Blogg leggst í dvala
10. mars 2009Ég er farinn að blogga á eyjunni og leggst þessi bloggsíða í dvala, kannski að eilífu.
Ég er farinn að blogga á eyjunni og leggst þessi bloggsíða í dvala, kannski að eilífu.
Samfylkingin þarf reynt, kraftmikið og hugsanadi fólk á þing. Benedikt Sigurðarson fullnægir öllum þessum skilyrðum. Svo Samfó-fólk á Norðausturlandi, kjósið Benedikt!
Seint verður borið á þingmenn nútímans að þeir séu mælskir. Ekki er langt síðan ég heyrði tilvonandi foringja Sjalla; manninn með nafnið, tafsa og stama í viðtali. Með því að veita Merði Árnasyni og Jóni Baldvin Hannibalssyni brautargengi í prófkjöri geta menn bætt úr þessu, stuðlað að því að mælskumenn komist á þing. Auk þess [...]
Fín og velhugsuð grein hjá Þorvaldi, eins og töluð úr mínu hjarta.
Einhver Rósa Guðbjartsdóttir skrifar stórfurðulega grein í Fréttablaðið þar sem hún spyrðir heimsveldin Hafnarfjörð og Bretland saman. Bæði hafi verið rústuð af jafnaðarstefnu, Bretland nú eftir 10 ára kratastjórn. Þá vaknar spurning: Hefur Rósa sofið þyrnirósarsvefni síðasta áratuginn? Breskir jafnaðarmenn hafa fylgt stefnu sem í megindráttum er nærri frjálshyggju en jafnaðarstefnu. Bæta má við að [...]