Færslur ‘Slúður’ flokksins

ÓLYMPÍUGULL Í BLOGGI?

13. ágúst 2008

Mér til mikillar furðu skaust blogg mitt um Dröfn Ösp í efsta sæti Vísisbloggs í dag. Þetta kom mér álíka mikið á óvart og sigrar Íslendinga yfir Rússum og Þjóðverjum í handbolta á ÓL. Kannski ég ætti að keppa í bloggi á næstu Ólympíuleikum. Hver veit, kannski ég sigri Rússa og Þjóðverja og hreppi gullverðlaunin. [...]

BLOGGI UM DRÖFN ÖSP GJÖRBREYTT. Nú fá skætingsbloggarar á baukinn í staðinn

12. ágúst 2008

Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að þurrka þetta blogg að mestu út, ég sé að ég hef verið full harðorður við Dröfn Ösp. Í ljós kemur að hún er greind vel og prýðileg íslenskukona. En ég hefði kosið að hún bloggaði með öðrum hætti, vandaði málið aðeins meir, því það getur hún. Það er vel [...]

PARIS HILTON Í FRAMBOÐ?

8. ágúst 2008

Ég hef aldrei haft neinn áhuga á Paris Hilton, finnst hún ekki einu sinni sæt, hún er altof herðabreið, sennilega vegna oflyftingar á lóðum. En hún stóð sig einkar vel í sjónvarpinu er hún tók McCain inn á beinið fyrir að nota sig í kosningabaráttunni, kallaði hann hæðnislega “that white haired dude”. Svo hafði hún [...]

PARIS HILTON OG HEIMSPEKIN

5. maí 2008

Merkilegt nokk hafa íslenskir heimspekingar af yngri kynslóðin lítið fengist við heimspeki skemmtanaiðnaðarins. Reyndar var ég, afgamall karlinn, lengi vel eini íslenski heimspekingurinn sem skrifaði um slík mál, nú síðast í tímaritinu Journal of Aesthetic Education og hét sú grein “Pragmatism and Popular Culture”. Nú hefur annar öldungur, heimspekingurinn Kristján Kristjánsson, bæst í hóp poppspekinga. [...]

NÍSKA SEM FEGURÐARGJAFI

28. apríl 2008

Eins og ég hef margtuggið í þessum bloggum þá eru Norðmenn búmenn góðir, öllu samhaldssamari en frændur þeirra, Íslendingar. Ekki þarf mikið til. Gætni Nojara í fjármálum veldur því að þeir þurfa ekki að vinna myrkranna á milli til að hafa ofan af fyrir sér. Þeir hafa því nógan tíma til að hreyfa á sér [...]

DR. WHO, ÚDARNIR OG ÍSLENDINGAR

1. apríl 2008

Ég horfði um daginn á þátt í þáttaröðinni um tímaflakkarann dr. Who. Þar lendir hann og ljóskan vinkona hans á plánetu þar sem finna má lífverur líkar mönnum en með fjölrana í munns stað. Verur þessar kallast údar (oods). Þeir hafa enga sjálfsvitund en hugsa í kór. Skyldu þeir vera af íslensku bergi brotnir?

MORÐIÐ Í LIMA Í OHIO

31. janúar 2008

New York Times er með frétt um morð á svartri stúlku í smábænum Lima í Ohio og var lögreglan þar í bæ gagnrýnd fyrir rasisma. Þetta væri kannski ekki frásögur færandi ef ég hefði ekki orðið svo frægur að koma til þessa krummaskuðs á sléttum Miðvestursins. Þar var ég kvöld eitt fyrir 36 árum, þá [...]

GEIR(S)FUGLAR KVAKA

21. janúar 2008

Hvað eigum við Sigurður Fáfnisbani sameiginlegt, annað en hetjuskapinn? Við skiljum báðir fuglamál. Því til sannindamerkis má nefna að ég gekk nýlega fram hjá bjargi nokkru hvar geirs(s)fulglar harðir sátu kvakandi og skildi ég hvert kvak. Þeir sátu á grein og kvökuðu um grein í Mannlífi þar sem segir að Davíð sé kominn á kreik [...]

ENN UM FISCHER

19. janúar 2008

Sem kunnugt er var Bobby Fischer mikill gyðingahatari þótt Gyðingur væri, alla vega í móðurætt. Reyndar segir sagan að hinn opinberi faðir hans sem var þýskur vísindamaður, ekki Gyðingur, hafi ekki verið hans eiginlegi faðir heldur hafi Bobby verið sonur ungversks Gyðings. Hvað um það, kunningi minn, amerískur Gyðingur, kynntist Bobby á þeim árum er [...]

HORFNIR HEILDSALAR

9. nóvember 2007

Where have all the flowers gone?”, sungu menn á mínum sokkabandsárum. Nú syng ég: Hvað varð um alla heildsalana sem áttu að hafa mergsogið alþýðuna ef marka má róttækan skáldskap fyrri ára? Heildsalana sem áttu að hafa ríkistjórnir og flokka í rassvösunum? Heildsalana sem allir áttu að hafa verið á mála hjá Kananum? Heildsalana [...]


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning