júl
19
Slysagildrur loks teknar alvarlega
19. júlí 2007 kl. 0.09 |
Dalvegur við Digranesveg og Dalsmára lokaður vegna slysahættu Lokun Dalvegar vegna lélegs frágangs verktaka er góð frétt. Loks hefur maður tilfinningu fyrir því að öryggi umferðarmannvirkja sé tekið alvarlega.
Vegagerðarmenn á Íslandi hegða sér enn eins og þeir séu uppi á fyrri hluta síðustu aldar, þegar bílar voru fáir og menn óku á 45 kílómetra hraða um holótta malarvegina. Þá var engin sérstök ástæða til að vara menn við hættum á vegum; það var nógur tími til að stoppa.
Nú víla menn ekki fyrir sér að loka annarri af tveimur akreinum umferðaræðar á höfuðborgarsvæðinu og láta vita af því með örvarskilti 30 metrum fyrir lokun. Það að vegavinnumenn skuli ekki vera daglega eknir niður af ökumönnum sem sjá ekki slík skilti fyrr en of seint er mikil mildi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir ekki ólíklegt að verktakinn verði ákærður fyrir að valda slysahættu. Vonandi verður málinu fylgt fast eftir.
Varafréttastjóri Stöðvar tvö.