölda manns og sumir sem vöktu fóru að æsa sig í stigaganginum. Helltu skömmum yfir konu sem þar var á vappi en áttuðu sig á því seinna að konan sem fékk skammirnar var alsaklaus af hávaðamenguninni. Hún var víst í sömu erindagjörðum á ganginum og sá sem hellti sér yfir hana. Að leita að partýinu til að átta sig á hvar það væri.

Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að hávaðinn kom frá næsta stigahúsi svo nú er sá æsti með móral og dauðsér eftir skömmunum.

Stundum er betra hafa hemil á sér og telja upp að 10 áður en æsingnum er leyft að gossa.

Rífur kjaft út að eyrum

6. mars 2010 kl. 19.40 eftir skandala

Hver ætli það sé sem rífur kjaft út að eyrum og ryksugar á meðan hann situr við tölvuna og bloggar. Raðar skammar-orðum á skjáinn og spreðar þeim yfir landsmenn. þykist allt vita og geta en gerir svo ekkert nema röfla og rífa kjaft, skriflega.

Jú, þetta er bloggari og ef ég skil hlutina rétt, þá er dæmigerður bloggari á visir.is akkurat svona að mati Blomma vinar okkar allra.

Heimavinnan látin ganga fyrir

6. mars 2010 kl. 13.19 eftir skandala

www.visir.is Léleg kjörsókn í Reykjavík

Það hefur ekki verið sagt frá því ennþá í neinni frétt, í helstu fjölmiðlum landsins, að ég ætla að sitja heima í dag. Bara svona eins og hitt fræga fólkið….. ;)

Ég hef hugsað mér að hafa það náðugt, hella uppá könnuna, pæla í því hvað ég prjóna næst, setja í svona eins og eina þvottavél.

Ef ég á bágt með mig og þjáist af hreyfingarleysi þá gæti ég átt það til að ryksuga eða ef ég er mjög illa haldin þá gæti ég farið í gönguferð. Þetta kemur allt í ljós þegar líður á daginn.

En það er ljóst að ég ætla ekki að flýta mér að kjósa um ekkert eins og í boði er.

Um hvað er kosið?

6. mars 2010 kl. 0.19 eftir skandala

www.visir.is Bretar og Hollendingar til í viðræður í næstu viku

Samningurinn sem á að kjósa um núna er með hærri vöxtum en tilboðið sem liggur fyrir núna frá Bretum og Hollendingum.

Við gætum samþykkt nýja tilboðið og fengið mikið lægri vexti og þar með betri samning en við kjósum um.

Það þarf engar kosningar til þess, því tilboðið liggur fyrir.

Möguleiki er á að fá enn betri samning því eitthvað á að ræða málin eftir helgina.

Ef samningurinn sem á að kjósa um er felldur, tekur sá gamli við sem Hollendingar og Bretar neituðu að samþykkja.

Kosningar eru því út í hött, því það er verið að kjósa um úreltan samning.

Til hvers í ósköpunum vilja Bjarni Ben og Sigmundur Davíð láta kjósa??  og um hvað?? Halda þeir að þeir séu að upphefja sig og ruglflokkana sína á enn einni endaleysunni? Ganga þeir út frá því sem vísu að Steingrímur og Jóhanna segi af sér þegar NEI-ið er komið?

Síðast í dag heyrði ég í fólki sem hélt að það ætti að kjósa um HVORT við VILDUM borga Icesave.

Fullt af fólki áttar sig ekki á því ennþá að VIÐ BORGUM, það er ekki möguleiki á öðru,….. SVO getum við gengið á útrásarvíkingana til að fá endurgreitt það sem þeir hafa stolið.

———-

Þetta er móðgun við lýðræðið. Þegar þjóðin fær loksins að kjósa þá er það um marklausan pappír. Endilega farið þið á kjörstað og kjósið með XB og XD og þakkið þeim fyrir að setja þjóðina á hausinn.

Á von á barni…

5. mars 2010 kl. 17.35 eftir skandala

Það var litill strákur í leikskóla sem var alltaf að tala um að hann væri að fara að fá lítinn bróður. Hann talaði um þetta á hverjum degi og var voða spenntur fyrir þessu.
Kvöld eitt kallaði mamma hans á hann og lét hann leggja hendina á magann á henni og finna spark og hreyfingu, hann var hljóður á eftir.
Nokkrum dögum seinna tók starfsfólk leikskólans eftir því að hann var hættur að tala um bróður sinn, svo strákurinn var spurður um litla bróður????

Leikskóladrengurinn svaraði: „Ég fæ engan bróður, mamma át hann…. „

Pabbinn fokkast …

4. mars 2010 kl. 23.01 eftir skandala

Pabbinn segir “Jæja, Jói minn, nú eignaðistu litla systur í nótt og storkurinn kom með hana.”
“Jessss pabbi, ….. en ég skil nú ekkert í þér, það er fullt af sætum gellum hérna í bænum og þú ert alltaf að fockast í einhverjum fuglsfjanda.

Leið á lífinu

4. mars 2010 kl. 13.48 eftir skandala

Nunna nokkur var orðin ansi leið á lífinu og ákvað að fremja sjálfsmorð. Einhverra hluta vegna átti hún byssu, en þar sem hún var ekki viss hvar hún ætti að skjóta sig svo hún dræpist þá hringdi hún í “Sjálfsmorð hf” og spurði hvar hún ætti að skjóta.

“3cm fyrir neðann hægri geirvörtuna,” var svarið.

Hún skaut af sér hnéð

Skipti karla markaður …

3. mars 2010 kl. 17.01 eftir skandala

Magga litla starir út um gluggann á kirkjuna handan götunnar og segir við mömmu sína: “Sniðugt að hafa svona kirkjur þar sem konur geta skipt á eiginmönnum.”

“Hvað áttu eiginlega við, barn?” spurði mamma hennar undrandi.

“Jú, ég hef margoft séð konur í brúðakjól fara inn með gömlum körlum og koma svo út hálftíma seinna með kornungum mönnum.”

Kynlífsfræðsla ungu stúlkunnar

2. mars 2010 kl. 23.10 eftir skandala

Mamman svarar dóttur sinni með þekktum frasa:

“Nú, storkurinn kom með þig elskan.”

“Og kom hann með þig líka mamma?” heldur stelpan áfram.

“Já elskan, hann gerði það.”

“Og pabba, ömmu og afa og langömmu og langafa líka?”

“Já elskan, storkurinn kom með þau öll.”

Unga stelpan hristir hausinn vonsvikin.

“Það er ekkert skrýtið að allir séu svona geðvondir í þessari fjölskyldu, það hefur ekki verið stundað kynlíf í fjölskyldunni í yfir 200 ár….”

Kynlíf karlmanna gert opinbert

2. mars 2010 kl. 0.57 eftir skandala

Samkvæmt rannskókn sem vitnað er í á Pressunni eykur það skeggvöxt karlmanna að búa við þann munað sem reglulegt kynlíf er…. og nú spyr ég eins og fávís kona;

Búa skegglausir karlar þá ekki við reglulegt kynlíf eða vilja þeir ekki að það sjáist á þeim og raka allt af sér þess vegna???

Nánari upplýsingar á þessari slóð;

http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/rad-fyrir-mottukeppni-krabba–meinsfelagsins-kynlif-eykur-skeggvoxt-segir-torfi-geirmunds

Ættarskömm

1. mars 2010 kl. 17.31 eftir skandala

www.visir.is Ferlegur frændgarður

Aumingja bóndinn komst að því að hann er náskildur Hilter og álítur hann einn mesta glæpamann allra tíma.

Það er auðvitað bagalegt að vera í sjokki og illa haldinn af eftirsjá vegna þess að hann gaf sýni til DNA rannsóknar. En aumingja bóndinn má þakka fyrir að hafa ekki orðið eins og þessi eini ættingi sem hann sjokkerast útaf.

Það þarf kannski að veita bónda greyinu áfallahjálp svo hann komist yfir áfallið, sjokkið og eftirsjána.

Við sem eigum hrottalega ættingja og þegar við skömmumst okkar fyrir illgirnina sem þeir burðast með, ættum að fá áfallahjálp ef okkur líður illa.

Ef líðan okkar er góð þó ættingjar séu fífl, hrottar og fúlmenni, þá er ástæðulaust að vera að blása það eitthvað út nema við getum aðvarað þá sem gætu lent í krumlunum á þessum óalandi ættingjum.

Var konan strokuð út?

28. febrúar 2010 kl. 10.18 eftir skandala

Ég hef verið að leita að ákveðinni konu og kannski getið þið bent mér á hvar ég finn hana. Ég hef leitað þar sem ég sá hana síðast,, sem er hér á þessu vísisbloggi en það er engu líkara en hún hafi aldrei verið hér. Hún sést ekki á listunum yfir eldri bloggfærslur þó þar sé fólk sem hefur ekki bloggað mánuðum saman. Bloggarar sem hafa strokað sig út hafa sést á listunum löngu eftir að þeir skrá sig út, en það er ekki þannig með þennan ákveðna boggara sem ég er að leita að.

Hún hafði ekki skrifað hér í langan tíma en hún skrifaði mjög athyglisverða pistla um fréttaflutning sem hefðu átt að vera skyldulesning allra Íslendinga, svo góðir voru þeir.

Hún benti á hvað fréttaflutningur er einhæfur og oft litaður af stjórmálaskoðun fréttamanna, sem flestir virðast vera innundir í Sjálfstæðisflokknum. Enda þarf ekki að líta langt til að sjá að Sjálfstæðismenn eru að koma ár sinni vel fyrir borð á fréttamiðlunum, hverjum á fætur öðrum. Fyrrum ritstjóri Moggans er búinn að taka að sér ritstjórn á Fréttablaðinu, mest lesna dagblaði landsins. Davíð sér um Moggann og fréttamenn sem enn hafa ekki verið reknir af sjónvarpsstöðvunum skríða fyrir Bjarna Ben og taka varla viðtöl við aðra stjórnmálamenn.

Og þetta látum við viðgangast án þess að gagnrýna en týndi bloggarinn gerði það.

Mér datt í hug að þessi skeleggi horfni bloggari hafi verið þurrkaður út hér á blogginu vegna  skoðana sinna.

Tengdó ýtti undir framhjáhald

27. febrúar 2010 kl. 13.29 eftir skandala

Eiginmaðurinn hélt við nokkrar konur og hafði gaman af, þangað til það komst upp, þá var gamanið búið en það var auðvitað ekki hann sem var sökudólgur í skilnaðarmáli hjónanna. Ó nei, það var tengdamamma hans sem var OF nálæg hjónunum og OF oft í heimsókn.

Það hefði átt að setja á hana heimsóknarkvóta og nálgunarbann.

Eftirfarandi er úrklippa úr frétt á pressan.is

“Etir að upp um framhjáhaldið komst hefur Ashley Cole haldið uppi vörnum. Hann segir eina   af  ástæðum framhjáhaldsins vera þá að ekki hafi verið kynlífsfriður í húsinu. Það er að segja að tengdamóðir hans, Joan Callaghan, hafi alltaf dvalið mikið inni á heimilinu að þau Cheryl hafi ekki getað stundað kynlíf í friði.

Þessu vísar Joan algerlega á bug og segir að hún hafi alltaf gætt þess að dvelja sem lengst frá svefnherbergi Ashley og Cheryl.”

Nú er búist við eldgosi

26. febrúar 2010 kl. 20.44 eftir skandala

www.visir.is Viðbúnir gosi í Eyjafjallajökli

Jæja, það er ekki nóg að hafa yfirvofandi stjórnarkreppu, Icesave reikninga með okurvöxtum, atvinnuleysi og kreppu og eiga óteljandi óvini í nærliggjandi löndum. Nú eigum við líka von á eldgosi í Eyjafjallajökli, samkvæmt nýjustu fréttinni.

Við kippum okkur ekki upp við það,

ó nei,

það er bara enn eitt hundsbitið.

Og ef þau verða nógu mörg þá verður ekkert eftir af okkur.

Svæsnar afleiðingar

25. febrúar 2010 kl. 21.44 eftir skandala

Ef maður notar ekki húfu þá fær maður kvef

Ef maður fær kvef þá eru líkur á að maður verði hás

Ef maður er hás þá þarf maður að hvísla

Þeir sem hvísla eru að ljúga.

Þeir sem ljúga fara í fangelsi.

Ef maður fer í fangelsi þá kynnist maður dópi.

Ef maður dópar þá deyr maður!

Gleymdu ekki helvítis húfunni !!!!

Ásatrúarmenn komnir til Helvítis?

25. febrúar 2010 kl. 17.48 eftir skandala

www.visir.is Herskörum helvítis var sigað á mig

Mér finnst  nokkuð líklegt að Ásatrúarmenn séu orðnir alvarlega innviklaðir í Helvíti og ráða þar kannski bara öllu. Hvert fór Djöfullinn … kannski í vetrarfrí?

Allsherjargoði sagði í fréttum fyrir stuttu að Ásatrúarmenn hafi kallað bölvun yfir óvini okkar í útlöndum og það er að virka því nú álíta þeir Brán og Darling í Englandi að það sé verið að ráðast á þá persónulega  og Darling gengur svo langt að segja að það sé árásarher frá Helvíti sem sitji um hann.

Hann ruglar kannski bara saman Ásatrú og Helvítistrú, og er það víst ekki í fyrsta sinn sem ráðamenn í útlöndum koma upp um fáfræði sína með svona gaspri.

Það allra helgasta blasti við…

24. febrúar 2010 kl. 17.21 eftir skandala

Gömul kona stóð í stefni skemmtiferðarskipsins. Hún hélt fast í hatt sinn svo hann fyki ekki brott með vindinum. Herramaður gekk til hennar og sagði “Fyrirgefðu frú, en vissir þú að kjóll þinn blæs upp í þessum vindi? “Já ég veit það”, sagði konan,
“Ég þarf að nota báðar hendurnar til þess að halda hattinum á sínum stað.”
“En frú mín, þú hlýtur að átta þig á því að hið allra helgasta blasir við þeim fjölmörgu sem standa hér”, sagði herramaðurinn kurteislega.
Gamla frúin leit niður, og síðan á herramanninn og svaraði;
“Góði minn, allt sem þú sérð þarna niðri er 85 ára gamalt. En ég keypti þennan hatt í gær.”

Ráðleggingar til karlmanna… ekki kvenna.

21. febrúar 2010 kl. 20.37 eftir skandala

Veistu hvernig á að heilla konu? eða Hvernig best er að tæla konu? eða Hvaða aðferðir duga? Það eru ansi margir karlar í vandræðum með þetta allt, bæði giftir og hinir sem eru það ekki.

Eins og margir vita skilja giftir karlar ekkert í því ef konan er hætt að hafa kynferðislegan áhuga á þeim.

Jæja, ég ætla ekki að draga ykkur lengur á þessu strákar. Ef þið viljið kynna ykkur 5 ráð ungrar konu, sem telur sig hafa rétt fyrir sér, þá er linkurinn HÉR og endilega kíkið á hann til að kynna ykkur málið. Að vísu ætlar hún að birta fleiri ráð eftir viku svo það er hægt að æfa sig á þeim 5 sem hún gefur upp núna, svona til að byrja með.

Svona á konan að vera …

21. febrúar 2010 kl. 11.08 eftir skandala

Börn skal konan manni sínum ala,

og ekki yfir íþróttum tala.

Karlinum þarf hún sífelt að hæla,

og á kvöldin við hann gæla.

Konan skal halda vextinum fínum,

þó karlinn tapi sínum.

Karlinn á að styðja í framapoti,

og ekki vekja úr fyllerísroti.

Heimilið skal vera strokið og fínt,

svo karlinn geti það öðrum sýnt !

Kom blindfullur heim og …

20. febrúar 2010 kl. 22.17 eftir skandala

Jón hafði farið á fyllirí í vinnunni og drukkið all hressilega. Reyndar svo mikið að það síðasta sem hann man, var að hann var ælandi á götuna einhversstaðar niðrí bæ. Hann vaknar með hausverk dauðans, opnar augun og sér að hann er heima hjá sér. Lítur í kringum sig og sér rós í vasa og vatnsglas á borðinu og verkjatöflur. Föt nýpressuð á stólnum og allt þögult og tandurhreint. Hann skröltir á fætur, gjörsamlega minnislaus um gærkvöldið og röltir á kamarinn. Á speglinum sér hann miða frá konunni sinni sem á stóð:
“Ástin mín, ég skaust í búðina að kaupa inn, því ég ætla að elda uppáhalds matinn þinn í kvöld, hafð þú það rólegt í dag og jafnaðu þig elskan mín, sé þig á eftir. “Hann klóraði sér í hausnum og tók eftir RISA glóðarauga á sér, pissaði og rölti fram.
Frammi situr 12 ára sonur hans að lesa og hann spyr stráksa, “Veist þú hvenær ég kom heim í nótt ? “
Já pabbi, þú komst heim um 5 í morgun, dast um stofuborðið og braust allt sem var á því, ældir á teppið í stofunni, og drapst á gólfinu.
Kallinn klóraði sér í hausnum og spurði af hverju mamma hans væri svona glöð..
“Æ, já, þegar mamma var að drösla þér á fætur og þrífa af þér æluna sagðir þú”
“Láttu mig vera, ég er hamingjusamlega giftur!!!!”

….Heppinn…..

Góð gjöf

20. febrúar 2010 kl. 9.45 eftir skandala

Á hippatímabilinu svonefnda gaf karlkyns blómabarn einni vinkonu sinni gallabuxur í jólagjöf. Og þar sem þessi friðelskandi náungi vildi vera dálítið frumlegur hafði hann skrifað “gleðileg jól” á aðra buxnaskálmina en “gleðilegt nýár” á hina.

Eftir að vinkonan hafði tekið upp gjöfina sendi hún gefandanum svo hljóðandi kort:

Kæri Óli.

Vertu velkominn á milli jóla og nýárs.

Þín Nína.




Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning