Staksteinar

6. júní 2007 kl. 19.12 |

Staksteinar Morgunblaðsins eru dæmi um vel heppnað blogg, þó að það birtist á pappír. Það er skrifað daglega, er stutt og hnitmiðað og í því blandast skemmtilega saman yfirvegaðar skoðanir skrifarans og fljóthugsaðar athugasemdir í dagsins önn. 

Í morgun ráðast Staksteinar á nýjan utanríkisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, og finnst hún vera að sóa peningum með því að ráðgera ferð til landanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Ekki þarf svo sem að gera sérstaka athugasemd við þá skoðun; hún á alveg rétt á sér.

En svo klykkja Staksteinar út með þessari áhugaverðu niðurstöðu: “Fyrirfram hefði mátt ætla, að Ingibjörg Sólrún yrði jarðbundnari en svo að hún hæfi þann þykjustuleik að halda að smáþjóðin í norðri geti haft einhver áhrif í Miðausturlöndum!!”

Ætli Norðmennirnir sem komu svokölluðu Óslóarfriðarferli af stað á sínum tíma hafi hugsað svona?


Ummæli

3 ummæli fram að þessu

  1. Árni Svanur þann 6. júní 2007 22.58

    Ég veit ekki hvort ég er sammála þér þegar þú segir að Staksteinar séu vel heppnað „blogg“. Fyrir mitt leyti er ég tregur til að líta á efni sem birtist fyrst og fremst í prentuðum fjölmiðli (og er svo endurbirt á netinu) sem blogg - jafnvel þótt það sú endurbirting fari fram á blog.is. Hitt er svo annað mál að formið á Staksteinum kann að eiga sitthvað sameiginlegt með forminu á sumum bloggfærslum og að því leyti kann hér að vera um áhugaverða hliðstæðu að ræða, svona formlega séð ;)

  2. Þórir þann 6. júní 2007 23.31

    Það er kanski helst stíllinn sem minnir dálítið á bloggfærslur, svona eins og við þekkjum þær hér á landi. Pínulítið óformlegri en í blaðagrein og getur vel endurspeglað lundarfarið þegar skráð er.

  3. Árni Svanur þann 7. júní 2007 0.36

    Ég get alveg tekið undir það. Það verður líklega skemmtilegt viðfangsefni fyrir íslenskufræðinga og málvísindamenn að skoða stíl og málfar á bloggi. Nógur er efniviðurinn.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning