Árið er búið að vera viðburðaríkt, ýmislegt hefur á daga okkar drifið…gleði og sorg hefur knúið dyra en ætlunin er að rifja upp skemmtilegar minningar frá árinu 2008!!
Í janúar fór ég með börnin í menningarferð til Reykjavíkur. Ætlunin var að sjá Gosa, ásamt Þórey Örnu og Elmu Hlín. Þetta var hin besta skemmtun þar sem Kristjana vinkona fór á kostum. Á heimleiðinni var komið við í firðinum fagra og fagnað 55.ára afmæli mömmu!
Hápunktar vetramánuða var námskeiðið ,, Karlar í berjamó, konur á hreindýraveiðum,, Þetta var bara snilld þar sem Djarfar dömur slógu algjörlega í gegn…
Í mars var ég með blaðamannafund um borð í Guðmundi í Nesi…stress stress stress, fyrstu niðurstöður kynntar og mikil og jákvæð umfjöllun fór af stað.
Flutningur frá Akureyri til Kópavogs…
Ferming Bryndísar Hrannnar…ótrúlegt að ein af bestu vinkonum sé búin að ferma, maður er frekar seinþroska í þessum efnum!
Endalausar málstofur í skólanum, fyrirlestrar og verkefni…,mis skemmtileg!
Örvar fór í vorskóla í Salaskóla, mikið var ég stolt af skólastráknum mínum.
Varð svo fræg að vera boðuð á fund með heilbrigðisráðherra í ráðherrabústaðnum..
Gæsun Erlu Bjargar…Mótorhjól, hallgrímskirkja, magadans, matur, vín og SVETT! Endalaust gaman…

Í maí rifjaði ég upp gamla takta og átti leiksigur ársins á auglýsingasviðinu hí hí
14. maí var dagurinn…mér tóks að gubba af stressi áður en ég labbaði inn og varði ritgerðina mína, já geri aðrir betur!
Hélt ógleymanlegt innflutning, útskirftar og Eurovisionpartý…

Mætti feimin og sem glænýr starfsmaður á TM daginn þann 7. júní…endalaus gleði var þar við völd, söngur, dans, heiðmörk, grillmatur, vín og ennmeiri dans og söngur var við völd.
14. júní…stór dagur! Ég útskrifaðist sem Meistari í Íþótta- og heilsufræðum, strax eftir það var stokkið uppí flugvél og farið á Akureyri til að ná brúðkaupi Egils og Erlu. Yndislegt brúðkaup þar sem símhringing var valdur að mikilli gleði, ást og hamingja sveif yfir vötnum…mikill gleðidagur sem lengi verður í minnum hafður!
Í lok júní var farið í frí á Hofsós-hótelmömmu, alltaf jafn gott. Það sem stendur uppúr er Jónsmessugangan, yndislegt veður, stuðlabergsgöngutúr, reiðtúrar ásmat öllu hinu…
Að vanda hélt ég uppá afmælið mitt á landsmóti, að þessu sinni var það á Landsmóti hestamanna á Hellu. Bara snilld, lyfjapróf, skemmtilegur félagsskapur, dans, flottir hestar og bjartar sumarnætur!
Um miðjan júlí var komið að því…jú jú ég og Nanna fórum til Portúgals með niðurstöður verkefna okkar. Frábær ráðstefna…vá ég get ekki nefnt neitt eitt…poster, Casino, stress, brjálaður taxadriver, sushi, sólbað, frábærir fyrirlestrar, H&M, sandur, sól, góður matur, frábær ferðafélagi, djamm og endalaus gleði!


Þegar heim var komið tók strax við gæsun Hildu og það var nú meira fjörið, ratleikur, mótorhjól. dans, hlátur, áramótaskaup, þingvellir, pakkar, grifflur, 80 ´s og allt hitt …



Fór í frábæra ferð á Hornstrandir…yndislegur staður. Þetta á ég eftir að gera aftur. Dásemdin ein.
Versó á Úlfljótsvatni með börnunum ásamt Kristjönu og fjölskyldu. Varðeldur, veiði, gönguferð, fótbolti, lítið tjald, mikil rigning, bros……
Haustið = mikil vinna, Leiksólaganga á Rjúpnahæð og skólaganga í Salaskóla.
Brúðkaup Hildu og Sölva…eintóm hamingja og gleði, Ættarmót í Víðihlíð, amma Ída hefði orðið 100 ára þennan dag! Frjálsíþróttaþjálfun hjá Breiðablik, á ferð og flugi í vinnunni (vestmannaeyjar, neskaupstaður, egilsstaðir, vopnafjörður, grindavík, grundarfjörð, Akureyri, akranes, Ísafjörður…svo eitthvað sé nefnt!), Laufskálarétt, Haustferð TM (kúrekaþema!), Sjávarútvegssýning…brjáluð vinna, út að borða með kúnnum, cokkteilboð, róðrakeppni og mikið húllumhæ, Ráðstefnur,(HR, Selfossi, HÍ og fleira…er orðin vel showuð í því að koma fram!!!), Silfurleikar ÍR, endalausir saumaklúbbar, Þrekmeistarinn…frábær ferð, sumarbústaðarferð, Afmælisþemað Sex and the city + Sálin, Jólagleði í Viðey, dásemdarganga á Esjuna, Jóna Rósa og Kristinn eignuðust hann Stefán Bjarna í nóvember, allgjör gullmoli.


Síðast en ekki síst urðu börnin mín einu ári eldri á árinu, ég á sem sagt 4.ára skellibjöllu og 6. ára hugsuð, ásamt því að þau veittu mér óteljandi gleðistundir með ærslagang og gleði á árinu.

Takk fyrir árið 2008! Mikið er ég heppin að eiga svona frábæra vini og ættingja!
…færslan varð lengri en áætlað var í upphafi….hugsa að fáir hafi lesið til enda hí hí en við ykkur hin þá segi ég GLEÐILEG JÓL!
Yfir og út, Sonjan
Héðan úr Rjúpnasölum er allt gott að frétta…ekkert nýtt svosum en alltaf nóg að gera hjá öllum fjölskyldumeðlimum! Á fimmtudaginn var hittingur hjá fyrirtækjasviði TM, farið var í keilu og út að borða. Þetta heppnaðist mjög vel og hér má sjá sigurvegara kvöldsins…
Í dag fóru fram Silfurleikar ÍR, 600 börn að keppa…þokkalegur fjöldi! Ég fór með hóp af Breiðablikskrökkum ásamt Örvari og Selmu. Allir skemmtu sér rosa vel og náðu góðum árangri…Toppurinn var auðvitað verðlaunapeningurinn sem allir fengu fyrir þátttökuna…



Framundan er vinna, vinna og aftur vinna…sem betur fer glyttir svo í jólahlaðborð í Viðey…jey hlakka svo til að éta á mig gat!! Slurp slurp…
Síðan er fyrsti í aðventu næstu helgi…jerimías það verða komin jól áður en ég veit af. Ætla sko að njóta aðventunnar vel í ár…ekkert stress inn á mitt heimili takk fyrir!!
Njótið þess að vera til og verið góð hvert við annað…
yfir og út, Jóhannsdóttir
Greinilegt að ég er ekki að standa mig í að blogga… Hef nú verið að gera ýmislegt undanfarnar vikur þó svo að aðallega hafi verið skrifað um Þrekmeistarann á þessari síðu síðastliðnar vikur…sem sagt það sem ég hef gert fyrir utan það er t.d. unnið mikið, heimsótt Neskaupstað, farið í yndislega sumarbústaðaferð, verið svo fræg að fara á Rjúpu, skoðað Viðgemli, perlað heil óskup, farið í fyrsta foreldraviðtalið í Salaskóla, átt góðar stundir með góðum vinum, verið ákaflega stolt móðir og svona mætti lengi telja…
Í gærkvöldi var ég svo heppin að geta dregið Kristjönu og Þórey Örnu með mér í leikhús, sáum Dauðasyndir. Ég verð að segja að verkið kom mér mjög á óvart, hlóg mjög mikið ásamt því að það náði að snerta hjarta mitt…Gott að rifja aðeins upp hverjar þessar umræddu dauðasyndir eru, jú það er víst LOSTI, ÓHÓF, GRÆÐGI, LETI, REIÐI, ÖFUND og STOLT…varið ykkur á þeim!! Þetta má lesa um verkið á heimasíðu Borgarleikhússins…
Dauðasyndirnar er frjálsleg túlkun á Guðdómlegum gamanleik Dantes, stórkostleg trúðasýning fyrir fullorðna sem fjallar um hinn eilífa vanda manneskjunnar - að lifa. Fjórir trúðar segja sögu Dantes í leit hans að Paradís, en leiðin þangað liggur, illu heilli, í gegnum Helvíti og hreinsunareldinn. Sagan er margbrotin sjálfskoðun sem gefur áhorfandanum færi á að spegla sig í mannlegu eðli og eiginleikum, hlæja, gráta og hrífast.
Dauðsyndirnar fékk fádæma góðar viðtökur gagnrýnenda og áhorfenda á síðasta leikári og var stútuppselt á allar sýningar í vor. Verkið er undirbúinn spuni og því engar tvær sýningar eins. Leiktextinn er eftir hópinn en þó er ekki hægt að útiloka að inn slæðist brot úr heimsbókmenntunum og kunnuglegar tilvitnanir í lifandi og dauða.
“Ég var alveg orðin tvöföld í sætinu af hlátri …” “… sýningin er dýrleg leikhúsreynsla …”
S.A. TMM
“Sýningin er bráðfyndin og skemmtileg en með háalvarlegum tóni.”
Þ. Morgunblaðið
“Fyrsta flokks.” “Ekki missa af Dauðasyndunum.”
P. B. B. Fréttablaðið
Allavega þá mæli ég hiklaust með þessu verki….
Eftir sýningu var náttúrelga ,,möst,, að setjast niður og krifja sýninguna og önnur mikilvæg málefni! Margt bara á góma…en ég verð að segja að umræðan um að ,,sletta í einn kreppukrakka,, var ekki alveg að ná mér ha ha ha TAKK ELSKU VINKONUR FYRIR SKEMMTILEGA KVÖLDSTUND!
Fékk símtal í gærkvöldi um að mæta á Sólon…svekkjandi að komast ekki, búin að ná því að það er ekki hægt að vera allsstaðar!!! Vona að ég hitti ykkur fljótlega…hvað verður Katlan lengi á klakanum???
Hætt í bili….yfir og út, Jóhannsdóttir
Mikið afskaplega er ég sátt með helgina. Ég og krakkarnir flugum noður eftir kvöldmat á föstudagskvöld og fórum beint til Helgu Svövu og co. þar sem við fengum að gista. Krakkarnir léku sér saman á meðan við fullorðna fólkið kjaftaði. Laugardagurinn var virkilega skemmtilegur, byrjði á sameiginlegum morgunmat, keppnisfundur og svo byrjaði keppnin. Því er ekki að neita að það var pínulítið stress í mannskapnum…einungis 9 lið mætt til keppni og allt sterk lið. Við gerðum okkar besta og náðum sjötta sætinu, við gétum ekki annað en verið stoltar. Fyrsta skipti sem við keppum og margt sem fór úrskeiðis sem hægt er að laga…þannig að við sjáum fram á miklar bætingar með vorinu J Það sem við vorum frekar mikið glaðar með var að vinna eitt Boot Camp lið og svo stjörnuprítt lið Guggurnar sem er lið úr World Class!!! Nú er bara að æfa áfram og vera með í næstu Þrekmeistarakeppni sem verður með vorinu….je je je
Liðhlaupinn okkar hún Helena Ósk stóð sig eins og hetja og lenti í 3. sæti í einstaklingnum og hennar lið vann svo liðakeppnina. Innilega til hamingju J
Hins vegar er það alveg á hreinu að við unnum stílistakeppnina og svo auðvitað danskeppnina á djamminu sem við tókum með trompi!! Ég dansaði eins og enginn væri morgundagurinn… ohh hvað þetta var gaman, hárgreiðsluleikurinn, keppnin, fagnaðarópið, sundferðin, ormurinn, dansinn og verðlaunaafhendingin innan liðs þar sem hver liðsmaður fékk ákveðna nafnbót eftir val þjálfara og nuddara:
Melkorka-Gleymska helgarinnar…ekki gott að gleyma hlaupaskónum!!
Vaka-Kreppu move helgarinnar…snilli!!!
Siffa- Fall helgarinnar…datt í uppstiginu, meiddi sig sem betur fer ekki og þá má hlægja að þessu J
Erna- Húmoristi helgarinnar…ha ha ha ,,farðu ekki að grenja,,
Sonja- Kroppur helgarinnar…ha ha ha þarf náttúelga ekki að útskýra það!!!!!!!!
Mikið var um fleygar setningar sem lengi verða í minnum hafðar…held að þessi sé samt best ,,Hvaðan komstu? Þú ert guðdómlega fallegur…þú ert eins og vorið,,… jabbb getið nú hver átti þessa yndislegu setningu…ha ha ha úhú Vorið er komið og grundirnar gróa….
Mikið var þetta gaman í alla staði…skemmti mér ótrúlega vel!!!! Vaka, Siffa, Erna, Melkorka, Jane og Jónína, takk fyrir frábæra helgi. Þið eruð yndislegar J Siffa enn og aftur takk fyrir allt…gistingu, skutl og allt hitt.

Greiðslan

Tilbúnar í átökin…

Sætar…

Öflugt stuðninglið…
Áfram HELLO KITTY
Setti inn fleiri myndir inn á Facebook síðuna…endilega kíkið á fegurðina J
LUV YAAAAAAA, Sonjan liðsmaður 2
Halldór Laxness á tilvitnun við hvert tækifæri. Þessi er úr Heimsljósi. Orðin sjötíu ára gömul en hittir beint í mark.
“Vinur, sagði Annar Heldrimaður og faðmaði skáldið. Það er búið að loka
Bánkanum. Einglendíngar hafa lokað Bánkanum. Það var og, sagði skáldið. Og
hvernig stendur á því að einglendíngar hafa lokað Bánkanum, sagði Annar
Heldrimaður. Það er af því að það eru aungvir peníngar leingur í Bánkanum.
Júel er búinn að tæma Bánkann. Júel er búinn að sólunda öllu því fé sem
einglendíngar lánuðu þessari ógæfusömu þjóð af hjartagæsku. Júel hefur
sökt öllu fé einglendínga útí hafsauga. Þessvegna er búið að loka
Bánkanum.”
jeeee það er kominn föstudagur og ég er á leið á Akureyri…endalaust gaman!
Verið góð við hvert annað og njótið helgarinnar…
Kveðja, Sonjan
Nú er við tilbúnar!! Búnar að græja allt…keppnisbúningar, s.s. boli, peysur, hárskraut, eyrnalokka, naglalakk og ég veit ekki hvað og hvað!!! Við hljótum allavega að vinna stílista verðlaun keppninnar ha ha ha. Erum allar voðalega spenntar og hlökkum mikið til að fara noður og skemmta okkur saman


Þetta er liðið - Siffa en + Nuddari, sjúkraþjálfari, þjálfari og liðhlaupi
Tjá tjá!!
…elsku Jóna Rósa, Kristinn og Bryndís innilega til hamingju með gullmolann sem fæddist í morgun! get ekki beðið eftir að fá að sjá hann og knúsa
LUV, Sonja
Helgin er búin að vera afskaplega góð, enda heilsuhelgi II á stuttum tíma…enda ekki seinna vænna þar sem Þrekmeistarinn er næsta laugardag :-/
Á föstudaginn átti pabbi gamli afmæli, til hamingju með það gamli minn. Eitt ár í tugina sex….
Eftir vinnu á föstudag drifum við Erna okkur í ræktina og Siffa gerði sér lítið fyrir og dreif sig með okkur. Við tókum góða æfingu, tókum tíman á okkur í okkar greinum og vorum bara afskaplega sáttar
Ég og Erna fengum okkur svo að borða ekta hollustu mat og drifum okkur svo heim til að horfa á Sálina í heimsókn hjá Loga. Góður þáttur! Það sem verður að teljast merkilegt er að við Erna stilltum okkur um að að drífa okkur á hverfispöbbinn þar sem Sálin var að spila…en djö…. langaði okkur!!!
Laugardagurinn byrjaði með trompi 4/5 af Team Hello Kitty var mætt eldsnemma í Laugar og tók síðustu ,,samæfingu,, fyrir mót! Þetta tókst bara vel, allir ennþá að bæta sig þannig að þetta er hið besta mál…svo er bara að TOPPA á réttum tíma
Eftir æfingu dreif ég mig með Elínu Grétu í spaið í Laugum, notuðum loksins gjafabréfin okkar…Mikið var þetta dásamlegt, gæti alveg vanist því að gera þetta mánaðarlega
Ég, Hilda, Sölvi, Inga Heiða, Amý, Einar og Steinar borðuðum saman heima hjá Hildu og co og svo drifum við okkur á Hofsósingaskrall uppí Grafavogi. Gaman að sjá allt þetta fólk sem ég hef ekki séð mjög mjög lengi sbr. Guðna skólastjóra sem ég hef örugglega ekki séð í 20 ár ha ha og hann þekkti mig og byrjaði á því að óska mér til hamingju með pabba gamala sem átti afmæli á föstudaginn…jabbb þetta mundi Guðni!!!!! Ég stoppaði nú ekki lengi í samkvæminu, dreif mig heim og safnaði orku fyrir átök komandi daga.
Í dag var frjálsíþróttamót hjá Breiðaablik og þangað mætti ég sem þjálfari og móðir… hí hí það var gaman að upplifa það. Krakkarnir stóðu sig allir með sóma og ég var afskaplega stolt af þeim. Örvar keppti á sínu fyrsta frjálsíþróttamóti og fannst æði


Sáttur
Vona að þið hin hafið átt góða helgi!
yfir og út, Jóhannsdóttir
Góður dagur að baki! Vetrarfrí hjá Örvari og Selmu og þau máttu ráðstafa deginum og fyrir valinu var ,,að fara að renna sér og baka bananabrauð,,!! Mér fannst þetta ótrúlega vel valið. Myndirnar tala sínu máli…





…frekar gaman að hafa þennan snjó!!
Dagurinn í gær var ansi pakkaður en ég gaf mér þó tíma til að kíkja aðeins í ,,masterssaumaklúbb,, til Svandísar…ummm dásamleg húsmóðir hún Svandís, át á mig gat af allskonar kræsingum og ekki klikkaði franska súkkulaðikakan
Takk fyrir skemmtilega kvöldstund stúlkur.
Síðan er það frétt dagsins, það er víst búið að hætta við að fresta Þrekmeistaranum…þannig að nú er bara að innstilla hausinn inn á þetta aftur og taka almennilega á því!!!
…annars er nú lítið nýtt!
Yfir og út, Jóhannsdóttir
p.s. Stúlkur kíkið á þessa frétta: http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/10/31/ad_taka_hraustlega_a_thvi_minnkar_likur_a_brjostakr/
Ég finn það gegnum netið
að ég kemst ekki inn
á bankareikninginn,
en ég veit að það er gæi
sem geymir aurinn minn,
sem gætir alls míns fjár,
og er svo fjandi klár,
kann fjármál upp á hár,
býður hæstu vextina,
og jólagjöf hvert ár.
Ég veit hann axlar ábyrgð,
en vælir ekki neitt,
fær þess vegna vel greitt,
hendur hans svo hvítþvegnar
og hárið aftursleikt.
Þó segi’ í blöðunum
frá bankagjaldþrotum
hann fullvissar mig um:
Það er engin áhætta
í markaðssjóðunum.
Ég veit að þessi gæi
er vel að sér og vís;
í skattaparadís
á hann eflaust fúlgur fjár,
ef hann kemst á hálan ís.
Því oftast er það sá,
sem minnstan pening á,
sem skuldin endar hjá. -
Fáir slökkva eldana,
sem fyrstir kveikja þá.
Sonjan