maí
17
Evrópa á dagskrá?
17. maí 2007 | Rita ummæli
Samstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks setur Evrópumálin á dagskrá. Ég ætla að þora að spá þessu hér og nú. Í stjórnarsáttmála er óhugsandi annað en að Evrópumálin verði nefnd og nú hefur Geir H. Haarde tækifæri til að klippa endanlega á strenginn við forvera sinn í embætti flokksformanns. Fyrir Ingibjörgu Sólrúnu væri niðurlægjandi að koma ekki áherslu á [...]
maí
9
Færist nú fjör í leikinn
9. maí 2007 | 1 ummæli
Loks hljóp einhver vottur af fjöri í kosningabaráttuna í maraþonþætti Stöðvar tvö í kvöld um þingkosningarnar á laugardag. Foringjar flokkanna voru augljóslega búnir að undirbúa sig vel, sérstaklega Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem naut þess einnig að vera eina konan í hópnum. Geir Haarde stóð sig ágætlega að vanda; hefur varla halað inn mörg atkvæði en áreiðanlega [...]
maí
2
Fagmennska fram í fingurgóma
2. maí 2007 | 1 ummæli
Sigmundur Ernir og hans lið lokuðu hringnum í kvöld með framúrskarandi kosningaþætti í Reykjavík norður. Þau hafa þá farið í öll kjördæmin og rætt við oddvita flokkanna í hverju þeirra, nema reyndar Íslandshreyfingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Þeim fannst meira um að vera í Danmörku það kvöld og tefldu fram þriðja manni á lista.
Líklega gera fáir sér [...]
apr
26
Skrifað undir með bros á vör
26. apríl 2007 | 2 ummæli
Íslendingar bera kostnað af veru norskra hermanna hér Ýmislegt er athyglisvert við samninginn við Norðmenn, sem var undirritaður í dag. Eins og oft vill gerast í umræðu á Íslandi, þá risu menn strax upp á afturfæturna út af því sem minnstu máli skiptir, það er hugsanlegum kostnaði.
Eftir því sem umræður spunnust, með mótmælum Steingríms J., [...]
apr
23
Formenn í fínni Nærmynd
23. apríl 2007 | 4 ummæli
Nærmynd Þóru Kristínar og Sigmundar Ernis um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur á Stöð tvö í kvöld var vönduð og ítarleg, eins og þessir þættir allir hingað til. Þóra Kristín hefur einblínt á persónurnar sjálfar fremur en málefnin og það hefur heppnast afskaplega vel. Við höfum áhuga á málefnunum en viljum líka vita hvaða fólk þetta er [...]
apr
1
Frjálslyndir taka af skarið
1. apríl 2007 | 9 ummæli
Með heilsíðuauglýsingu um innflytjendamál í Fréttablaðinu í dag hafa Frjálslyndir tekið af skarið. Þeir ætla að keyra á undirliggjandi óvissu meðal Íslendinga um afleiðingar þess mikla straums útlendinga sem hingað hefur legið á síðustu árum.
Hingað til hafa Frjálslyndir reynt að haga orðum sínum þannig að áherslur þeirra séu ekki bara á varhug gagnvart hingaðkomu útlendinga [...]
mar
31
Áhugaverðar hugmyndir, ósjálfráð viðbrögð
31. mars 2007 | Rita ummæli
Leggur til að stofnað verði 240 manna varalið Björn Bjarnason leggur til að stofnað verði 240 manna varalið lögreglu. Fyrstu viðbrögð margra, eins og Adda Steina kona mín benti réttilega á í útvarpsviðtali í morgun, voru að afskrifa hugmyndina strax því þarna væri Björn enn einu sinni að reyna að stofna íslenskan her. Okkur hættir [...]
mar
29
Háflug á vinstri væng
29. mars 2007 | Rita ummæli
Innanbúðarmaður úr Sjálfstæðisflokki sem ég hitti á förnum vegi í gær var orðinn verulega áhyggjufullur. “Ætlar fólk að kjósa okkur tuttugu ár aftur í tímann?” spurði hann og benti á andstöðu Vinstri-grænna við aðskiljanleg þjóðþrifamál á undanförnum árum.
Sjálfstæðismenn - eftir að hafa beint spjótum sínum að Samfylkingunni og gefið Vinstri-grænum frítt spil í marga mánuði - [...]
Varafréttastjóri Stöðvar tvö.