júl
4
Alan frjáls, fréttamenn í hættu
4. júlí 2007 kl. 14.01 |
Sem ég skrifa þetta fylgist ég með Alan Johnston fréttamanni BBC þakka kollegum sínum fyrir að hafa ekki gleymt sér í þá 114 daga sem hann dvaldi í dýflissu mannræningja á Gaza. Einhvern tíma meðan hann dvaldi með mannræningjum komst hann yfir útvarp og gat hlustað á BBC World Service.
“Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það hafði mikla þýðingu fyri mig, liggjandi innilokaður í klefa, að vita af ykkur og stuðningi ykkar,” sagði Alan í gervitunglasambandi við kollega sína, sem höfðu safnast saman fyrir utan höfuðstöðvar BBC í dag, eins og þeir hafa gert vikulega síðan honum var rænt.
Síðustu ár hafa ekki verið góð fyrir fréttamenn sem fylgjast með átakasvæðum í heiminum. Alan Johnston er frjáls en margir aðrir eru enn í klóm mannræningja, þar af sex sem hefur verið rænt í Írak á þessu ári. Það sem af er árinu hafa 24 fréttamenn verið myrtir, ekki bara í Írak heldur líka í Rússlandi, Afganistan, Tyrklandi, Gaza, Pakistan, Sómalíu, Brasilíu, Kína, Guatemala… og árið er rétt hálfnað.
Árásir á blaðamenn haldast í hendur við aukið óöryggi hjálparstarfsmanna um allan heim. Ýmis öfl hafa alltaf haft hag af því að viðhalda upplausnarástandi á vígaslóðum. Þeir sem hafa marga fjöruna sopið í þessum efnum segja þó að það sé eins og virðing hafi farið þverrandi fyrir þeim sem sinna verkefnum á átakasvæðum án þess að tilheyra deiluaðilum. Þar er einkum um að ræða hjálparstarfsmenn og fréttamenn.
Mönnum þykir kanski ekki undarlegt þó að fagfólk á vettvangi átaka lendi í lífshættu. Og sumpart er það skiljanlegt. Þeir sem hafa verið á slíkum vettvangi vita að hættulegasta tímabilið er þegar líkur eru á endalokum átaka. Þegar deiluaðilar eru að ná saman um vopnahlé rísa upp allir glæpamennirnir sem hafa hag af óstöðugleika.
Í Tadsíkistan, þar sem ég sinnti störfum fyrir Rauða krossinn á sínum tíma, voru það ópíumsmyglarar sem fóru á kreik þegar samningar voru að nást um vopnahlé stjórnvalda og uppreisnarmanna. Þeir höfðu þá um árabil notið góðs af ástandinu, því að á meðan yfirvöld einbeittu sér að stríðinu gegn skæruliðum þá voru eiturlyfjasmiglarar eins og fiskar í vatni.
Ástandið er svipað víða um heim. Hið svokallaða stríð gegn hryðjuverkum hefur gert illt verra. Í nafni þeirra alheimsátaka vaða uppi alls kyns hópar sem víla ekki fyrir sér að fótumtroða mannréttindi og annars viðurkenndan rétt fréttamanna og hjálparstarfsmanna til að athafna sig. Svo virðist sem einmitt slíkur hópur hafi rænt Alan Johnston. Nú er hann frjáls. Það er einn sætur sigur fyrir frelsi fréttamanna til að sinna upplýsingaöflun á vettvangi, okkur fréttaþyrstum áhorfendum og lesendum til góða.
Varafréttastjóri Stöðvar tvö.