mar
31
Hvað er klukkan hjá Mogganum?
31. mars 2007 | 21 ummæli
Andstæðingar með nauma forystu eftir fyrstu tölur Samkeppni stóru fréttavefanna, visir.is og mbl.is, er mikil og hatrömm. En stundum veltir maður fyrir sér hvort keppinauturinn sé að ganga full langt.
Eins og þeir vita sem fylgdust vel með útsendingu sjónvarpsstöðvanna á fyrstu tölum frá Hafnarfirði fyrr í kvöld, þá komu tölurnar átta mínútur yfir sjö. Á þeirri sömu [...]
mar
31
Áhugaverðar hugmyndir, ósjálfráð viðbrögð
31. mars 2007 | Rita ummæli
Leggur til að stofnað verði 240 manna varalið Björn Bjarnason leggur til að stofnað verði 240 manna varalið lögreglu. Fyrstu viðbrögð margra, eins og Adda Steina kona mín benti réttilega á í útvarpsviðtali í morgun, voru að afskrifa hugmyndina strax því þarna væri Björn enn einu sinni að reyna að stofna íslenskan her. Okkur hættir [...]
mar
29
Háflug á vinstri væng
29. mars 2007 | Rita ummæli
Innanbúðarmaður úr Sjálfstæðisflokki sem ég hitti á förnum vegi í gær var orðinn verulega áhyggjufullur. “Ætlar fólk að kjósa okkur tuttugu ár aftur í tímann?” spurði hann og benti á andstöðu Vinstri-grænna við aðskiljanleg þjóðþrifamál á undanförnum árum.
Sjálfstæðismenn - eftir að hafa beint spjótum sínum að Samfylkingunni og gefið Vinstri-grænum frítt spil í marga mánuði - [...]
mar
26
Friður meðal frænda?
26. mars 2007 | Rita ummæli
Ráða má bæði af Íslendingasögunum og ýmsum rannsóknum að Írar séu okkar nánustu frændur, þó líklega að undanskildum Norðmönnum. Því hefur okkur Íslendinga sviðið sáran að horfa upp á frændur okkar og granna á eyjunni grænu berast á banaspjót mestalla síðustu öld.
Sem ungur fréttamaður á Stöð tvö ók ég í gegnum Belfast í mars eða apríl [...]
mar
24
Tískustraumar í þróunarsamvinnu
24. mars 2007 | Rita ummæli
Í gær hafði ég þann heiður að stjórna heilsdags málþingi um þróunarsamvinnumál. Átta félagasamtök stóðu að þinginu. Þau fengu meðal annars breskan fyrirlesara, Brian Pratt, reyndan þróunarsérfræðing sem starfaði áður með Oxfam, til þess að tala um stefnur og strauma í þessum málum.
Málflutningur hans kom mér á óvart. Þegar ég var að ganga milli sendiráða og herja á alþjóðastofnanir [...]
mar
21
Hvar er Britney; ekkert klám?
21. mars 2007 | 4 ummæli
Í dag gerðist það loksins. Allt í lagi, ég hef ekki skoðað skipulega, en í kvöld leit ég á listann á Vísi yfir Mest lesið (í dag) og Mest lesið í vikunni og á hvorugum listanum var fyrirsögn um Britney Spears eða um klám.
Áfergja okkar í fréttir af kynlífi og kynbombum er verðugt viðfangsefni fræðimanna. Hollywood [...]
mar
20
Sælir utan Sambandsins
20. mars 2007 | 1 ummæli
Breska ríkisútvarpið BBC er í dag með ágæta greiningu á stöðu þeirra fjögurra Evrópuþjóða sem af eigin vilja eru utan Evrópusambandsins. Höfundur hennar er Kjetil Wiedswang hjá Dagens Næringsliv. Og hann segir þetta: Norðmenn sjá einfaldlega ekki ástæðu til að ganga í ESB sökum eigin ríkidæmis, Íslendingar hafa góð rök fyrir að vilja ekki setja [...]
mar
20
Fjögur ár stríðs
20. mars 2007 | Rita ummæli
Fyrir fjórum árum hófu bandarískar herflugvélar loftárásir á Írak. Síðan hafa einhvers staðar á milli 60 og 65 þúsund óbreyttir Írakar látið lífið í átökum í landinu. Bush Bandaríkjaforseti hafði í gær eftir Petraeus hershöfðingja, yfirmanni Bandaríkjahers í Írak, að hann hefði ekki séð það svartara í 32 ára hermennskutíð sinni.
En hvernig gat ástandið orðið svona?
Þegar [...]
mar
18
Heimilið í hægagangi
18. mars 2007 | 1 ummæli
Á laugardag fyrir átta dögum sló eldingu niður í loftlínu milli Kolviðarháls og Geitháls. Í frétt á visir.is segir að atvikið virðist hafa haft áhrif á búnað hjá Reykjavíkurborg og álverinu í Straumsvík. Eins og greint var frá í fréttum þá var ein afleiðingin sú að bílakjallari við Sólvallagötu fylltist af vatni.
Tengdafjölskylda mín býr í [...]
mar
1
Í árdaga heimasíðna og bloggs voru flestar fyrirsagnir eins og þessi hér að ofan. Og verið velkomin á þetta nýja bloggsvæði á Vísi.
Hér vonumst við til að fólk birti umheiminum dagbókarfærslur af ýmsu tagi og skiptist á skoðunum um flest milli himins og jarðar. Flest, segi ég, því svona bloggsvæði lifa eða falla með því [...]
Varafréttastjóri Stöðvar tvö.