Bloggsíða Stefáns Gíslasonar

Sitthvað um umhverfismál, hlaup og annað sem miklu skiptir í lífinu. :)

Meira um erfðabreytt á Kleppjárnsreykjum

stefangisla 19. apríl 2010

Sveitarstjórn Borgarbyggðar leggst ekki gegn ræktun erfðabreyttra lífvera á Kleppjárnsreykjum. Þetta var ljóst eftir fund sveitarstjórnar 15. apríl sl. Hvað sem niðurstöðunni líður er ljóst að málsmeðferðin samræmdist ekki því regluverki sem sveitarstjórn og nefndum sveitarfélagsins er ætlað að vinna eftir. Sérstaklega var vinnubrögðum Umhverfis- og landbúnaðarnefndar ábótavant hvað þetta varðar, en vinnubrögð byggðaráðs orka einnig tvímælis.

Tímasetningar og afgreiðslur
Eins og fram kom í síðustu bloggfærslu sendi Umhverfisstofnun frá sér erindi þriðjudaginn 6. apríl sl., þar sem óskað var eftir umsögn sveitarstjórnar Borgarbyggðar um tillögu stofnunarinnar að starfsleyfi fyrir ORF Líftækni hf., „vegna starfsemi með erfðabreyttar lífverur í gróðurhúsi Sólhvarfa ehf., Kleppjárnsreykjum“. Erindið var tekið fyrir í byggðaráði daginn eftir, þ.e. miðvikudaginn 7. apríl. Byggðaráð samþykkti að vísa málinu til Umhverfis- og landbúnaðarnefndar, sem afgreiddi málið á fundi síðar sama dag, þ.e. líka þann 7. apríl. Í fundargerð nefndarinnar segir (í 15. lið):

Leyfistillaga til handa ORF Líftækni hf., vegna starfsemi með erfðabreyttar lífverur í gróðurhúsi Sólhvarfa ehf., Kleppjárnsreykjum.
Lögð fram tillaga, dagsett 6. apríl 2010, frá Umhverfisstofnun vegna starfsemi með erfðabreyttar lífverur. Erindinu var vísað til umhverfis- og landbúnaðarnefndar á 150. fundi byggðarráðs þann 7. apríl 2010. 

Nefndin leggst ekki gegn leyfisveitingunni en leggur áherslu á að framkvæmd verksins verði með þeim hætti sem fram kemur í umsókninni þannig að umgengni sé í lagi.

Fundargerð Umhverfis- og landbúnaðarnefndar var síðan samþykkt samhljóða á fundi sveitarstjórnar fimmtudaginn 15. apríl.

Vinnubrögð byggðaráðs
Samkvæmt 46. grein Samþykktar um stjórn og fundarsköp Borgarbyggðar skal byggðaráð „boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund“. Þegar haft er í huga að umræddur fundur byggðaráðsins hófst kl. 8.00 að morgni miðvikudagsins 7. apríl, er ljóst að fundarboð ásamt dagskrá þurfti að liggja fyrir í síðasta lagi kl. 8.00 að morgni þriðjudagsins 6. apríl. Mjög ólíklegt verður að teljast að erindi Umhverfisstofnunar hafi borist fyrir þann tíma, enda erindið dagsett þennan sama dag. Reyndar er eðlilegt að gera ráð fyrir því að dagskrá byggðaráðsfundarins hafi legið fyrir fyrir páska, þ.e. í síðasta lagi miðvikudaginn 31. mars. Þetta er sagt í ljósi þess að vinnudagur opinberra starfsmanna að loknu páskafríi hófst almennt þann 6. apríl kl. 8.00. Því var í raun hvorki mögulegt að boða byggðaráðsfundinn með lögmætum hætti eftir páskafrí, né að taka inn á hann erindi sem dagsett voru umræddan dag. Með hliðsjón af þessu verður ekki annað séð en að málmeðferð byggðaráðs hafi brotið í bága við Samþykkt um stjórn og fundarsköp Borgarbyggðar.

Vinnubrögð Umhverfis- og landbúnaðarnefndar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar varð til við sameiningu Umhverfisnefndar og Landbúnaðarnefndar. Erindisbréf Umhverfis- og landbúnaðarnefndar er ekki aðgengilegt á heimasíðu sveitarfélagsins, en þar er hins vegar að finna erindisbréf beggja nefndanna sem Umhverfis- og landbúnaðarnefnd varð til úr. Í báðum þessum erindisbréfum er tekið fram að fundarboðun skuli „vera skrifleg og tilgreina fundarstað, tíma og dagskrá og send nefndarmönnum og öðrum sem seturétt hafa á fundum eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund“. Hér á eftir er gengið út frá því að hin sameinaða nefnd starfi eftir erindisbréfi sem er sambærilegt erindisbréfum hinna nefndanna.

Fundur Umhverfis- og landbúnaðarnefndar þann 7. apríl hófst kl. 15.00, en þá voru liðnar rúmar 5 klst. frá því að fundi byggðaráðs var slitið. Þrátt fyrir þetta var erindið frá byggðaráði tekið fyrir á fundinum.

Af framanskráðu er augljóst að meðferð Umhverfis- og landbúnaðarnefndar á umræddu máli braut í bága við erindisbréf nefndarinnar.

Faglegt hlutverk fagnefndar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd er fagnefnd sveitarfélagins í þeim málaflokki sem hér um ræðir. Þar með er nefndin væntanlega sá aðili sem byggðaráð og sveitarstjórn treysta á þegar mál af því tagi sem hér um ræðir koma til umræðu, eins og endurspeglast reyndar í afgreiðslu byggðaráðs á umræddu erindi. Á nefndinni hvílir því sú skylda að setja sig vel inn í þau mál sem henni berast, rannsaka feril þeirra og innihald og kalla eftir frekari gögnum eða áliti utanaðkomandi aðila eftir því sem þurfa þykir. Ákvæði um undirbúning og boðun funda í erindisbréfi nefndarinnar og í samþykkt um stjórn og fundarsköp eru einmitt til þess fallin að tryggja vandaða málsmeðferð hvað þetta varðar.

Með því að taka umrætt mál til umfjöllunar í nefndinni aðeins um 5 klst. eftir að það var afgreitt úr byggðaráði, braut Umhverfis- og landbúnaðarnefnd ekki aðeins gegn erindisbréfi sínu, heldur vanrækti hún um leið hlutverk sitt sem fagnefndar. Af tímasetningum í málinu er ljóst, að nefndin gat með engu móti sinnt þeirri rannsóknarskyldu sem á henni hlýtur að hvíla. Vissulega bera tímasetningarnar nægjanlegt vitni um vanrækslu nefndarinnar, en því til viðbótar er rétt að hafa í huga að hér var um stefnumótandi ákvörðun að ræða, sem eðli málsins samkvæmt hlaut að þurfa að skoða út frá ýmsum hliðum. Þannig hlýtur að hafa verið ástæða til að kanna hvort ræktun erfðabreyttra lífvera í sveitarfélaginu samrýmdist annarri stefnumótun, hver væru viðhorf íbúa á Kleppjárnsreykjum til málsins, hversu mikið það kynni að hefta möguleika í lífrænni ræktun, hvernig það félli að hugmyndum um uppbyggingu við Deildartunguhver og hvaða þýðingu það kynni að hafa fyrir ímynd svæðisins og sveitarfélagsins í heild, svo dæmi séu tekin. Jafnframt hlaut að vera ástæða til að kynna sér sérstaklega hvernig úrgangur yrði meðhöndlaður, hvernig ytra og innra rými skyldi aðgreint og hvernig staðið skyldi að eftirliti með starfseminni. Það að nefndin leggi „áherslu á að framkvæmd verksins verði með þeim hætti sem fram kemur í umsókninni þannig að umgengni sé í lagi“ hefur enga þýðingu í þessu sambandi þegar á hólminn er komið.

Vinnubrögð sveitarstjórnar
Ekki virðist tilefni til að gagnrýna hlut sveitarstjórnar í þessu máli sérstaklega, að öðru leyti en því að hún skyldi taka fundargerð Umhverfis- og landbúnaðarnefndar til umræðu og afgreiðslu, þrátt fyrir þá augljósu ágalla sem voru á málsmeðferð nefndarinnar. Einnig hefði sveitarstjórnin átt að gera sér grein fyrir því að hér var um stefnumótandi ákvörðun að ræða, enda þótt sjálf útgáfa starfsleyfisins sé í höndum Umhverfisstofnunar. 

Meginályktun og lokaorð
Úrbóta er þörf í stjórnsýslu Borgarbyggðar!

2 ummæli um “Meira um erfðabreytt á Kleppjárnsreykjum”

  1. Agný ritaði:

    Sæll Stefán.
    Mér finnst þetta alveg skelfilegt sem er búið að veeita leyfi til !! En því miður er auðvelt að fá fólk inn á svona dæmi sem eru umdeild þegar harðnar á dalnum. Kanski veit þetta fólk ekki nógu mikið sem er að fara út í þessa ræktun og einnig skrítið hvað þetta fer dulið að sé verið að setja svona á laggirnar.
    Þetta er það stórt málefni að það hefði i raun átt að vera opnir fundir í sveitarfélaginu en ekki eitthvað sem er afgreitt í lokuðum fundarherbergjum.
    ..Eftir því sem mér skilst þá hefur erfðabreytt ræktun áhrif í 10 km radius..þannig að sé vistvæn ræktun innan þess marka þá er hún það ekki lengur..Erfðabreyttu afurðirnar yfirtaka hinar..svo hefur Monsanto kært þá bændur sem eiga akra að erfðabreyttum /GMO ökrum fyrir..já ..að hafa STOLIÐ frá Monsanto..

    Engin löggjöf um erfðabreyttar lífverur er til staðar hér á landi . Getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér..
    http://alvaran.com/forum/index.php?showtopic=5014

    Án erfðabreytinga - GMO frjálst Ísland
    http://www.facebook.com/reqs.php#!/group.php?gid=186168320555&ref=ts

    Hér eru ýmsar greinar sem ég hef þýtt í gegnum árin
    Getnaðarvörn frá Monsanto …Erfðabreytt korn ..
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/770736/

    MONSANTO The Genetic Conspiracy OG FLEIRI VIDEO /SKRIF UM
    Genetically Modified Organisms = GMO , KLÓNUN, SKORDÝREITUR,..
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/507236

    Genetically Modified Food - Panacea or poison…, VIDEO..
    Erum við að verða erfðabreytta efnið?
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/275464

    Hvert hafa býflugurnar farið?..Hvað er að eyða þeim?
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/198292

    Eru GM / erfðabreyttar nytjaplöntur að drepa
    hunangsflugur?
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/140719

    Engin löggjöf um erfðabreyttar lífverur er til staðar hér á landi .
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/195944

    GM (erfðabreytt) hrísgrjón með manns erfðavísi á fæðulistanum.
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/139356

    Erfðabreytt matvæli (GM)” Frankenstein” fæða framtíðarinnar..
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/121947

    Grænmeti og ávextir ..svoooooooo hollt og gott..eða er það nú svo?http://agny.blog.is/blog/agny/entry/119668

    Þetta er á vissan hátt erfðabreytt/GMO eða DNA ræktun..En engu að síður skelfilegt hvað verið er að malla í hinum og þessum tilraunastofum út um allan heim..

    ERTU MAÐUR EÐA MÚS?? ÓRAUNVERULEG TILRAUN SKAPAR BLENDING DÝRS OG MANNS
    http://alvaran.com/forum/index.php?showtopic=5701

  2. Agný ritaði:

    BT bómull (GMO /erfðabreytt) frá Monsanto drepur jafnt jarðveg sem bændur.
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/834984
    Þessi síða hér er vísindasíða
    http://www.i-sis.org.uk/BtCottonKillsSoilandFarmers.php
    Velferð lífvera vísar til þess að gengið sé úr skugga um að GMO´s valdi ekki skaða á umhverfinu eða heilsunni.

    Jarðvegurinn, frjósemi hans, og lífverurnar sem viðhalda frjósemi jarðvegsins sem eru lífsnauðsynlegur þáttur í umhverfinu, sérstaklega í sambandi við grunn fæðu og framleiðslu landbúnaðarafurða.
    Nýleg vísindaleg rannsókn framkvæmd af Navdanya, bar saman jarðveg á ökrum þar sem Bt bómull hafði verið plantað í 3 ár, á móti ökrum þar sem GMO frí bómull eða önnur GMO frí uppskera var ræktuð.
    Svæðið tók yfir Nagpur, Amravati og Wardha of Vidharbha, þar sem er stærsta GMO bómullar ræktunarsvæðið á Indlandi og það svæði sem hefur hæstu sjálfsmorðstíðnina hjá bændum. ( 4000 á ári)
    Á 3 árum hefur Bt-bómull valdið fækkun á Actinomycetes um 17%.

    Actinomycetes er lífsnauðsynlegt efni til þess að brjóta niður sellulósa og til að skapa mold. Bakteríum hafði fækkað um 14%.

    Í heild hafði lífmassi örveranna fækkað um 8.9% Lífsnauðsynleg og gagnleg ensím sem gera næringarefni aðgengileg fyriri plöntur hafði líka fækkað hrikalega.
    Acid Phosphatase sem að stuðlar að upptöku fosfata (phosphates) hafði minnkað um 26.6%.
    Köfnunarefnis hvatar (enzymes) sem hjálpa til við að útvega köfnunarefni (nitrogen) hafði minnkað um 22.6%.

    Með þessum hraða, þá gæti ræktun með erfðaefni í áratug, GMO bómull eða hvaða GM uppskera sem inniheldur Bt, , valdið algerri eyðingu á lífverum jarðvegsins, skilið eftir dauðan jarðveg sem er ófær um að framleiða fæðu.

    Áhrif GMO´s á lífverur í jarðveginum er almennt ekki rannsakað.

    Þetta er lífsnauðsynleg breyta, vegna þessa að Bt eitruð uppskera eins og Mon 810 korn, Bt bómull eða Bt Brinjal, hefur alverleg áhrif á allar lífverur í jarðveginum. Í síðustu upplýsingum frá ISAAA, þá segir að það séu meira en 7.6 hektarar af Bt-bómull ræktað á Indlandi.

    Þetta þýðir 7.6 hektara af deyjandi jarðveg.

    Indversk stjórnvöld eru aðvinna í því að fá leyfi til að rækta Bt. Brinjal án þess að öryggis rannsóknir á áhrifum á jarðveginn séu séu þar á bak við.
    Evrópusambandið vinnur í því að að þrýsta á GMO laus lönd til að innleiða Mon 810.
    Navdanya rannsóknin er sú fyrsta sem skoðar langtíma áhrif Bt bómulllar ræktunar á jarðveginn og er svona wake up call á alþjóðavísu.
    Það sýnir einnig að öryggiskröfur líftækni iðnaðarins í sambandi við GMO uppskeru eru falsaðar.
    Þýðandi Agný.

    MONSANTOS mörgu aðferðir til að eyða öllum fræjum nema þeirra eigin.
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/824550

    Grænmeti og ávextir ..svoooooooo hollt og gott..eða er það nú svo?
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/119668

    THE BLUE HILL HORROR.Jæja…hvaðan skyldi þetta klónaða mann “skepnu” afbrigði hafa sloppið?
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/950190

    Frumvarp H.R. 875 og S 425 gerir lífræna ræktun að glæpastarfsemi. THIS BILL MAKES ORGANIC AGRICULTURE A CRIME!
    http://agny.blog.is/blog/agny/entry/827189

    Sick children used as GM feeding trial guinea pigs

    Press Release — 8th January 2009 http://www.gmfreecymru.org/news/Press_Notice08Jan2009.htm

    The new weapons of genetic engineering

    http://www.grain.org/seedling/?id=576

    A Fake Group Fights for Monsantos Right to Deceive You
    http://articles.mercola.com/sites/articles/archive/2008/03/29/a-fake-group-fights-for-monsanto-s-right-to-deceive-you.aspx

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning