Færslur júní 2008

FJÓRTÁN MÁNUÐI ÁRSINS

28. júní 2008

Norðmenn vinna að jafnaði 1400 stundir á ári, Íslendingar 1800 stundir eða tveimur mánuðum lengur. Þýðir það að íslenska árið sé tveim mánuðum lengra en hið norska? Það eru tólf mánuðir í norska árinu, eru þá fjórtán í hinu íslenska?

STYÐUR SCHWARZENEGGER OBAMA?

26. júní 2008

Mér var sagt í gærkvöldi að sú saga gengi fjöllunum hærra vestanhafs að Arnaldur frá Svörtueggjum styddi Obama. Skyldi hann segja við flokksbróður sinn McCain “hasta la vista, baby”? Hvað sem því líður hefur Schwarzenegger bjargað heiðri þýsks hreims og gert hann kúlan. Lengi vel var þýskur hreimur annað hvort hlægilegur eða óhugnanlegur. Segið svo [...]

LÆKNAST AF SPÖNSKU VEIKINNI? Spánn sigrar Ítalíu

23. júní 2008

Mikill undur og stórmerki! Spánverjar lögðu Ítali eftir vítaspyrnukeppni og það á óheilladeginum tuttugasta og öðrum júní en á þeim degi hafa þeir þrívegis dottið út úr stórkeppnum. Kannski að fundist hafi lyf við spönsku veikinni eins og hún artar sig á fótboltavelli.

EVRUR, ENGAR REFJUR!

11. júní 2008

Glámur í Grettissögu var hundheiðinn sænskur vinnumaður hjá kristnum íslenskum bónda. Rétt fyrir jól átti heimilisfólkið að fasta Hvíta-Kristi til dýrðar. En Glámur var aldeilis ekki á því, hann heimtaði mat sinn og engar refjur. Nú heimta margir evrur og engar refjur. Vonandi eru þeir ekki glámskyggnir.

HVERS VEGNA VERÐA PORTÚGALAR EKKI EVRÓPUMEISTARAR?

10. júní 2008

Það er kunnara en frá þurfi að segja að þjóðareðli endurspeglast í íþróttum, ekki síst fótbolta. Þjóðverjar og Svíar eru vel skipulagðir og agaðar jafnt í einkalífinu sem á vellinum. Danir sýna meiri leikgleði en aðrar Norðurlandaþjóðir bæði prívat og í knattspyrnu. Hrokinn verður Frökkum oft að falli á báðum sviðum og skortur Spánverja á [...]

HERNAÐARUMSVIFAHYGGJA

9. júní 2008

Kristrún Heimisdóttir kvartaði yfir því í Fréttablaðinu nýlega að tiltekinn vinstrigrænn pólitíkus væri farinn að tala um svonefnd varnarmál í kaldastríðstóni. Kristrún gleymir því að hægrimenn hafa aldrei hætt að tala um þessi mál í þeim leiðindatóni. Til dæmis sagði Ólafur Stephensen í leiðara í Tuttuguogfjórumstundum að herstöðvarandstæðingurinn Skúli Pálsson skildi ekki hve nauðsynlega herveran [...]

FÍNAR GREINAR EFTIR KARL BLÖNDAL

8. júní 2008

Ég hef lítið gert af því að hrósa íslenskum blaðamönnum, öðru nær. En Karl Blöndal á Mogganum á heiður skilið fyrir afar læsilegar greinar um þýska rannsóknarblaðamanninn Günther Wallraf og um þá fögru borg Nice hvar undirritaður dvaldi í þrjá mánuði fyrir þremur árum. Meira svona, Kalli!!

SVARTUR FORSETI

5. júní 2008

Fyrir fjörutíu árum síðan, þá tæpra fimmtán vetra, las ég amerískan reyfari sem fjallaði um fyrsta svarta forseta BNA. Hann átti upprunalega að hafa verið þingforseti en svo hrukku forsetinn og varaforsetinn upp og svarti senþjófurinn varð forseti. Forsetatíðin var náttúrulega erfið, ekki vantaði vonda rasista sem voru þrándar í hans götu. En allt fór [...]

Já, við getum það!

5. júní 2008

Blakkir prestar vestanhafs eru einatt mælskir og er Jesse Jackson engin undantekning. Í kosningaræðu árið 1988 sagði (hrópaði!) hann: “We have gone from the outhouse to the main house, we can go from the main house to the White house”. Ég bæti við í anda Obama: “yes, we can!”

HEILL HILLARY!

4. júní 2008

Hillary Clinton hefur vaxið mjög í mínum huga í þessari kosningabaráttu. Mér fannst hún virka svo lítið varasöm áður, Bill án sjarma og pólitísks nefs, þótt eldklár væri og greinilega gædd stjórnunarhæfileikum. En hún sýndi snemma einlægan áhuga á því að bæta heilsugæsluna ameríska og er ekki vanþörf á. Hefði tillaga Clintonhjónanna um altæka, opinbera [...]


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning