Færslur september 2008
29. september 2008
Eins og flestum mun kunnugt markaði fall Berlínarmúrsins fall kommúnismans. Fall Múrastrætis (Wall Street) kann að marka fall frjálshyggjunnar. Alla vega viðurkenna hægrisinnaðir pistlahöfundar eins og David Brooks að svo sé og tekur því í sama streng og Gunnar Tómasson hagfræðingur gerði í Fréttablaðinu nýlega. Gunnar gekk þó lengra og benti á að lengi vel [...]
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Menning og listir, Stjórnmál | Engin ummæli »
27. september 2008
Bandaríkjamenn hafa sama háttinn á í rökræðum forsetaframbjóðenda eins og úrslitakeppnum í íshokkí, “liðin” mætast þrisvar. Það er kunnara en frá þurfi að segja að fyrstu lotu lauk í nótt. Ég sá rökræðuþáttinn í dag og verð að viðurkenna að McCain kom sumpart betur frá viðureigninni, virtist afslappaðri, fyndnari og mismælti sig síður. Obama virkar [...]
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Stjórnmál | Engin ummæli »
26. september 2008
McCain teflir skákina sérkennilega enda verður ekki af honum skafið að hann fer sínar eigin leiðir. Hann leikur óvænta leiki, gerir Miss Grizzly frá Alaska að varaforsetaframbjóðenda og lýsir skyndilega yfir að hann geri hlé á kosningabaráttunni til að bjarga efnahagnum ameríska. Reyndar sagði hann fyrir fáeinum dögum að allt væri í himnalagi vestra en [...]
Fært undir Alþjóðamál, Stjórnmál | 4 ummæli »
23. september 2008
Nýlega fór fram kjör vinsælustu MTV-myndbanda allra tíma. Er ekki að orðlengja að íslenskir listamenn komu mjög vel frá kjörinu, ´”Svefn-g-Englar” Sigurrósar voru í fimmta sæti og Björk í öðru, fékk silfrið eins og fleiri. Kannski að þjóðin sé orðin myndbandaþjóð, bókaþjóð er hún engin lengur.
Fært undir Tónlist | Engin ummæli »
22. september 2008
Núverandi kreppa sýnir eina ferðina enn hve óstöðugur hinn alþjóðlegi fjármálamarkaður er og litlar líkur á að hann öðlist stöðugleika til langframa. Þetta ætti sýna hversu óviturleg tillaga Ágústs Ólafs um að gera Ísland að alþjóðlegri fjármálmiðstöð er. Þessi bransi er síður traustur en þorskveiðar og þá er mikið sagt.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Stjórnmál | Engin ummæli »
19. september 2008
Nýlega boðaði Samfylkingin til hringborðsumræðu um efnahagsmálin og verða þátttakendur fjórir, þar af tveir flokksbundnir Sjálfsstæðismenn og eitilharðir frjálshyggjumenn í ofan á lag. Öðrum þeirra, Jónasi Haralz, fyrrum bankastjóra, var boðið vegna þess að hann hefur lýst yfir stuðningi við evruupptöku og andstöðu við stóriðjuáform. Sjálfur er ég til viðræðu um evruupptöku en finnst [...]
Fært undir Efnahagur, Stjórnmál | 1 ummæli »
16. september 2008
Fyrir ári mátti ekki blása á íslensku útrásarmennina, hinir Ábúðamiklu sungu þeim lof og prís. Hlegið var að okkur aumingjunum sem óttuðumst að útrásin væri fjárglæfrastarfsemi sem gæti komið íslensku efnahagslífi í koll. En nú er komið annað hljóð í strokkinn hjá þeim Ábúðamiklu, nú segja þeir að einkavinavæðing bankanna hafi leitt til [...]
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Menning og listir, Stjórnmál | 2 ummæli »
12. september 2008
Eins og menn vita þá sýna skoðanakannanir að þeir Obama og McCain hafa nokkurn veginn jafn mikið fylgi. Sá síðarnefndi fékk byr í seglinn þegar hann útnefndi miss Grizzly varaforsetaefni. En ég spái því að þegar nýjabrumið fer af henni þá muni Obama sækja sig í veðrið á ný. Ég sá hluta af sjónvarpsviðtali við [...]
Fært undir Alþjóðamál, Stjórnmál | 3 ummæli »
10. september 2008
Guðsmaður nokkur kallar sig “herra Pétur” á spænsku. Hann gaf út fötwu nýlega gegn manni sem leyfði sér að gagnrýna tiltekið blogg. Sá er ókurteis og þurrpumpulegur, segir kurteisis-postulinn. En Lykla-Pedro er sjálfur ekki ókurteis þótt hann segi að maður þessi “prumpi” um þessi mál. Postulinn er nefnilega heilagur maður og allt sem hann segir [...]
Fært undir Menning og listir, Trúarbrögð | 4 ummæli »