Færslur janúar 2009

UM TVÍTYNGI ÍSLEIFS

29. janúar 2009

Ég var ekki búinn að ljúka sögunni um flugferð Ísleifs til fyrirheitna landsins, skildi við hann malandi með þá Paul Krugman og Friðrik Miskunn (Fredric Mishkin) til beggja handa (Mishkin miskunnaði sig yfir Verslunarráð og skrifaði halelújaskýrslu árið 2006 um íslenska efnahagsástandið fyrir skitna 135000 dali, ég aftur á móti lýg ókeypis). Ísleifur: “You know, [...]

EFTIRSPURNARHAGFRÆÐI (OG MÁRINN MARX)

28. janúar 2009

 
Eins og fleiri  hagfræðingar ber Robert Reich ástandið á Vesturlöndum á þessari öld við ástandið rétt fyrir kreppuna miklu. Árið 2006 hirti ríkasta prósent  Bandaríkjamanna 23% af þjóðartekjunum, árið 1980 aðeins 8% (þá hófst frjálshyggjuvæðing Reagans). Ríkasta prósentið hefur ekki tekið til sín svo stóran hluta þjóðarkökunnar síðan á því herrans ári 1928, ári fyrir [...]

I LOVE ICE LOAF. Enn af Ísleifi og Ísafold

28. janúar 2009

 
 
Hvað er með ásum, hvað er með álfum? Hvað er með Ísleif og Ísafold? Þau sitja nú við eldhúsborðið og snæða, Ísleifur kúla ameríska pitsu, Ísafold soðinn fisk (”Viltu ekki ýsu, væni minn?” ”Ét ekki svoleiðis fokkings fokk, panta mér bara pitsu, mar”. ”Skyldi það nú vera þess vegna sem þú ert með ístru en [...]

SAGAN UM HOBBÍTANN FRÓÐA SAMFYLKINGARSON

27. janúar 2009

 
Í Hringadrottinssögu Tolkiens fær hobbítinn Fróði hringinn máttuga til vörslu og stenst freistingar hans. Öðruvísi fór með Smeargal sem varð að ógeðslegu skrímsli vegna þess að hann féll í þá freistni að reyna að eignast gripinn. En hringurinn tilheyrir hinum illa Sáron einum. Þegar Fróða tekst að eyðileggja hringinn ferst Sáron og illþýði hans.
Í [...]

ÁGÚST ÓLAFUR HÆTTUR!

27. janúar 2009

Þeir sem hafa nennt að fylgjast með bloggskrifum mínum vita að ég er lítt hrifinn af stjórnmálamennsku Ágústar Ólafs. Daður hans við auðvaldið hefur farið í gegnum merg og bein á mér, eins aðför hans að íslenskri tungu. Að þessi drengur skyldi geta orðið varaformaður í flokki jafnaðarmanna er stórfurðulegt enda segja sumir að rangt [...]

MÁRINN SNÝR AFTUR. Karl Marx og kreppan.

26. janúar 2009

 
Marx var dökkur á brún og brá, þess vegna kölluðu vinir og ættingjar hann “Márann”. Hann var talinn hafa farist þegar Berlínarmúrinn féll. En viti menn, hann sneri aftur þegar kreppan hófst, þrefalt meira seldist af meginriti  hans Auðmagninu í Þýskalandi í fyrra en árið þar áður. Enda spáði hann því að kapítalisminn myndi skekjast [...]

HNÍPIN ÞJÓÐ Í VANDA

24. janúar 2009

Allt verður Íslands ógæfu að vopni, nú síðast veikindi þeirra Geirs og Ingibjargar. Enginn ber ábyrgð á svo illvígum sjúkdómum en gagnstætt því eru móðurharðindin nýju  af mannavöldum. Ekki fyrst og fremst þeirra tveggja heldur ríkisstjórnarinnar á undan, seðlabankastjóra líka og fjármálaeftirlitsins en umfram allt svindlara  og fjárglæframanna útrásarinnar. En þjóðin hnípna lætur þá síðastnefndu í [...]

MARTRAÐARLANDIÐ. Leiðarvísir handa skelfdri þjóð (þriðja blogg: Nýtt lýðveldi)

23. janúar 2009

 
Nú eru uppi háværar kröfur um nýtt lýðveldi og tek ég heilshugar undir þær. Ég er algerlega sammála Nirði Njarðvík um nauðsyn þess að greina betur milli löggjafarvalds, framkvæmdavalds og dómsvalds. En væri ekki ráð að læra af Bandaríkjamönnum? Nú hef ég oft snuprað íslenska Kanadýrkendur í bloggum og greinum en .það þýðir ekki að [...]

POZZO BJARGAR HEIMINUM. AFTUR. Um John Maynard Keynes.

22. janúar 2009

Hagfræðingar nútímans eru yfirleitt einkarleiðinlegir, litlausir stærðfræðinördar. En stórhagfræðingar fyrri tíma, menn eins og Joseph Schumpeter og John Maynard Keynes voru litríkir, fjölhæfir og stórsjarmandi. Keynes, eða Pozzo eins og hann kallaðist,  var þúsundþjalasmiður, rak m.a. leikhús um skeið og var innsti koppur í búri í Blomsburyklíkunni, klíku framúrstefnuhugsuða og listamanna með Virginu Woolf í [...]

KEYNES KEMUR AFTUR

20. janúar 2009

 
Franska dagblaðið Lefigaro kallar breska hagfræðinginn John Maynard Keynes ”l’homme de l’année”, mann ársins. Keynes var á sínum tíma frægur fyrir að segja að ríkið yrði að leika virkt hlutverk í efnahagslífinu á krepputímum, t.d. með því að dæla peningum í hagkerfið til að auka eftirspurn. Það er einmitt það sem nú er gert víða [...]


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning