Fjandinn er laus. Nei hann er ekki laus, jú nú er hann laus… 24. febrúar 2008
Fært af stjanaspjall undir Óflokkað. rita ummæliEr það nema von að við séum svolítið afundinn þessa dagana. Annan daginn er okkur tjáð að allt sé að fara í kalda kola, bankarnir gjaldþrota, krónan ónýt og Villi vinur farinn. Hinn daginn aftur á móti eru bankarnir miklu sterkari en allir hinir þarna úti, krónan langbesti valkosturinn og Villi vinur ekkert að fara.
Þetta með bankana er skiljanlegt. Við vitum að þeir standa ágætlega ennþá en auðvitað kemur að þeim tímapunkti að þeir þurfa meira fjármang og þá er það spurning um hvort tíðin verði betri eða ekki fyrir þá að fá lán.
Evran er ljótur gjaldmiðill og því ekki í myndinni að taka hann upp. Krónan er jú flöktandi fé en þó getur maður dregið hana upp úr veskinu án þess að blygðast fyrir útlit hennar. Svo líka skil ég ekki alveg hvernig þetta á að ganga upp. Það hefur engin sýnt fram á með óhyggjandi hætti að upptaka evruna hafi haft óumdeilanlega góð árhrif á eitt ríki umfram annað. Er eitthvað ríki þarna úti sem hefur haft jafn gríðarlegan hagvöxt og við höfum haft, fyrir tilstuðla þess að hafa tekið upp evruna? Má svo sem vera en ég held samt ekki. Svo er það þetta með Villa. Fyrirgefið en var hann ekki farinn. Ég kaus kallangan og þykir nú nokkuð vænt um hann svona eins og hann er. Mér þótti líka svolítið vænt um Árna Johnsen! Árni fór og kom svo aftur, fór áður en mér fór að hætta að þykja vænt um hann og kom svo aftur rétt áður en ég var búin að gleyma honum. Duglegur kallinn. Villi er alveg komin á skörina hjá mér og er því að klúðra þessu alveg. Sjáið hvernig Björn Ingi fór að þessu. Hann bara fór. Að vísu volandi í fýlu en það var allt í lagi, hann fór og fólk man ekki einu sinni eftir honum til að bendla honum við eitthvað misfagur eins og REY. Vil þó taka það fram að mér þótti aldrei vænt um Björn Inga, ekki neitt persónulegt heldur var hann framsóknarmaður og prinsipp hjá mér að þykja ekki vænt um framsóknarmenn.Æi Villi minn skrepptu nú til Spánar eða eitthvað framyfir næsta kjörtímabil eða svo, komdu svo aftur og fáðu frekar góða stöðu einhverstaðar. Og svo þarna hann Dabbi Kóngur. Ætli það sé rétt að hann hafi ráðlagt Villa að sitja sem fastast! Gat hann ekki bara fundið tóma skrifstofu og látið hann telja peninga eða eitthvað hjá sér í Seðlabankanum. Jæja. Nú fer að styttast í fréttir og maður þarf að vita hvort maður eigi að taka gleðipillur eða þunglyndislyf til að vera samdauna þjóðfélaginu á morgun!
Borginni borgið… 30. janúar 2008
Fært af stjanaspjall undir Efnahagur, Heilbrigði, Stjórnmál, Umræðan. 1 ummæli fram að þessuHvern hefði grunað hversu stuttan tíma þetta brúna sull myndi stjórna borginni. Brúna sull! Jú ef þú blandar saman rauðum (vinstrimönnum) og grænum (umhverfissinnum) þá kemur út brúnn. Já nei, þá vil ég heldur hreinan bláan. Ja kannski þetta sé frekar svona blágrænn, meira bláblábláblágrænn… Já meira svona blátt. Einmitt. Hvort annar er betri en hinn skal ég láta liggja milli hluta en veit þó hvað mig varðar þá þigg ég lækkun fasteignaskatts. Mér fannst í raun stefna þessa brúnu um að fullnýta rétt borgarinnar á álagningu fasteignaskatts sérlega illa til fundin sérstaklega gagnvart eldra fólki sem átt hefur fasteignir sínar í marga áratugi og hefur ekki á nokkurn hátt át þátt í hækkun fasteignaverðs, sem svo hækkar skattana þeirra!
Já svo eru það veikindi borgarstjóra. Ég hlít að hafa misskilið þetta eitthvað því ég hélt að hann hefði verið veikir, komið til baka og meira seigja verið sá fyrsti í sögunni til að skila inn vottorði um að hann væri orðin heill heilsu. Af hverju er þá verið að ræða um veikindi borgarstjóra. Af hverju er ekki verið að ræða við hann um stefnu hans og hverju honum langar að áorka sem borgarstjóri. Ef einhver er lasin þá held ég að það sé maðurinn með jakkafötin, þessi sem fór… að gráta. Í alvöru talað stór hluti borgarstjórnar er stórskrýtinn og hefði örugglega bara gott af því að lúlla nokkrar nætur inn við sundin blá, sama hvaða flokki þau tilheyra. Nú þau þarna á alþingi líka. Sennilega væri best að leggja þau öll inn í nokkrar vikur (spurning um að nota sumar eða jólafríið). Getur ekki landlæknir reddað þessu?
Já svona er nú bara lífið, ef maður hefur verið “langt niðri” og lagður inn þá borgar sig ekki að segja frá því hinir halda að maður muni aldrei læknast. Þeir sömu er segja jörðina flata.
Halló heimur! 28. janúar 2008
Fært af stjanaspjall undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessuÞá er komið að tilraun tvö en þetta er í annað sinn sem ég geri tilraun til að halda úti spjalli við sjálfan mig. Sjáum til…
