Færslur apríl 2008

OPHRA WINFREY OG NÝJA BÓKIN MÍN

30. apríl 2008

Ég er maður hógvær og í hjarta lítilátur. Þess vegna hef ekki ég notað þessa bloggsíðu til að auglýsa mín margháttuðu andlegu afrek. En nú hyggst ég bregða út af vana mínum, taka mér smá frí frá lítillætinu. Svo er mál með vexti að í gær gaf Fagbokforlaget í Björgvin út bók mína
Kunstfilosofi. En [...]

NÍSKA SEM FEGURÐARGJAFI

28. apríl 2008

Eins og ég hef margtuggið í þessum bloggum þá eru Norðmenn búmenn góðir, öllu samhaldssamari en frændur þeirra, Íslendingar. Ekki þarf mikið til. Gætni Nojara í fjármálum veldur því að þeir þurfa ekki að vinna myrkranna á milli til að hafa ofan af fyrir sér. Þeir hafa því nógan tíma til að hreyfa á sér [...]

STURLUNGA-VÖRUBÍLAÖLD

28. apríl 2008

Sem frægt er orðið eru vörubílsstjórar í miklum vígahug og höggva mann og annan. Fyrir þeim fer Sturla nokkur Jónsson. Skyldi hann vera afkomandi Sturlunga? Svipur með honum og Sturlu Sighvatssyni, þeim mikla vígamanni.

I’M NOT THERE (DYLANMYNDIN)

27. apríl 2008

Dylan er hér
Dylan var þar
Dylan er allir, alls staðar.
Dylan er ekki hér
Dylan var ekki þar
Dylan er enginn, neins staðar.

LOF NÍSKUNNAR

25. apríl 2008

Íslendingum þykja aðrar þjóðir, ekki síst hinar Norðurlandaþjóðirnar í nískasta lagi. Sá er nefnilega plagsiður þessara þjóða að eyða ekki um efni fram og þykir Íslendingum slíkt merki um kúlleysi af verri taginu. Óráðsía og ábyrgðarleysi er kúl, hot og inn á ísaköldu landi. En ef mörlandinn hugsað einhvern tímann þá myndi hann kannski skilja [...]

ÍHALDIÐ OG ESB

24. apríl 2008

Ingibjörg Sórún er sem frægt er orðið mikill húmoristi. Hún sagði nýlega að Sjálfsstæðismenn vildu ekki að Ísland gengi í ESB vegna þess að þeir væru svo miklir þjóðernissinnar. En utanríkisráðherra talar ljóslega á írónískum nótum, notar “þjóðernissinnar” í merkingunni “attaníossar Bandaríkjanna”. Sjálfstæðismenn hafa sem kunnugt er löngum barist fyrir sjálfsstæði BNA.

MANTRA HINS ÍSLENSKA PANCHEM LAMA

22. apríl 2008

Frjáls markaður reddar öllu
Frjáls markaður reddar öllu
Frjáls markaður reddar öllu
Frjáls markaður reddar öllu
Frjáls markaður reddar öllu
Frjáls markaður reddar öllu
Frjáls markaður reddar öllu
Frjáls markaður reddar öllu
Frjáls markaður reddar öllu
(endurtekið níu sinnum því níu er heilög tala)

ABBAS ABBAST UPP Á FÓLK

22. apríl 2008

Þegar Yitzak Rabin, þáverandi forsætisráðherra Ísraels, sótti Ísland heim fyrir hartnær tveimur áratugum vildu íslenskir stjórnmálamenn helst ekkert hafa af honum að segja. En þegar Mahmoud Abbas kemur hingað í heimsókn þá er honum tekið með kostum og kynjum. Það fylgir sögunni að austurískt blað skýrði frá því í fyrra sumar að Abbas hefði borgað [...]

GÆSALAPPALEYSINGJAR

21. apríl 2008

Einhverju sinni söng Megas um hana Grísalappalísu. Ég aftur á móti kveð um gæsalappaleysingjana í hægriarmi Samfó, þeim láist að setja gæsalappir utan um orð á borð við “markaðsfrelsi”. Þeir halda í barnslegri einfeldni sinni að frjálslynd jafnaðarstefna sé frjálshyggja “light”. Þeim væri nær að kynna sér kenningar fræðimanna á borð við Anthony Giddens, [...]

UM ÓÞARFA ÓLÉTTU AUÐVALDSINS

19. apríl 2008

Karl Marx sagði að kapítalisminn gengi með kommúnismann undir belti. Móðirinn varð léttari löngu eftir dauða Marx, afkvæmið andvana fætt.


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning