Um mig
Þórir Guðmundsson heiti ég og er ritstjóri Vísis. Eiginkona mín er Adda Steina Björnsdóttir. Saman eigum við tvo stráka, Unnar og Björn.
Ég er menntaður í Bandaríkjunum og Belgíu; tók BS próf í fjölmiðlafræði frá ríkisháskólanum í Kansas og MA próf í alþjóðasamskiptum frá Boston háskóla.
Ef frá eru talin sendilstörf, blaðburður, lausasala blaða og aðstoð við bókhaldsvinnu móður minnar á unga aldri - kolólöglega starfsemi samkvæmt vinnumarkaðstilskipunum Evrópska efnahagssvæðisins - þá hef ég verið blaðamaður lengst af. Það ævintýri hófst með ljósmyndun í lausamennsku fyrir Morgunblaðið en fyrsta starfið í þessum geira fékk ég sumarið 1976 sem aðstoðarljósmyndari (a.k.a. myrkrakompudrengur) á forvera vefsins sem ég er nú ritstjóri fyrir, sumsé á dagblaðinu Vísi.
Fréttamennska af einu eða öðru tagi hefur fleytt mér milli fjölmiðla, frá Vísi yfir á DV, þaðan á RÚV og svo til Stöðvar tvö þegar hún fór í loftið 9. október 1986. Ég tók mér nokkrum sinnum frí frá sjónvarpsfréttamennsku á Stöð tvö, fyrst þegar við hjónin fórum til Mið- og Austur-Evrópu árið 1990 (bjuggum í Búdapest), næst þegar við fluttum til Brussel í tvö ár og svo skömmu síðar þegar ég hóf að vinna fyrir Alþjóða Rauða krossinn í Mið-Asíu árið 1996. Við fjölskyldan bjuggum tvö ár í Kazakstan og eitt og hálft ár í Malasíu. Eftir heimkomuna hélt ég áfram að vinna fyrir Rauða kross Íslands en fór þaðan yfir á NFS haustið 2005.
Nú er starf mitt fyrst og fremst að vinna að uppbyggingu Vísis þannig að hann verði uppáhaldsfréttavefur landsmanna. Samkeppnin hefur talsvert forskot - en við erum betri!
Varafréttastjóri Stöðvar tvö.