Flokkurinn 'Tækni og vísindi'
Veistu hvernig á að heilla konu? eða Hvernig best er að tæla konu? eða Hvaða aðferðir duga? Það eru ansi margir karlar í vandræðum með þetta allt, bæði giftir og hinir sem eru það ekki.
Eins og margir vita skilja giftir karlar ekkert í því ef konan er hætt að hafa kynferðislegan áhuga á þeim.
Jæja, ég ætla ekki að draga ykkur lengur á þessu strákar. Ef þið viljið kynna ykkur 5 ráð ungrar konu, sem telur sig hafa rétt fyrir sér, þá er linkurinn HÉR og endilega kíkið á hann til að kynna ykkur málið. Að vísu ætlar hún að birta fleiri ráð eftir viku svo það er hægt að æfa sig á þeim 5 sem hún gefur upp núna, svona til að byrja með.
Börn skal konan manni sínum ala,
og ekki yfir íþróttum tala.
Karlinum þarf hún sífelt að hæla,
og á kvöldin við hann gæla.
Konan skal halda vextinum fínum,
þó karlinn tapi sínum.
Karlinn á að styðja í framapoti,
og ekki vekja úr fyllerísroti.
Heimilið skal vera strokið og fínt,
svo karlinn geti það öðrum sýnt !

Jón hafði farið á fyllirí í vinnunni og drukkið all hressilega. Reyndar svo mikið að það síðasta sem hann man, var að hann var ælandi á götuna einhversstaðar niðrí bæ. Hann vaknar með hausverk dauðans, opnar augun og sér að hann er heima hjá sér. Lítur í kringum sig og sér rós í vasa og vatnsglas á borðinu og verkjatöflur. Föt nýpressuð á stólnum og allt þögult og tandurhreint. Hann skröltir á fætur, gjörsamlega minnislaus um gærkvöldið og röltir á kamarinn. Á speglinum sér hann miða frá konunni sinni sem á stóð:
“Ástin mín, ég skaust í búðina að kaupa inn, því ég ætla að elda uppáhalds matinn þinn í kvöld, hafð þú það rólegt í dag og jafnaðu þig elskan mín, sé þig á eftir. “Hann klóraði sér í hausnum og tók eftir RISA glóðarauga á sér, pissaði og rölti fram.
Frammi situr 12 ára sonur hans að lesa og hann spyr stráksa, “Veist þú hvenær ég kom heim í nótt ? “
Já pabbi, þú komst heim um 5 í morgun, dast um stofuborðið og braust allt sem var á því, ældir á teppið í stofunni, og drapst á gólfinu.
Kallinn klóraði sér í hausnum og spurði af hverju mamma hans væri svona glöð..
“Æ, já, þegar mamma var að drösla þér á fætur og þrífa af þér æluna sagðir þú”
“Láttu mig vera, ég er hamingjusamlega giftur!!!!”
….Heppinn…..
Á hippatímabilinu svonefnda gaf karlkyns blómabarn einni vinkonu sinni gallabuxur í jólagjöf. Og þar sem þessi friðelskandi náungi vildi vera dálítið frumlegur hafði hann skrifað “gleðileg jól” á aðra buxnaskálmina en “gleðilegt nýár” á hina.
Eftir að vinkonan hafði tekið upp gjöfina sendi hún gefandanum svo hljóðandi kort:
Kæri Óli.
Vertu velkominn á milli jóla og nýárs.
Þín Nína.
Þá er komin helgi, einu sinni enn. Virku dagarinir líða svo hratt að það er engu líkara en að þeir séu jafn margir og frídagarnir um helgar.
Ég er ekki ein um þessa tilfinningu og velti ástæðunni fyrir mér. Getur verið að það sé svo lítið um að vera í 5 daga en svo mikið í tvo að það sýnist vera jafnmikið???
Sumir segja að þegar tíminn flýgur frá manni hafi maður nóg að gera, aðrir segja að það sé ellimerki. Hver sem ástæðan er ætla ég ekki að vera aðgerðarlaus þessa helgi.
Spurningin er bara hvaða verkefni verða efst á baugi, djamm, málningarvinna, prjónaskapur, vöfflubakstur, nú eða bara eitthvað allt annað.
Það kemur í ljós.
Í den, þegar ég var að alast upp var mér sagt að “karlmenn væru TIL ÞESS að koma heim með kaupið og fara út með ruslið”. Það hafa orðið breytingar á tilgangi karmanna síðan þá og núna eru kröfur kvenna aðrar og skýrari hvað þetta mál varðar.
Núna gera konur ekki BARA kröfur um jafn einfalda hluti og áður eru nefndir, enda orðnar skipulagðari og hnitmiðaðri og það sem kallað er ÁRANGURSTENGDARI. Nýtt mottó hljóðar svo;
“Hver einasta kona ætti að eiga fjögur gæludýr, Mink í fataskápnum, jagúar í bílskúrnum, Tígur í rúminu og Asna sem borgar fyrir allt.”
Einfalt ekki satt?
Eldri kona var vön að gera jógaæfingarnar sínar nakin á stofugólfinu heima hjá sér en hún var að eldast og lipurðin eitthvað að dala hjá þeirri gömlu. Eitt sinn þá setti hún fæturnar aftur fyrir hnakka og sat föst í þeirri stellingu.
Þegar karlinn hennar kom heim um kvöldið vel drukkinn eins og venjulega og sá hana sagði hann; “Æ, greyið greiddu þér og settu upp í þig tennurnar.”

Ljóska nokkur sem hefur nokkrum sinnum ratað á þetta blogg fór í Elko til að kaupa sér sjónvarp. Hún skoðaði sig um góða stund og bað svo afgreiðslumanninn um að aðstoða sig því hún vildi kaupa þetta sjónvarp og benti honum á tækið í hillunni.
Afgreiðslumaðurinn sagði stuttur í spuna að hann afgreiddi ekki ljóskur.
Ljóskan varð mjög hissa á þessu svari því hún var með húfu og allt hárið falið innanundir henni. En hún fór í Rúmfatalagerinn að skoða dót á meðan hún hugsaði hvað hún ætti að gera.
Hún ákvað að fara aðra ferð í Elko og tala við annan afgreiðslumann og þegar hún benti honum á sjónvarpið sem hún vildi kaupa þá svaraði hann, henni til enn meiri undrunar;
“Ég afgreiði ekki ljóskur”
Ljóskan spurði agndofa, hvernig hann vissi að hún væri ljóska og maðurinn svaraði;
“Vegna þess að þetta er ekki sjónvarp, þetta er örbylgjuofn.”
Stutt saga úr póstnúmeri 101;
Róni gekk upp að vel haldinni og búsældarlegri konu á Laugaveginum og sagði:
“Ég hef ekki borðað í fjóra daga!”
Konan horfði á hann og sagði:
“Ég vildi að ég hefði þennan viljastyrk!”.
Sýnum Tryggva samstöðu!
Tryggvi ásamt kettinum Dr. Göbbels, sem er blessunarlega heyrnarlaus, mótmælir fyrir framan sjónvarpið.
Tryggvi Tóbíasarson, atvinnuleysingi, hefur tekið upp á því að mótmæla ástandinu í þjóðfélaginu fyrir framan sjónvarpið sitt, en það hefur hann nú gert á hverju kvöldi í þrjár vikur.
„Jú, þetta gengur ágætlega. Ég sest niður þegar kvöldfréttirnar byrja og hita upp með því að fussa og skammast aðeins, gíra mig svo smám saman upp og mótmæli svo af öllum lífs og sálar kröftum yfir Kastljósinu. Svo slaka ég aðeins á, kíki á netið eða glápi á einhvern þátt – og tek svo aðra rispu þegar tíufréttirnar koma. Þá sleppi ég mér líka algerlega.“
Tryggvi er ekki frá því að mótmælin séu þegar farin að hafa áhrif.
„Tjah, allavega eru nágrannarnir farnir að ókyrrast aðeins – og svo er konan auðvitað farin.“
Fyrir stuttu síðan sat ég á kaffihúsi og hafði það bara nokkuð næs en fékk svo óskaplega vindverki sem vildu út. Tónlistin var frekar hátt stillt svo ég laumaðist til að hleypa lofti út í takti við dúndrandi tónlistina.
Eftir nokkur lög og viðrekstur í takt var mér bara farið að líða þokkalega. Hélt áfram að drekka kaffið mitt, en tók allt í einu eftir því að allir gestir kaffihússins störðu á mig.
Það var á því augnabliki sem ég uppgötvaði að ég var að hlusta á ipodinn minn.
Það er kominn nýársdagur ársins 4 þúsund og eitthvað hjá Kínverjum. Þeir segja þetta ár Tígurs en árið sem lauk í gær kölluðu þeir ár Uxa. Eins og við vitum eru Uxar hægfara en Tígurinn er snar í snúningum og jafnvel varasamur.
Lognmollunni sem einkenndi síðasta ár fer því að ljúka og kraftur Tígursins að einkenna allt, stjórnmálin sem og einkamál fólks.
Æseif og myntkörfulána-martraðir fara því að taka kipp og vonandi líkur þeim fljótlega.
“Það eina sem getur sannfært karlmann um að hann eigi að vera með þér er hans eigin tilfinning fyrir því að það verði gott og auðvelt en ekki stöðug vinna og áreiti. Ef þeir skynja þessa neikvæðu strauma þá forðast þeir skuldbindingu. Á þessum aldri eru flestir þessara einhleypu manna BÚNIR með hjónabandspakkann og allt það sem honum fylgir, ástæðan fyrir því að þeir eru orðnir einhleypir aftur er sú að hjónabandið gékk ekki upp af einhverjum ástæðum. Þeir hafa ekki áhuga á að fara aftur í sömu aðstæður, þeir vilja finna frelsið sem fylgir því að fá að vera maður sjálfur og ef við erum að hamla þeim á einhvern hátt með væntingum okkar þá láta þeir sig hverfa.”
Þessa ofangreindu speki lét Sigrún Einars frá sér á Pressunni. Getur þetta verið rétt?
Uppflettilisti um raunverulega meiningu kvenna
nauðsynlegur hverjum karlmanni í sambúð eða hjónabandi
| Þegar kona segir: |
|
|
meinar hún: |
|
|
|
|
| Við verðum |
|
|
Ég vil |
| Þú ræður |
|
|
Þér ætti að vera orðið ljóst hvað ég vil |
| Gerðu það sem þú vilt |
|
|
Ég næ mér niður á þér síðar |
| Við þurfum að ræða saman |
|
|
Ég þarf að leggja fram nokkrar kvartanir Byrjum á: |
|
|
|
afhverju þarftu alltaf að vera svona mikið fífl? |
| Ég er ekkert æst |
|
|
Ég er svo æst að ég er við það að henda mér í vegg |
| Ég er ekki að gera úlfalda úr mýflugu |
|
|
Ég er á túr og á fullan rétt á gera Hummer úr |
|
|
|
Matcbox bíl ef mér sýnist svo |
| Slökktu ljósin |
|
|
Ég er á fitubömmer og með ljótuna |
| Bíllinn er að verða bensínlaus |
|
|
Farðu og fylltu tankinn |
| Ruslapokinn er fullur |
|
|
Geturðu aldrei gert neitt nema að þú sért beðinn um það? |
| Hundurinn er að gelta |
|
|
Farðu fram úr og athugaðu hvort það sé morðóður |
|
|
|
maður í húsinu. Betra þú en ég. |
| Okkur vantar ný gluggatjöld |
|
|
Ég er óhamingjusöm og vantar tilbreytingu |
| Mig vantar nýja skó |
|
|
Ég kann ekki lengur við hin 40 pörin |
| Þú verður að læra að tjá þig |
|
|
Vertu bara sammála mér, það er auðveldara fyrir alla |
| Ertu að hlusta? |
|
|
Of seint, þú ert búinn að vera |
| Þetta er allt í lagi |
|
|
Þú færð að borga fyrir þetta síðar |
| Já |
|
|
Nei |
| Nei |
|
|
Nei fjandinn hafi það |
| Kannski |
|
|
Þú getur sko gleymt því |
| Fyrirgefðu |
|
|
Þú átt eftir að sjá eftir þessu |
| Hvernig finnst þér maturinn |
|
|
Það er fljótlegt að búa þetta til svo það er best fyrir |
|
|
|
þig að venjast því. |
| Er barnið að gráta? |
|
|
Drullaðu þér á lappir og sinntu barninu |
| Ég er ekki að öskra |
|
|
Ég er að öskra því þú virðist vera heyrnalaus fávitinn þinn |
| Elskarðu mig? |
|
|
Ég fór í Smáralindina og eyddi svívirðilega miklum pening. |
| Hvað elskarðu mig mikið? |
|
|
Ég gerði svolítið í dag sem þér mun ekki líka |
| Ég verð enga stund |
|
|
Farðu úr skónum og komdu þér vel fyrir fyrir framan |
|
|
|
sjónvarpið á meðan þú bíður, þetta gæti tekið |
|
|
|
klukkustund/ir. |
| Er rassinn á mér siginn? |
|
|
Hreinskilni er ofmetin og jákvætt svar er ekki valkostur |
| Baðherbergið er svo lítið að maður |
|
|
|
| kemst þar varla fyrir |
|
|
Ég vil nýja íbúð |
| Við ætlum bara að kaupa súpuskálar |
|
|
Ég þarf líklega ekki að taka það fram að við munum |
|
|
|
líka kíkja í nokkrar fatabúðir, líta við í snyrtivöruverslunum |
|
|
|
og svo var ég að frétta að það væru komnar nýjar vörur í |
|
|
|
búsáhaldadeildina og að það væri útsala í |
|
|
|
sængurfatadeildinni og Ó, guð, hvað þessi bleiku rúmföt |
|
|
|
færu vel við svefnherbergið ef við myndum mála það í stíl |
|
|
|
og skipta um gluggatjöld. |
| Er ég feit í þessum kjól? |
|
|
I will kill you slowly if you say yes |
Móðir drengs: Óskiljanlegt að lögreglumaðurinn hafi verið sýknaður Á nú að þegja einn skandalann enn í hel? Þegar svona hlutir gerast á að taka á þeim strax en ekki bíða þar til dæmt er. Lögreglustjórinn sér ekki ástæðu til að segja neitt, velur að þegja núna og ætlar ekkert að segja fyrr en málið verður dæmt í Hæstarétti. Ef það fer þangað.
Lögreglumaður var sýknaður fyrir héraðsdómi þó hann segðist hafa framið óhæfuverk.
“Lögreglumaðurinn sagði sjálfur fyrir rétti að það væri venjan að taka menn sem væru til vandræða og skilja þá eftir í buskanum eins og gert var við Edward. Móðir hans segir það ótækt og að lögregla verði að endurskoða vinnubrögð sín.”
Ekki vildi ég fá son minn heim í sama ástandi og móðirin lýsir í fréttinni, með ljóta áverka eftir lögguna.
Ég hef oft bloggað um stuðning við lögregluna og hennar störf en ég styð ekki óhæfuverk einstakra manna í þeirri stétt, það er á tæru.
Blatter: Terry hefði verið hylltur í latneskum löndum Já, já, hann var rekinn úr vinnunni vegna framhjáhalds þó hann hafi staðið sig mjög vel í starfi. Það dugði ekki að vera líflegur og hress á einum stað og OF líflegur og hress í framhjáhaldi. Sem ætti ekki að skipta máli á vinnustaðnum, nema vegna þess að hann hélt við eiginkonu samstarfsmanns síns.
John Terry barnaði víst eiginkonuna sem annar maður ÁTTI og borgaði fyrir fóstureyðingu. Fabio Capello þjálfari liðsins, svipti hann fyrirliðastarfinu og rak hann alfarið úr liðinu.
Einhver hefði látið hæfileika mannsins í starfi njóta sín og ekki blandað saman starfi og einkalífi ….. en það gera þeir óspart á Bretlandi.
Annars segja sumir að ástæða brottrekstursins hafi líka verið sú að John Terry tók háar upphæðir fyrir að lána stúku á vellinum sem hann mátti ekki gera, hann átti að lána stúkuna til góðgerðarsamtaka án þess að fá krónu (pund) fyrir.
Bolludagurinn er næsta mánudag, í tilefni þess birti ég þessa aðvörun þó hún fjalli að vísu meir um konudaginn;
Bollur skal éta á bolludaginn.
Baunir og saltkjöt á sprengidaginn.
En iðrast hann má, maðurinn sá,
sem át konuna sína á konudaginn.
“Skarpi Skarpi”
Vinur minn sem er málarameistari réð til sín aðstoðarmann á dögunum. Sá hafði unnið árum saman sem kvensjúkdómalæknir, en var sagt upp. Hann er nú að brillera sem málari. Málaði tveggja herbergja íbúð í gegn um bréfalúguna :o)
Eldri kona mætti hjá tannlækninum, settist í stólinn, reyf sig úr nærbuxunum og glenti.
“Heyrðu góða mín, ég er ekki kvennsjúkdómalæknir,” sagði tannlæknirinn hissa. “Jú, jú, ég er á réttum stað,” sagði konann, “þetta snýst nefnilega um að ná í fölsku tennurnar hans Jóns míns.”
Forstjórinn mætti í vinnuna, lítið sofinn með galopna buxnaklauf. Ritarinn hans brosti bara og sagði; Gleymdir þú nú að loka bílskúrnum? Það blasir allt við. Forstjórinn svaraði ekki en leit á hana og fór inn til sín en kom svo aftur og sagði; Úps, ég skil… Skúrinn var opinn! Sástu nokkuð HÖMMERINN? Ritarinn; Nei, bara MINI VAN, og það var sprungið á tveimur!
Hvað gerir þú þegar þú ert búinn að nota 365 smokka á einu ári?
Þú bræðir þá og býrð til dekk úr þeim og kallar dekkið… GOODYEAR ♥
Hvað þarf að safna notuðum smokkum í mörg ár til að eiga í einn umgang undir Toyota Landcruser?
Í síðustu viku var verið að rífa gamalt hús í miðbænum. Innan í einum vegg fannst beinagrind með medalíu um hálsinn. Á henni stóð: “Íslandsmeistarinn í feluleik 1969!!
Gamall maður var að leita að konunni sinni í IKEA þegar að hann rakst á ungan mann
“ég er að leita að konunni minni” sagði gamli maðurinn
“ég er líka að leita að minni konu” sagði ungi maðurinn.
“Förum bara saman og leitum að þeim”.
“Hvernig lítur konan þín út” sagði gamli maðurinn.
“Hún er með sítt rautt hár, blá augu,…………stinnan rass og flott brjóst, en konan þín?”
“Issssss, skítt með hana, förum og finnum þína”
Ung kona kom hjólandi að Hagkaup og lagði hjólinu sínu upp við vegg, þegar hún labbaði frá hjólinu þá datt það..þá heyrðist í gömlum kalli;
“Hey, það leið yfir hjólið þitt!”
þá svaraði unga konan;
“Já, helduru að það myndi ekki líka líða yfir þig ef að þú værir búinn að vera í klofinu á mér í hálftíma?
Ég vinn með konu frá Fjarskanistan en höfðuborgin þar er fjarskafalleg. Þegar landið kemur til tals okkar á milli, þá er fátækt og sjálfsbjargarviðleitni íbúanna oftar en ekki til umræðu.
Þegar rætt er um okkar Ísland í Fjarskanistan þá er það sama upp á teningnum. Rætt um fátækt og sjálfsbjargarviðleitni fólksins í okkar fjarska fallega landi.
Það er fjarri mér að fara nánar út í þá sálma núna.