Færslur mars 2008
31. mars 2008
Ég sá á laugardagskvöldið ansi skemmtilegan þátt um “hljómsveitina” The Monkees sem búinn var til í kringum sjónvarpsþáttaröð fyrir rúmum fjörutíu árum. Auglýst var eftir fjórum strákum sem áttu að leika popphljómsveit í þáttunum. Þegar upptökur á tónlist þeirra hófst uppgötvuðu strákarnir í Monkees að þeir fengu ekki að spila, aðeins syngja, hvað þá semja [...]
Fært undir Fjölmiðlar, Menning og listir | Engin ummæli »
29. mars 2008
Atli Harðarson heitir maður og er giska klár heimspekingur. En hann hefur einn galla, hann þjáist af frjálshyggju. Gallinn kom m.a. í ljós í Lesbókargrein fyrir allnokkrum árum þar sem Atli söng hnattvæðingunni lof og dýrð. Þeir sem væru móti hnattvæðingunni eru minnipokamann, sagði Atli. Kannski Atli vilji skella sér til Englands og segja hinum [...]
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Menning og listir, Stjórnmál | Engin ummæli »
28. mars 2008
Mér láðist að ræða um ýmsar hliðar hinna alþjóðlegu fréttatímarita í bloggi mínu um þau fyrr í vetur. Fyrir nokkrum árum birtist lesendabréf í helgitímaritinu The Economist þar sem tímaritið var snuprað fyrir dómgirni og þörf fyrir að segja allra handa þjóðum fyrir verkum, þjóðum sem blaðamennirnir varla þekkja. Þeir sitja Friedman [...]
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Menning og listir, Stjórnmál | Engin ummæli »
27. mars 2008
Er mönnum borgið í borgum? Svo töldu Þjóðverjar á miðöldum en þeir sögðu “Stadtluft macht Frei”, “bæjarloftið gerir menn frjálsa”. Í bæjunum bjuggu menn í vari fyrir yfirgangi lénsherra sem réðu landsbyggðinni. En auðvitað var frelsinu þröngur stakkur skorinn í miðaldabæjum, sumir réðu miklu, pöbullinn litlu sem engu. Auk þess er engan veginn víst að [...]
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Menning og listir, Stjórnmál | Engin ummæli »
26. mars 2008
Í áðurnefndum ritdómi sagði séra Baldur að hægrimenn sæju um eflingu atvinnulífs, vinstrimenn um jöfnuðinn. En hvernig víkur því við að efnahagslíf á Norðurlöndum er með blómlegasta sem um getur á jarðarkringlunni, um leið er jöfnuður þar meiri en víða annars staðar? Og hvernig hyggst guðsmaðurinn skýra afrek Lula, Brasilíuforseta? Svo er mál með vexti [...]
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Menning og listir, Stjórnmál | 1 ummæli »
26. mars 2008
Í gær barst mér nýjasta eintak Herðubreiðar og kennir þar margra grasa, þar á meðal greinar eftir undirritaðan um lýðræðisfjandskap frjálshyggjunnar. Séra Baldur Kristjánsson skrifar einkar skemmtilegan ritdóm um ævisögu Guðna Ágústssonar og kallar “Guð(na)spjallið”. Baldur mælir margt viturlegt um Framsóknarflokkinn og (van)þróun hans, ég hvet áhugamenn um íslensks stjórnmál að lesa ummæli klerksins. En [...]
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Menning og listir, Stjórnmál | Engin ummæli »
25. mars 2008
Árni nokkur Snævarr ræðir í eyjabloggi um ofsóknir Styrmis Gunnarssonar á hendur Ingibjargar Sólrúnar og líkir þeim við ofsóknir Vilmundar Gylfasonar í fjölmiðlum á hendur nágranna síns á Aragötunni, Ólafs Jóhannessonar. Nefna má að Vilmundur notaði fjölmiðla til að ofsækja fleiri nágranna á sömu götu. En hann má eiga að hann skrifaði af góðu viti [...]
Fært undir Menning og listir, Stjórnmál | Engin ummæli »
24. mars 2008
Í gær sá ég ágæta sýningu á grafíkverkum Pablo Picassos, mér hefur altaf líkað afarvel við grafík hans og teikningar. Spænski listamaðurinn var með þeim ósköpum fæddur að skipta einatt um stíl er hann skipti um viðhald. Því skipti hann æði oft um stíl enda illræmdur kvennabósi!
Ekki veit ég hvort þeir Picasso og Þorsteinn frá [...]
Fært undir Menning og listir | Engin ummæli »
22. mars 2008
Heill þér Þorsteinn, skáldjöfur ísalands, merkisbera hefðanna, völundar tungunnar! Heill þér sjötugum, síungum, horskum hugsuði er sameinar visku og kenndir í haglega kveðnum kvæðum! Megi þú verða allra karla elstur, megi ljóð þín lifa um aldur og ævi!
Fært undir Menning og listir | Engin ummæli »
20. mars 2008
Mönnum ber nú saman um að alþjóðlega fjármálakreppan sé sú versta síðan í kreppunni miklu. Þetta gerist í kjölfar mestu markaðsvæðingar sögunnar. Er von að maður spyrji: Af hverju varð ekki svona alvarleg kreppa á blómaskeiði ríkisafskiptanna, 1945-1980? Með þessu móti er ekki sagt að aukið markaðsfrelsi hafi orsakað núverandi kreppu, aðeins að frjálshyggjumenn verða [...]
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Menning og listir, Stjórnmál | Engin ummæli »