YouTube kosningar

30. maí 2007 kl. 21.50 |

Í Bandaríkjunum er mikið rætt um að forsetakosningarnar á næsta ári verði að miklu leiti háðar á YouTube, skiptivefnum fyrir myndskeið. Nú, einu og hálfu ári fyrir sjálfar kosningarnar, eru þrjár og hálf milljón manna búin að skoða myndskeið þar sem rödd Hillary Clinton er sett yfir fræga “1984 auglýsingu” Apple Macintosh.

Á ráðstefnu ritstjóra og útgefenda fréttavefja í síðustu viku var spurt hvaða áhrif þessi þróun hefði á kosningarnar, lýðræði og blaðamennsku. Upp hafa komið tilfelli þar sem hópar, oft laus- eða ótengdir stjórnmálaflokkum, falsa ávirðingar á einstaka frambjóðendur. Vel gerð myndskeið sem milljónir manna skoða á Netinu geta helsært forsetaframbjóðendur sem annars ættu nokkra von.

Og þau þurfa ekki einu sinni að vera fölsuð, bara fyndin eins og þetta myndskeið með John Edwards, sem nýlega var gagnrýndur fyrir að fara í 25.000 króna hárgreiðslu.

Ófyrirleitin myndskeið eru reyndar ekkert nýmæli í bandarískum kosningum. Fræg var auglýsingin um Willy Horton, blökkumann sem fékk reyslulausn úr fangelsi í Massachussetts og notaði frelsið til að fremja morð. Michael Dukakis studdi lög sem leyfðu reynslulausnina. En nú var Dukakis orðinn frambjóðandi til forseta og þá var Willy Horton málið notað gegn honum. Auglýsingin fræga sýndi röð fanga fara inn í fangelsi og strax út aftur.

YouTube var reyndar notað hér á landi fyrir síðustu kosningar, en með takmörkuðum árangri. Mér sýnist til dæmis að ekki hafi tekist að mála Samfylkingu og Vinstri Græna með rauðu, eins og hér var reynt.

Á vissan hátt má sjá tengingu milli myndskeiðanna á YouTube og fréttatíma sjónvarpsstöðvanna, annars vegar, og bloggs og hefðbundinna dagblaða, hins vegar. YouTube og bloggið eru dæmi um nýjar upplýsingaveitur en fréttatímar og dagblöð um þær gömlu. Mun almenningur setja traust sitt á myndskeið og bloggara á vefnum fremur en fagmenn í blaðamannastétt?

Já vonandi, segja margir. Hvernig er hægt að treysta einhverju ef maður veit ekki almennilega hver uppruninn er, segja blaðamenn. Það verður afar áhugavert að fylgjast með næstu kosningum í Bandaríkjunum.


Ummæli

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning