jún
20
Áfram Alfreð!
20. júní 2007 | 3 ummæli
Alfreð Gíslason hefur á því rúmlega ári sem hann hefur þjálfað íslenska karlalandsliðið í handbolta unnið hug og hjörtu þjóðarinnar. Þegar hann stýrir sínum mönnum af hliðarlínunni þá dugar ekkert hálfkák. Andlit hans leynir engum tilfinningum; við vitum hvenær hann er reiður við dómarann, við vitum hvenær hann fyllist angist við yfirvofandi tap og við vitum hvenær [...]
jún
19
Sjónvarpið kallar
19. júní 2007 | 1 ummæli
Vefurinn er framtíðin og því er ef til vill eitthvert nostalgískt afturhvarfsbragð af því að fara aftur að vinna í sjónvarpi. En teningunum er kastað. Ég hef sumsé ákveðið að ganga aftur til liðs við Stöð tvö, sem varafréttastjóri.
Ritstjóratíminn á Vísi hefur verið um margt ánægjulegur. Sérstaklega þótti mér fengur að því þegar staðfest var [...]
jún
10
Fimm stjörnur af fimm mögulegum
10. júní 2007 | Rita ummæli
Blaðamaður hjá dótturdótturfyrirtæki Baugs hættir sér út á hálan ís ef hann ætlar að hrósa vinnuveitendum sínum. En gamall hjálparstarfsmaður fær ekki orða bundist. Baugur fær fimm stjörnur af fimm fyrir fjárfestingu sína í ávaxtatrjám í Rúanda.
Fyrirtækið gerir ýmislegt rétt með aðstoð sinni við bændur í Rúanda. Í fyrsta lagið er valið á starfssvæði fyrsta [...]
jún
7
Egill og silfrið
7. júní 2007 | 1 ummæli
Bloggheimar titra af vandlætingu vegna meintrar ritskoðunar á Agli Helgasyni. Og hver skyldi hafa ritskoðað Egil? Jú, það mun hafa verið sá aumi ræfill sem hér ritar.
Áður en menn fara alveg úr límingunum er rétt að útskýra málið. Egill Helgason skrifaði um stjórnmál á ritstjórnarhluta Vísis. Það var hluti af starfssamningi hans við 365 og hann þáði laun [...]
jún
6
Staksteinar
6. júní 2007 | 3 ummæli
Staksteinar Morgunblaðsins eru dæmi um vel heppnað blogg, þó að það birtist á pappír. Það er skrifað daglega, er stutt og hnitmiðað og í því blandast skemmtilega saman yfirvegaðar skoðanir skrifarans og fljóthugsaðar athugasemdir í dagsins önn.
Í morgun ráðast Staksteinar á nýjan utanríkisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, og finnst hún vera að sóa peningum með því að ráðgera ferð [...]
jún
4
Pálmi vondur
4. júní 2007 | Rita ummæli
Pálmi ógnar plönturíki Noregs Fyrirsagnir geta verið stórskemmtilegar, eins og allir þeir sem horfa á Tonight Show þáttinn með Jay Leno vita. Þegar ég ferðaðist um Asíu gat verið óstjórnlega fyndið að lesa heiti veitingahúsa, þegar búið var að rita kínverska nafnið með latnesku letri. Blaðið Far Eastern Economic Review hélt úti heilum dálki með slíku skemmtiefni. [...]
Varafréttastjóri Stöðvar tvö.