INTERNETRIFRILDAFRÆÐI

Internetrifrildafræðingurinn dr. Sveinbjörn Einstein mælir með nýjum reglum fyrir internetrifrildi. Af þessum reglum leiðir að menn megi ekki hreinsa dónaskap og dylgjur út af ummælasíðum sínum þótt doktorinn segi það ekki beinum orðum. Hann segir að sömu reglur eigi að gilda um slík rifrildi og framkomu manna í matarboði. Samkvæmt því hlýtur hann að telja rétt að nota dónaleg sögn um klósettvirkni (k..k) í matarboðum því sú sögn var oft notuð af ýmsum aðiljum á ónefndri ummælasíðu og þau ummæli hreinsuð út sem dónaskapur (munið að það má ekki samkvæmt reglunum). Einnig hlýtur að vera rétt að segja við gestina “þú ert örugglega leiðinlegur og hefur engan persónuleika”, nú eða kalla einn þeirra “homeboy”. Önnur afleiðing reglnanna er sú að menn megi ekki svara gagnrýni fólks sem segir að þeir geti ekki haft á réttu að standa um mál X vegna þess að þeim hafi þótt Batmanmyndin leiðinleg. Þeir mega heldur ekki svara gagnrýni fólks sem slær undir beltistað í stað þess að koma með málefnalega gagnrýni (það má auvitað ekki hreinsa ærumeiðingar þeirra út af ummælasíðum). Samkvæmt fræðum dr. Sveinbjarnar er þetta fólk nefnilega ofjarlar þeirra sem reyna að svara þeim. Meðal ofjarlanna má líka telja þá sem snúa út úr og gera mönnum upp skoðanir, átelja til dæmis tiltekinn mann á þeim forsendum að hann hafi krafist banns við bloggum þótt viðkomandi hafi alls ekki krafist þess. Ofjarlafræði dr. Sveinbjarnar virðist skyld hinum merku bloggfræðum prófessors dr. Roberts (Bobby) von Breidholt en hann hefur nýjar og frumlegar hugmyndir um málefnaleik. Samkvæmt þeim fræðum er málefnalegt að koma með dylgjur í stað raka, snúa út úr og gera mönnum upp skoðanir, tala niður til þeirra, koma með allra handa staðhæfingar um þá án þess að vita nokkurn skapaðan hlut um þá o.s.frv. Ofjarlafræði beggja hefur það megininntak að þeir sem doktorarnir eru sammála hljóti að teljast sigurvegarar í internetrifrildum. Ekki er verra ef menn endurtaka sífellu “við höfum unnið deiluna”, þá verður það satt í hugum doktoranna. Nefna má að Goebbels sagði að ef maður setur fáein sannleikskorn í stóran skammt af lygi og endurtekur nógu oft verður lygin að sannleika.
Við bíðum náttúrulega spennt eftir nýjum, byltingarkenndum kenningum frá þeim félögum. Ætli þeir sanni ekki næst að hvítt sé eiginlega svart og kalt heitt? Svo klárir eru þeir að þeir hljóta að fá nóbelinn í Internetrifrildafræðum og bloggologíu innan tíðar. Vonandi fá ofjarlarnir einhver áþekk verðlaun, til dæmis hálf-Booker verðlaunin fyrir snilldarskrif á hálf-ensku.
P.S. von Breidholt er tíðrætt um hæðni, veit hann nú hvað hæðni er?

Rita ummæli

Þú verður að skrá þig inn til að rita ummæli.


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning