jún
7
Egill og silfrið
7. júní 2007 kl. 2.08 |
Bloggheimar titra af vandlætingu vegna meintrar ritskoðunar á Agli Helgasyni. Og hver skyldi hafa ritskoðað Egil? Jú, það mun hafa verið sá aumi ræfill sem hér ritar.
Áður en menn fara alveg úr límingunum er rétt að útskýra málið. Egill Helgason skrifaði um stjórnmál á ritstjórnarhluta Vísis. Það var hluti af starfssamningi hans við 365 og hann þáði laun fyrir það. Eftir að Egill tjáði mér að hann væri hættur störfum gerði ég það sem ég geri venjulega þegar starfsmenn hætta og bað um að lokað yrði fyrir aðgang hans að ritstjórnarkerfi Vísis.
Mér sýnist margir gera því skóna að Ari Edwald forstjóri 365 hafi fyrirskipað þetta í reiðikasti. Sú hugmynd passar ágætlega inn í plottið um stríð milli hans og Egils, en staðreyndin er hversdagslegri. Hún er sú að ég ráðfærði mig ekkert við Ara enda engin ástæða til.
Ég held ekki að menn þurfi að hafa reynslu af því að stjórna fjölmiðlum til að skilja að þegar fréttamaður fer yfir til samkeppnisfyrirtækis þá er ekki óeðlilegt að hann hætti að fara inn á ritstjórnarkerfi miðilsins sem hann er að yfirgefa.
Allir þeir sem hafa unnið með Agli Helgasyni vita að hann verður ekki ritskoðaður. Og mér sýnist hann ekki vera í neinum vandræðum með að tjá sig nú sem endranær.
Ummæli
1 ummæli fram að þessu
Varafréttastjóri Stöðvar tvö.
Ég hef nú ekki sett mig inn í þetta mál, en maður kemst varla hjá því að verða var við allar umræðurnar í bloggheimum! Einu velti ég fyrir mér við lestur færslunnar þinnar:
Getur verið að þennan titring (eða misskilning) megi að einhverju leyti rekja til þess að rætt hefur verið um skrif Egils sem blogg (t.d. í Fréttablaðinu) og menn hafa því ekki endilega áttað sig á stöðu hans gagnvart Vísi?