Færslur maí 2008

BRUCKNER GEGN BURUMA

31. maí 2008

Svo er mál með vexti að hér í Lillehammer fer fram mikil bókmenntahátíð. Fór ég í gær að hlusta á tvo þekkta menningarvita deila, franska heimspekinginn Pascal Bruckner og bresk-hollenska skribentinn Ian Buruma. Bruckner er einn þeirra hugsuða sem telur að Vesturlöndum stafi ógn af róttækum íslamistum, jafnvel af íslam. Hann átelur vestræna menntamenn fyrir [...]

STALÍN VAR KALINN Á HJARTA

28. maí 2008

Ég las nýlega bók Simon Sebag Montefiore um hinn unga Stalín. Bókin er brautryðjendaverk,æska Stalíns hefur verið lítt könnuð. Í ljós kemur að hann er sonur skósmiðs og konu sem var forkunnarfögur og forkur duglegur. Þau hjón eru framan af sæmilega stöndug en svo tekur karlinn að gerast mjög drykkfelldur og ber bæði son og [...]

REKTOR OG RANNSÓKNIRNAR

27. maí 2008

Sem kunnugt er hélt Kristín rektor Ingólfsdóttir því fram að ástæðan fyrir meiri hagvexti í BNA en í Vestur-Evrópu væri meira fjárframlag Kana til rannsókna. En eins og áður segir í bloggi bendir margt til þess að aðalástæðan sé sú að Bandaríkjamenn vinna miklu meira. Eða hvernig hyggst rektor skýra þá staðreynd að það hefur [...]

FRÁ HENDRIX TIL FRIEDMANS

26. maí 2008

Á því sögufræga ári 1968 söng Jimi Hendrix lag sem bar heitið 1983, into a merman I shall turn to be. Ekki varð hann marmenni árið 1983 nema kannski handanheims, hann drapst löngu fyrr. En marmennaárið mikla urðu Íslendingar friedmenni og hafa verið það síðan. Þá gisti nefnilega hans heilagleiki Milton Friedman Ísland og var [...]

FRÁ HENDRIX TIL FRIEDMANS

26. maí 2008

Á því sögufræga ári 1968 söng Jimi Hendrix lag sem bar heitið 1983, into a merman I shall turn to be. Ekki varð hann marmenni árið 1983 nema kannski handanheims, hann drapst löngu fyrr. En marmennaárið urðu Íslendingar friedmenni og hafa verið það síðan. Þá gisti nefnilega hans heilagleiki Milton Friedman Ísland og var markaðssettur [...]

Evruvisjón: L’Armenie douze points!

25. maí 2008

Söngvakeppninni evrópsku lauk sem frægt er orðið með fræknum sigri Rússa. Loksins voru þeir verðlaunaðir fyrir heimsvaldastefnu sína, án hennar væru nágrannalöndin ekki belgfull af Rússum og Rússadindlum sem greiða atkvæði með herraþjóðinni. Atkvæðagreiðslan í söngvakeppninni er ekkert annað en kennslustund í landa- og sagnfræði, Aserar greiða atkvæði með frændum sínum Tyrkjum en ekki erkióvinunum [...]

BUSINESS ER BÚSTÓLPI, LANDSSTÓLPI, HEIMSSTÓLPI-eða hvað?

25. maí 2008

Einhverju sinni kvað Jónas Hallgrímsson “bóndi er bústólpi, bú er landstólpi”. Íslendingar höfðu lengi rörsýn á landbúnaðinn, hann hlyti að vera burðarás efnahagslífsins. Meira að segja Alþýðuflokksmenn munu hafa lagt til að stríðsgróðinn yrði notaður til að efla landbúnaðinn. En honum var dælt í sjávarútveginn, þá upphófst það skeið Íslandssögunnar sem kenna má við ofurveldi [...]

THE ECONOMIST OG FRELSISÁSTIN

24. maí 2008

Frjálshyggjuáróðursritið The Economist mun hafa hvatt Mikael Gorbasjov til að koma á einræði í anda Pinochet til að markaðsvæða Sovétríkin þáverandi. Bar greinin um efnið yfirskriftina “Michael Sergevich Pinochet”.
Það fylgir sögunni að kommúnistar töldu líka að einræði væri réttanlegt til að koma á hinu eina rétta efnahagskerfi.

TIL VARNAR FÉLAGSFRÆÐI

23. maí 2008

Frjálshyggjumönnum og þeirra attaníossum finnst einkar gaman að hnýta í félagsfræði. Hún er talinn býsna vond fræðigrein, hálfgert kommafag, gagnstætt hinni hávísindalegu hagfræði. En eins og ég hef marg tuggið jafnt í ræðu sem riti þá stendur hagfræðin á brauðfótum. Illmögulegt er að prófa kenningar hennar þrátt fyrir hin glæsta stærðfræðilega búning. Ekki bætir úr [...]

DÚLLULEGUR VARAFORMAÐUR

22. maí 2008

Heyrði á skotspónum að rosknum konum þætti Ágúst Ólafur agaleg dúlla. “Hefur hver sér til ágætis nokkuð”.


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning