Vændi lögleitt

20. mars 2007 kl. 10.33 | 5 ummæli

Eftir næturfund á Alþingi um helgina er vændi löglegt á Íslandi. Kaup á vændi hafa hingað til verið lögleg, en vændi til framfærslu hefur verið refsivert. Þetta breyttist á laugardaginn. Nú er ekkert sem bannar íslenskum konum og körlum að selja sig, svo fremi að það sé ekki auglýst með opinberum hætti. Þingmenn telja að með þessu aukist líkurnar á að konur sem hnepptar hafa verið í þrældóm þori að kjafta frá dólgunum og þannig auðveldi þetta að uppræta skipulagða vændisstarfsemi. Alþingismenn ganga með þessari lagabreytingu út frá þeirri forsendu að enginn stundi vændi ótilneyddur. Allt gott og gilt, en er virkilega hægt að gefa sér að ekki séu til einstaklingar sem muni kjósa að stunda þessa atvinnugrein af fúsum og frjálsum vilja? Hafa þingmenn ákveðið hve hár virðisaukaskatturinn verður af þessari starfsemi? Fellur hún undir verslun og þjónustu? Og eru menn búnir að gleyma því að landið er opið. Hvað ef útlendingar vilja koma hingað og stunda vændi án þess að auglýsa það opinberlega? Voru þingmenn sifjaðir þegar þeir ákváðu að díla um að lögleiða vændi gegn því að fyrningarákvæðið yrði með í kaupunum?

Ólíkt hafast þeir að

8. mars 2007 kl. 16.42 | Rita ummæli

Danskir femínistar búa við erfiðari verkefni en íslenskir. Á meðan fólk missir vatn og vinda yfir klámráðstefnum og fermingarbæklingum á fróni, eru verkefnin öllu stærri í sniðum í Danaveldi

Ætli danskir femínistar hafi tíma til að beita sínum kröftum í skrifstofufólk og bæklingahönnuði?

Vanþákklátt starf

7. mars 2007 kl. 15.34 | Rita ummæli

Lögreglan má þola ýmislegt í miðbænum um helgar. Fólk í alls konar ástandi gerir sumt í því að reyna að snapa upp deilur án sýnilegrar ástæðu. Þó að auðvitað þurfi lögreglumenn aðhald í sínum störfum eins og aðrir, verður fólk líka að gera sér grein fyrir því hvernig það er að þola alls kyns fúkyrði og leiðindi helgi eftir helgi án þess að mega svara fyrir sig. Ég fékk að fylgjast með störfum lögreglunnar aðfaranótt Laugardags og afraksturinn má sjá í Íslandi í dag í kvöld og næstu daga.

Breaking news

7. mars 2007 kl. 10.36 | 1 ummæli

Það er alltaf gaman þegar keppinauturinn sér ástæðu til að endurtaka fréttir og fréttahugmyndir. Það hlýtur að vera staðfesting á að maður sé að gera eitthvað rétt. Við Sighvatur Jónsson höfum síðan í október þrisvar sinnum borið saman matar- og áfengisverð í Danmörku og á Íslandi. Þetta hefur lukkast ágætlega, enda eitthvað sem flestir hafa skoðun á, auk þess sem það er vel fallið til útfærslu í sjónvarpi. Hugmyndin náði svo upp í Efstaleiti 1 í gær, sléttum fimm mánuðum eftir fyrstu könnun okkar Hvata. Fréttastofa
allra landsmanna sá ástæðu til að kynna það með pompi og prakt í beinni útsendingu í gær að þeir hefðu ákveðið að endurtaka hugmyndina okkar með sömu niðurstöðu. Spurning hvort fréttastofan sýni beint frá verðkönnun á áfengi í maí?

Tekur fólk eftir þessu?

4. mars 2007 kl. 22.30 | 5 ummæli

Miðað við umfjöllunina og herópin síðustu mánuði hefði mátt ætla að 1.mars færi í sögubækur sem dagurinn þegar Íslendingar hættu að fara með magahnút út úr matvörubúðum. Nú veit ég ekki með ykkur, en ég verð bara hreint ekki var við neitt. Fjármálaráðherra sagði í viðtali við mig á fimmtudaginn að þetta væri lækkun sem Íslenskir neytendur næmu. Um það yrði ekki deilt. Undir það tók verkefnisstjóri Alþýðusambandsins. Er þetta rugl eða eru verðnemarnir mínir bara ónýtir? Ég kom út úr Jóa Fel í morgun og nam ekki neitt. Sömu sögu var að segja í Nóatúni síðdegis. Ég kleip mig í handarbakið til að skoða hvort ég væri nemalaus, en svo reyndist ekki vera. Ég vildi að sársaukanemarnir mínir væru jafnlélegir og verðnemarnir!

Svart að verða hvítt!

4. mars 2007 kl. 18.30 | Rita ummæli

Það snerist allt á hvolf í Silfri Egils í dag. Í öðru horninu, ósigruð til tólf ára….. Sigurður Kári og Jónína Bjartmarz…..í hinu horninu………áskorendurnir, fulltrúar ungu kynslóðarinnar í VG og Samfylkingu. Stjórnmálaumræða á Íslandi er yfirleitt óhugnalega fyrirsjáanleg, en þátturinn í dag var ein af þessum skemmtilegu undantekningum. Hvað gerðist? Jú Sigurður og Jónína fóru að rífast um auðlindamál og Siggi Kári vildi rauða spjaldið á Siv. Hinum megin hnakkrifust Sóley Tómasdóttir og Guðmundur Steigríms um klámið og hvernig ætti að sporna við því. Án þess að ég ætli að gera mér of miklar vonir, gæti þetta verið til marks um vorið í pólitíkinni. Loksins eitthvað óvænt??

Nýtt blogg

4. mars 2007 kl. 11.51 | Rita ummæli

Örir tímar kalla á örar breytingar. Nýtt blogg í nýju umhverfi. http://blogg.visir.is/solvi

Kíkiði þangað……: )

Alla leið takk!

25. febrúar 2007 kl. 11.50 | Rita ummæli

Nú er að verða gaman. Kosningaskjálftinn er kominn á fullt og stjórnmálamenn keppast um hver á stærsta og sterkasta pabbann. Minns er meira á móti klámi en þinns. Skynfæralausir eru einir um að hafa komist hjá því að sjá/heyra/lesa viðtöl við kappsama pólitíkusa sem hafa slegist um að fá að bölva klámráðstefnugestum í fjölmiðlum. Í dag náði kappið nýjum hæðum í formi tillagna að netlögreglu. Stjórnmálamenn sem sitja sveittir við að hugsa upp leiðir til að skáka þessu ættu ekki að örvænta. Komum fyrir örflögu í heilum Íslendinga sem banna klámfengnar hugsanir. Sá sem skellir þessu fram á borðið á pabba sem ekki verður sigraður í sjómann í bráð.

Sló hann í hægri fótinn?

22. febrúar 2007 kl. 11.50 | Rita ummæli

John Arne Riise er einfættasti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni og líklega mætti stækka það mengi til muna. Maðurinn er hreinlega handónýtur með boltann á hægri, svo mjög að það verður á köflum pínlegt. Miðað við tilburðina hingað til mætti leiða að því líkum að það hafi verið svona 1 á móti krónum Hannesar Smára á að hann hitti markið úr færinu sem hann fékk gegn Barca í gær. Var þetta lóttóvinningur ársins, eða barði Bellamy hægri fótinn í lag??

Hola í höggi

21. febrúar 2007 kl. 11.50 | Rita ummæli

Þetta var sætt! Liverpool kenndu Barca að fótbolti snýst um meira en knattrak. Þessi leikur vannst á viljastyrk og dugnaði. Katalóníukettlingarnir voru kæfðir af alvöru mönnum, sem létu það ekki á sig fá þó að þrjatíu sinnum hefði gríski fetaosturinn flautað undan misháu voli heimamanna. Ég held að þessum vælukjóum á norð-austur Spáni veitti ekkert af að fara að taka aðeins í golfkylfurnar á æfingum. Í kvöld mættu drengir karlmönnum!!


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning