BLOGGI UM DRÖFN ÖSP GJÖRBREYTT. Nú fá skætingsbloggarar á baukinn í staðinn
Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að þurrka þetta blogg að mestu út, ég sé að ég hef verið full harðorður við Dröfn Ösp. Í ljós kemur að hún er greind vel og prýðileg íslenskukona. En ég hefði kosið að hún bloggaði með öðrum hætti, vandaði málið aðeins meir, því það getur hún. Það er vel hægt að skrifa kúlan texta án þess að annað hvert orð sé á ensku.
En skoðun mín á skætingsbloggurum sem gagnrýndu mig í kommentum við þetta blogg hefur ekkert breyst. Það fólk hefur sett Íslandsmet í dylgjum, skætingi og höggum undir beltisstað, að ógleymdum hallærislegum tilraunum til hæðni. Vel mætti kalla þetta fólk “böggara-bloggara”, það “böggar” mig og aðra. Hvað um það, einn þeirra “rökstuddi” mál sitt með því að segja að ég hlyti að vera leiðinlegur. Annar snillingurinn sagði að það sem ég segði hlyti að vera rangt því ég væri svo vitlaus að láta mér finnast Batmanmyndin leiðinleg. Ég sé eftir að hafa eytt tíma mínum í að svara þessu, þetta er högg undir beltistað, maðurinn tekinn og gerður tortryggilegur, staðhæfingar hans ekki ræddar. Í rökfærslufræðum sem ég hef kennt er varað við svona og talið dæmi um slæm rök, ómálefnaleik. Í ofan á lag þekki þessi bloggari mig ekki og veit ekkert um mig, að staðhæfa án heimilda eins og bloggaradruslann gerði er með því ómálefnalegasta sem menn geta fundið upp á.
Flest “kommentin” voru af svipuðu tagi, staðhæfingar án sannana og högg undir beltisstað. Einn snillingurinn virtist geta lesið hugsanir mínar, staðhæfði án heimilda og raka að ég væri bara öfundsjúkur. Þessi mikli hugsuður hefur með þessu sett Íslandsmet í málefnaskorti nema þeir skætingsbloggarar sem gerðu mér upp skoðanir hafi slegið metið. Sagt var að ég vildi láta banna tiltekin blogg en það stóð ekki eitt einasta orð um bann í Drafnar Asparbloggi mínu. Aðrir afgreiddu mál mitt með því að ég fattaði ekki djókið. Þessi staðhæfing var ekki rökstudd og ekki sýnt fram á mikilvægi fyrir umræðuna, þar af leiðandi er hún ómálefnaleg. Eða hvað með manninn sem sagðist langa að hægja sér þegar hann læsi bloggfærsluna mína, var hann málefnalegur? Einn til viðbótar tók undir þennan dónaskap. Er maður málefnalegur ef maður svarar bloggi mínu með staðhæfigu um gelgjustelpa hefðu nú sagt “vá vá rúst”? Kannski að þetta sé framúrstefnukvæði! Hvað með staðhæfingu eins bloggarans um að ég væri orðinn svo gamall að ég skildi ekki hvað skemmtun er? Ég hélt að skemmtun væri smekksbundinn, telji bloggarinn að til séu hlutlægir mælikvarðar á skemmtun skal viðkomandi vessgú rökstyðja þá staðhæfingu. Í ofan á lag kom spurningin “hvað finnst ungu fólki skemmtilegt?” málinu ekkert við, ég var að tala um allt aðra hluti. Gefið var í skyn að ungu fólki fyndist Drafnarblogg skemmtileg og sú staðreynd átti að hrekja það sem ég sagði. En ég var ekki að ræða skemmtigildi bloggsins og andlegt ásigkomulag æskulýðsins, þess vegna voru þessar athugasemdir um skemmtigildi ómálefnalegar. Annar sagði sigri hrósandi að flestir bloggarnarnir væru á móti mér rétt eins og það gerði pípið í þeim eitthvað betra. Varð Hitler betri af því að flestir Þjóðverjar studdu hann? Enn einn spekingurinn taldi mig draga í land þegar ég reyndi að útskýra að viðbrögð mín við DD-bloggum væri hluti af stærri heild, þau væru bara brot af stærri mynd sem mér líkaði illa við. Spekingurinn gaf sér eins og hinir böggarabloggararnir að hann og þeir væru að vinna einhvern sigur á mér. Ámátlegar tilraunir sumra til að hæðast að mér voru þess eðlis að ég glotti illgirnislega, menn verða að geta hugsað til að geta hæðst almennilega að öðrum. Enn grátbroslegra var það þegar heilagjafar í bloggarastétt töluðu niður til mín í “elsku-karlinn-tónunum” og ófu vælið inn í fáránlegar staðhæfingar um mína persónu, staðhæfingar sem heilagjafarnir hafa engar sannanir fyrir. Alla vega nenni ég ekki ræða við fólk sem er á svona lágu plani. Bobby í Breiðholtinu (klappstjóri þessara bloggara) má mín vegna telja sér trú að ummæli skætingsbloggarana hafi verið málefnaleg og gefa sér að þeir hafi haft sigur í viðureigninni við mig (þeir héldu það sjálfir, greyin). Klappstjóranum fannst reyndar mikið til um hæðnistilburði greyjanna. Enn fyndnara var þegar hann segir í bloggi sínu að hann hafi bitið í skjaldarrendur, ég meina sængina sína, þegar hann velti blogginu fyrir sér. Ég hélt að menn yrðu sjaldnast svona uppteknir af einhverju það snerti þá sjálfa eða skoðanir sem þeim finnast mikilvægar, til dæmis trúarskoðanir. Ekki er Dröfn Ösp átrúnaðargoð hans eða hvað? “Þú skalt eigi aðra Gyðju hafa”, stendur væntanlega í Breiðholts-Biblíunni. Það fylgir sögunni að ágætur heimspekiprófessor sagði að það væri fyrir neðan mína virðingu að deila við svona fólk, þess vegna var ég ögn hikandi til að byrja með, reyndi meira að segja að rökræða skynsamlega við það. Það var kannski þess vegna sem Breiðholts-Bobby taldi sér trú um að ég hefði farið halloka í viðureign þessari, reyndar skein óskhyggjan í gegnum þá staðhæfingu hans, hann æsti sig upp í að trúa þessu. En eins og sjá má er ég hættur að hika, hættur að nenna að sýna þessum greyjum miskunn.
PS Nú er svo lítið um liðið síðan heyrst hefur í skætingsbloggurunum, er svona mikið að gera á McDonalds og í Bónus? Eða urðu þeir kannski að gjalti og gáfust upp þegar ég skrifaði þessa nýju útgáfu af DD-bloggi, þessa útgáfu sem lýkur hér með?
15. ágúst 20088:51 kl.
Hér með líkur “rökræðunni” um þessa bloggfærslu, það er fyrir neðan virðingu mína að svara þeim skætingi, dylgjum og útúrsnúningum sem fyllt hafa flest kommentin. Því kýs ég að moka öllu draslinu út, líka málefnalegu athugasemdunum. Tilraunir til að setja komment við þessa færsla verða meðhöndlaðar eins og kæfa (spam) og þeim eytt ólesnum. Ég mun beita mestu ritsóðana og grautarhausana mínu eigin nálgunarbanni, tilraunir þeirra til að setja komment við aðrar af bloggfærslum mínum verða líka meðhöndlaðar eins og kæfa. Fyndið að Dröfn Ösp virðist heilög gyðja í augum sumra, ´”þú skalt eigi aðra gyðju hafa”. En hún var ein fárra sem kom sæmilega frá þessari “deilu”.
15. ágúst 20089:04 kl.
Sá að einhver Bobby í Breiðholtinu kom með niðrandi athugasemdir um bloggfærslu mína á eigin bloggsíðu í sama skætingstóni og flestir þeir sem skrifað hafa komment hér. Hann lýsir skætingspakkinu eins og málefnalegum hetjum sem hæðst hafi maklega að mér. Þetta er ekkert annað en hans eigin hugarburður, tilraunir til háðs voru ámátlegar einfaldlega vegna þess að til þess að vera hæðinn þarf maður að hafa heila.
17. ágúst 200816:16 kl.
Það er nú ekki einskorðað við heilagjafa að átta sig illa á muninum á rökum og rökleysu. Það er ekkert óvenjulegt á moggablogginu, þar sem flestir gáfu-bloggarar halda sig, að helstu rök vel menntaðs fólks séu t.d.: “allir hljóta nú að vita” “það eru allir sammála um” og “fjölmargar rannsóknir sýna” (án þess að hafa sjálft skoðað nokkra rannsókn, eða bent á nokkra máli sínu til stuðnings.
Þetta er sérlstaklega áberandi þegar bloggarar eru haldnir pólitískum réttrúnaði allskonar, þá er nebbbnilega í lagi að snúa útúr og sveigja hjá staðreyndum í þágu málstaðarins.
Hefur þú annars séð blogg nýverið, þar sem menn glíma með rökum en sleppa skítkastinu?
18. ágúst 20088:12 kl.
Vel mælt Maggi er að miklu leyti sammála þér. En það er munur á bloggi og fræðigrein, sjálfur sagði ég nýlega að “rannsókn eftir rannsókn staðfesti X” án þess að geta heimilda í blogginu en hef skrifað fræðigreinar um málið þar sem vandlega er vitnað í heimildir. Reyndar fetti einhver leiðindakerling fingur út í þetta og var með skæting.Kannski ég skrifi eitt ofurerfitt blogg um málið. En sem sagt menntamannablogg á að vera lystauki, sjálf máltíðin er fræðigreinin. Hvað sem því líður setti þetta hyski sem að mér veittist íslandsmet í skítkasti, engu líkara var en að Drafnarbloggin væri biblían og það sjálft með í einhverjum lummulegum söfnuði.
18. ágúst 200820:48 kl.
hvers vegna breyttir þú upprunalegu færslunni í staðinn fyrir að skrifa nýja?
18. ágúst 200822:10 kl.
Mér finnst það frekar hlægilegt að maður, sem setur út á íslenskukunnáttu og ritstíl allra sem ekki eru sammála honum, skrifi texta með svo mörgum stafsetningavillum.
Enn fyndnara er þó að hann nenni að eyða orku sinni í það.
19. ágúst 20088:37 kl.
Jónas, ég geri eins og mér sýnist á eigin bloggsíðu. Berglin Halla, ég hef engan tíma til að vanda stafsetningu, en sammála þér um að eiginlega ætti ég ekki að eyða orku minni í þetta.
19. ágúst 200811:37 kl.
http://en.wikipedia.org/wiki/Godwin%27s_law
Godwin’s Law (also known as Godwin’s Rule of Nazi Analogies) is an adage formulated by Mike Godwin in 1990. The law states:
“As [an internet] discussion grows longer, the probability of a comparison involving Nazis or Hitler approaches one.”
19. ágúst 200811:38 kl.
See also
* Association fallacy
* Benford’s law of controversy
* Internet troll
* List of adages named after people
* Reductio ad Hitlerum
19. ágúst 200812:35 kl.
Sniðugt Kristleifur, líklega hafa allir skætingsbloggararnir gert sig sekan um þessar villur, ég kannski reductio ad Hitlerum í athugasemd við ein hinna ódauðlegu ummæla þeirra (”veflestir á móti þér ha ha ha”) en satt að segja nenni ég ekki lengur að taka tillit til þessa fólks, þó að samlíkingin við Hitler sé kannski langsótt. Ég var altof gætinn til að byrja með, hélt að það væri hægt að rökræða við það.
19. ágúst 200815:18 kl.
Merkileg umræða - svo merkilega að ég komst bara að fyrstu greinaskilum. En verð að höggva í eitt sem þú sagðir “En ég hefði kosið að hún bloggaði með öðrum hætti, vandaði málið aðeins meir, því það getur hún.”
Sum sé - þú skrifaðir heilan pistil um bloggara vegna þess að hann bloggar ekki eins og þú vilt að hann bloggi. Afþví að hún slettir og býr til orð og leikur sér að tungumálinu. Heimurinn bara er ekki sanngjarn
við verðum víst stundum að sætta okkur við það að annað fólk hagar sér ekki eins og við viljum að það hagi sér.
19. ágúst 200815:23 kl.
Ég hef leyfi til að hafa þær skoðanir á hlutunum sem mér sýnist. Ég vildi að hún bloggaði öðruvísi en dettur ekki í hug að neyða hana til neins. Sumt fólk virðist halda að umburðarlyndi sé það sama og skoðanaleysi. Ég er þeirrar skoðunar að betra væri fyrir íslenska umræðu ef frjálshyggjan stæði ekki svona sterkt, ég vildi óska að svo væri ekki, en mér dettur ekki í hug að neyða fólk til neins. En ég fullkominn rétt til að berjast gegn ofurveldi frjálshyggjunnar og gegn þeirri gerð blogga sem ég ræddi, barátta af því tagi hefur ekkert með umburðaleysi að gera, Visntri grænir berjast fyrir sínum málstað og Sjálfsstæðismenn sínum án þess að það þýði að þeir séu umburðarlausir eða vilji banna skoðanir hvors annars. Ég held að þú blandir saman umburðarlyndi og skoðanaleysi.
20. ágúst 20088:14 kl.
Svo það er engin leið til þess að fá að sjá póstinn sem þú skrifaðir upphaflega um Dröfn og bloggið hennar? Mig langar einmitt að reyna að mynda mér málefnalega skoðun á þessu og til þess þarf maður að hafa aðgang að öllum þeim gögnum sem málið varða. En ef þú vilt ekki veita aðgang að upphaflega blogginu þá getur fólk náttúrulega ekki gert sér góða hugmynd um þessa umræðu…
20. ágúst 20089:07 kl.
Nei, er ekki sjálft stafsetningarséníið Berglind Halla mætt í slaginn á ný!! Hvað spurningar þínar um nemendur mínar varðar þá eru þær vart svara verðar en vita skaltu að ég fæ háa einkunn hjá þeim. Þú spyrð um tíma minn, reyndar heldur vart svara vert, ég einfaldlega hugsa hratt og fer létt með að skrifa mikið, gaf út fræðariti í apríl oig sendi nýtt handrit að bók nú fyrir tveimur vikum. Vanda fræðibækur, fræði- og blaðagreinar en læt gossa í bloggum. Ég er ekki frægur fyrir leti.
Hvað staðhæfingar þínar um að þú látir þá sem þekkja þig um að dæma þig þá hef ég lent í því að fólk sem ekkert þekkir mig og skrifar ummæli um mig í þessari “rök”-ræðu hefur verið alls konar staðhæfingar um mig. Þar sem þú skrifar í sama nú-skulum-við-taka-hann-inn-á-beinið-stílnum og þetta hyski þá svara ég í sömu mynt, dæmi þig án þess að þekkja þig. Ég tek ekkert tillit til ykkar sem hafa verið með derring við mig í þessari deilu, allra síst nenni ég að vanda stafsetningu eða leiðrétta ásláttarvillur. Þú sýnir mér þann dónaskap að gefa í skyn að ég sinni ekki minni vinnu og það þoli ég ekki. Ég mun héðan í frá eyða ummælum þínum ólesnum, þú ert ekki velkomin á mína ummælasíðu.
20. ágúst 20089:08 kl.
Jónas, ég eyddi blogginu vegna þess að ég fór offari í því, var altof of harðorða. En tel enn að þessi gerð blogga eigi ekki heima á eyjublogginu og tel að stúlkan eigi að skrifa ögn öðruvísi, í lagi að skrifa með kúlum hætti og sletta svo lítið en ekki skrifa á hálfensku (ísl-ensku).
20. ágúst 200816:38 kl.
þú segir að þessi tegund blogga eigi ekki heima á eyjublogginu? hvers vegna finnst þér það? forsvarsmenn eyjunnar höfðu væntanlega samband við hana að fyrra bragði varðandi það að setja bloggið hennar DD á eyjuna og það hafa þeir ekki gert án þess að athuga málið vel áður.
ég er síðan þeirrar skoðunnar að sjálfsagt sé að hafa blogg eins og hennar á eyjunni, þar sem það bæti hreinlega við flóruna. regnboginn væri varla jafn fallegur ef allir litirnir væru svipaðir á litinn?
þá finnst mér einnig alltaf gott að skoða eitthvað allt öðruvísi til þess að víkka sjóndeildarhringinn og átta mig betur á mínum eigin skoðunum. hef jafnvel lesið þitt blogg einstaka sinnum.
og ég vil taka fram að með þessu er ég ekki að gagnrýna þig á nokkurn hátt, aðeins að útskýra hvernig ég sé málið.
20. ágúst 200817:33 kl.
Fínt Jónas,þakka þér fyrir málefnaleg ummæli. Til fyrirmyndar!