Færslur nóvember 2008

KREPPULÚÐI, GRÝLA OG NÝJÓLASVEINARNIR

30. nóvember 2008

Það gerðist hér á dögunum að hún Grýla gamla skildi við hann Leppalúða og giftist honum Kreppulúða. Áttu þau saman 9 syni í einum grænum hvelli og stukku þeir alskapaðir út úr höfði Grýlu (var hún ekki kölluð Útrás þegar hún var ung og fögur?). Synirnir eru nefndir “nýjólasveinar” og hafa tekið við störfum hinna [...]

EYKUR MARKAÐSFRELSI HAGVÖXT? Um efasemdir Dani Rodriks.

28. nóvember 2008

Á Íslandi veit maður hvað það er voðalega satt að markaðsfrelsi orsaki hagvöxt. Enda mega íslenskir álitshafar vart ljúka sundur munni án þess að boða þennan dásamlega sannleika. Til dæmis vegsömuðu þeir Hannes Gissurarson og Birgir Tjörvi Pétursson rannsóknir William Easterlys og samstarfsmanna hans sem áttu að sýna að því frjálsari sem markaðurinn væri, því [...]

BENEDIKT JÓHANNESSON OG GERVIRAUNSÆIÐ

28. nóvember 2008

Á Íslandi er allt krökkt af fólki sem talar í no-nonsense ábúðamiklum tóni og þykist vera afar raunsætt. Benedikt Jóhannesson (Zoega) er einn þeirra eins og m.a. sést í Fréttablaðsgrein hans. Þar segir að hann að mönnum beri að játa að sömu efnahagslögmál gildi á Íslandi og annars staðar. Þetta hljómar mjög no-nonsense raunsæislegt en [...]

ÞORVALDUR G OG IMF

27. nóvember 2008

Þorvaldur Gylfason heldur því blákalt fram að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn skipti sér ekki af pólitík þeirra landa sem hann lánar fé. Þorvaldi láist af gömlum vana að rökstyðja staðhæfinguna, Gylfungum finnst rökstuðningur ekki skemmtilegur. Til þess að hægt sé að taka staðhæfingar Þorvalds alvarlega verður hann verður hann að hrekja rök Joseph Stiglitz fyrir því að IMF [...]

”GRÆÐA Á DAGINN, GRILLA Á KVÖLDIN” OG….

27. nóvember 2008

Hannes Gissurarson gaf einu sinni ákaflega hjartnæma lýsingu á flokkssystkinum sínum. Þau græða á daginn, grilla á kvöldin. Honum láðist að geta þess að á nótttinni ástunda þau pólitíska valdníðslu og fjárglæfrarstarfsemi. Með því móti komu þau föðurlandi sínu hausinn með drjúgri aðstoð andlegra skyldmenna sinna í öðrum flokkum.

NORSKA RÍKISSJÓNVARPIÐ UM JÓN ÁSGEIR

26. nóvember 2008

Í gær var sýndur stuttur þáttur í norska ríkissjónvarpinu um ”afrek” Jóns Ásgeirs og hann sagður skulda eitt þúsund miljarða króna. Viðtal var við Jón Gerald Sullenberger sem staðhæfði að Hringadrottinn hafi stefnt fjölda auðherra til Miami árið 1999 og þar lagt drögin að yfirtöku bankakerfisins innan frá. Á heimasíðu ríkissjónvarpsins birtist svo yfirlýsing Jóns [...]

ALDNIR ÞULIR UM HEIMSKREPPUNA

25. nóvember 2008

Hægrimaðurinn og fyrrum forsætisráðherra Noregs, Kåre Willoch, gerir heimskreppuna að umtalsefni í nýlegri blaðagrein. Hann segir að þótt ríkið ameríska eigi allnokkra sök á undirmálslánunum þá sé það aðeins lítill hluti vandans. Aðalorsakavaldurinn sé stjórnleysi hins alþjóðlega fjármagnsmarkaðar. Þetta stjórnleysi olli því að sum fjármagnsfyrirtækin juku útlán sín sem nam þrítugföldu eigin fjármagni. Það [...]

VARNARRÆÐUR SÓKRATESAR OG DAVÍÐS

25. nóvember 2008

Ekki verður af Davíð Oddsyni skafið að hann er mælskur vel og ágætlega skrifandi, það kemur klárlega fram í Varnarræðu hans hjá Verslunar(ó)ráði. Heimspekingurinn Sókrates var ekki síður mælskur, það kom klárlega fram í Varnarræðu hans hjá þingi Aþeninga. Báðir eru með storminn í fangið, einir á móti næstum öllum. Og þó, Platon stóð [...]

HAUKUR MÁR HELGASON OG ÍSLENSKAN

24. nóvember 2008

Fyrir nokkrum árum skrifaði Haukur Már Helgason, heimspekingur, grein þar sem hann gerði lítið úr móðurmáli sínu og mátti helst skiljast á honum að meginsynd þess væri tilfinnanlegur kúlskortur. Ég svaraði greininni með skipulegum gagnrökum og dró þess utan höfund sundur og saman í háði. Sýndi hann talsverð sárindi í svari. Ég hélt í barnslegri [...]

EMG, GSE, HHG, ASÍ. Til varnar verkalýðshreyfingunni.

22. nóvember 2008

Fyrir nokkru skrifaði Einar Már Guðmundsson einkar ástríðufulla grein í Lesbók þar sem hann sagði að ungmenni héldu að ASÍ væri ferðaskrifstofa. Svo lítill hefur vegur verkalýðshreyfingarinnar verið á frjálshyggjuöld. Frjálshyggjumenn mega vart ljúka sundur munni án þess að syngja sönginn um að verkalýðshreyfingin sé einungis til óþurftar. Til dæmis “upplýsti” Gunnar Smári Egilsson [...]


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning