Færslur febrúar 2008

OFURBJARTSÝNI, NORÐURSLÓÐIR OG JARÐARHLÝNUN

29. febrúar 2008

John Gray segir um glópa glóbalíseringarinnar að þeir séu “…wildly optimistic about the future.” Seint verður Trausti Valsson sakaður um svartsýni, öðru nær. Því til sannindamerkis má nefna að hann sér hlýnun jarðar í rósrauðum litum. Hlýnunin mun vissulega hafa slæm áhrif á suðurhveli jarðar en góð á norðlægum slóðum, ekki síst Íslandi, segir hann. [...]

ENN UM KASTRÓ

27. febrúar 2008

Sumir virðast telja að ég dreifi e.k. gróusögum um Fidel Kastró. Þeir virðast ekki sjá að ég tala klárlega í viðtengingarhætti þegar ég vitna í ýmsar heilmildir um karlinn. Ég geri lítið annað en að vitna í aðra og reyni að líta á málið frá ýmsum hliðum. Ég hef t.d.ekki hugmynd um hvort Kastró og [...]

KASTRÓ, KÚBUJÖFUR

26. febrúar 2008

Fáa menn hafa vinstrisósíalistar dýrkað með sama ákafa og Fidel Kastró. Skynsamasta fólk fellir froðu af hrifningu er nafn hans ber á góma eða gargar hátt um hina réttlátu skipan Kastró. Á Kúbu séu nefnilega allir svo voða jafnir. Ekki er nú jöfnuðurinn meiri en svo að samkvæmt fréttum í fyrra dvaldi hann veikur á [...]

ÓSKARSVERÐLAUNIN

25. febrúar 2008

Ég sá Skara fyrst í beinni vestur í Ohio árið 1972, þá átján vetra gemlingur. French Connection var kjörin besta mynd ársins og sá kúli djúd Isaac Hayes spilaði lagið úr myndinni með miklum tilþrifum. Chaplin fékk heiðursverðlaun fyrir lífsstarf og var vel að þeim kominn. Það flokkaðist undir stórtíðindi á þessum árum að hafa [...]

BNA: EKKI LENGUR LAND MÖGULEIKA

24. febrúar 2008

Ýmsar rannsóknarstofnanir vestan hafs, þeirra á meðal frjálshyggjustofnunin Heritage Foundation, hafa staðið að rannsókn á félagslegum hreyfanleika í Bandaríkjunum og má finna niðurstöðurnar á þessari slóð: http://www.economicmobility.org/. Rannsóknin staðfestir það sem fyrri rannsóknir sýna, nefnilega að Bandaríkin eru ekki lengur land möguleikanna. Félagslegur hreyfanleiki er meiri í velferðaríkjum en í gósenlöndum frjálshyggjunnar, Bandaríkjunum [...]

INGRID JONKER, SUÐURAFRÍSK SKÁLDKONA

22. febrúar 2008

Lágt gengi ljóða í nútímasamfélagi hefur sína kosti fyrir okkur ljóðunnendur. Oft má kaupa afbragðsljóðabækur fyrir slikk í bókabúðum, alla vega hér í Noregi. Ég renn oft blint í sjóinn í ljóðabókakaupum, keypti nýlega ljóðabók eftir suðurafrísku skáldskonuna Ingrid Jonker. Ekki sá ég eftir þeim kaupum, ljóðin verulega góð og minntu mig á Sylviu Plath [...]

JÖFNUN OG RÍKIS-“AFSKIPTI”

21. febrúar 2008

“Þótt náttúran sé laminn með lurk, leitar hún út um síðir” sagði rómverska skáldið Hóras og frjálshyggjuhagfræðingar taka undir. Þeir hafa löngum upplýst (niðurlýst?) okkur um að tilgangslaust sé að reyna að jafna kjör manna fyrir tilstuðlan ríkisins. Það sé eins og að reyna að berjast gegn því að vatnið streymi niður á móti, [...]

STEIKUR Á HVOLFI

19. febrúar 2008

Um vinstrinasista á borð við Ernst Röhm, SA-foringja, var sagt að þeir væru steikur, brúnir að utan en rauðir að innan. Þeir kröfðust byltingar númer tvö, sósíalískrar byltingar í kjölfar þess sem þeir kölluðu “þjóðlegu byltinguna”, þ.e. valdatöku nasista. Hitler vildi ekki heyra á þetta minnst, þegar um 1930 var ljóst að hann var enginn [...]

Baggalútur, Net-Matthildur

19. febrúar 2008

Þeir lesenda sem komnir eru á miðjan aldur muna sjálfssagt hin stórgóða útvarpsgrínþátt Matthildi en að honum stóðu þeir Þórarinn Eldjárn, Hrafn Gunnlaugsson og Davíð Oddsson (!!!!!). Baggalútur er svar Nettímans við Matthildi, ugglaust fyndnasta vefsíða landsins. Best er þó hin ótrúlega hæfni Baggalútarbræðra að beita allra handa afbrigðum tungunnar, þeir skauta áreynslulaust milli forníslensku [...]

SJÁLFSSTÆÐI SEÐLABANKA?

15. febrúar 2008

Sölmundur Karl Pálsson mun vera ritsjóri politik.is, vefjar ungra jafnaðarmanna. Hann skrifaði prýðilegan pistil í Mogga nýlega um Seðlabankann en honum fannst ónefndur seðlabankastjóri í uppivöðslusamasta lagi. Lausnin á vandanum er að gera bankann óháðan stjórnmálunum, láta ópólitíska hagfræðinga stjórna honum, segir ungkratinn. En Sölmundur hefði átt að lesa pistil Joseph Stiglitz um seðlabankamál. Stiglitz [...]


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning