tom

Gamli keeperinn

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


  • Heimsóknir

    Í dag: 40 Alls: 97917

  • Flettingar

    Í dag: 107 Alls: 196895

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


Kveðjugjöfin ekki ódýr

tom 14. desember 2007

Þegar það er rétt rúmur klukkutími eftir af rúmlega tveggja ára starfi mínu hér verður tilfinningin að fara heim í síðasta skiptið héðan æ skrýtnari.

Ég er búinn að mynda allt í bak og fyrir og mun bjóða upp á kveðjufærslur þegar jú, gamla sagan, ég læri á iSímann.

Kveðjugjöfin var hressandi frá yfirvaldinu. Miði á leik á Old Trafford. Get valið milli leikja Manchester United og Portsmouth, City, Bolton, Villa eða West Ham.

Auðvitað fylgdi vínandinn með og hann var ekki af ódýrari gerðinni. Tólf ára Chivas Regal, Premium Viskí. Get menningað yfir mig um jólin með því. Þakka Samstarfsfólki mínu kærlega fyrir þetta.

Fært undir Vinir og fjölskylda | 9 ummæli »

Tveggja daga fögnuður

tom 13. desember 2007

Tveggja daga stanslausum hátíðarhöldum samstarfsfólks míns vegna uppsagnar minnar í gær byrjaði í morgun með pomp og prakt.

Þegar ég mætti í morgun var á boðstólum tvö föt af ofnrétti, risastór brauðterta, pönnukökur, brúnar og ljósar randalínur og þrjár sortir af smákökum.

Í hádeginu var svo pantaður bakki frá Jóa Fel sem innihélt fjórar gerðir af brauði, rjómaosta, pestó, hvítan kastala og risastórar súkkulaðismákökur. Hvað verður svo í kvöld veit ég ekki. Líklega endur og Humar eða eitthvað.

Á morgun munu svo allir (ca 200) starfsmenn fyrirtækisins, fagna brottför minni með heitu súkkulaði og meðlæti í kaffitímanum á morgun.

Ef ég kynni betur á i-Símann minn myndi ég sýna ykkur myndir af þessum kræsingum en vegna tæknilegra vandamála gengur það ekki upp.

Fært undir Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »

Ljósmyndarinn ég

tom 12. desember 2007

flott mynd

Flott mynd í frétt á Eyjunni í dag.

Hvert sendir maður reikninga fyrir svona?

http://blogg.visir.is/tom/2007/09/17/skotastukan-i-fyrsta-sinn/

Fært undir Fjölmiðlar, Umhverfi, Umræðan, Íþróttir | 1 ummæli »

Raspaður Kjúlli

tom 7. desember 2007

Á hverjum föstudegi í vinnunni eldar einhver starfsmaður fyrir alla. Fær til þess fjárráð hjá yfirvaldinu og má elda í raun hvað sem er. Með hverjum föstudeginum sem líður nálgast mitt hlutverk í þessu en hingað til hef ég náð að koma þessu yfir á aðra.

Í dag til dæmis sagði ég að samstarfskona mín sem var ekki mætt í vinnuna hefði áhuga á að taka næsta föstudag og kom mér þannig undan því. Hún kann víst ekki að elda þannig það ætti allavega að vera fróðlegt. Síðasta föstudag kom ég þessu yfir á Pólverjana hressu, þá Tomasz, Krzystof og Przmyslaw sem vinna út í pakkhúsi. Það var alltaf augljóst að máltíðin í dag yrði athyglisverð og sú varð raunin.

Þegar ég mætti að ná mér í af hlaðborðinu sá ég að eldaður hefði verið fiskur í raspi. Ekkert að því, fiskur í raspi er tímalaus klassík frá Langholtsvegi 144 hjá ömmu allt síðan 1984. Ekki var þetta fiskur, ekki alveg. Það sem Pólverjarnir geðþekku buðu upp á var kjúklingur í raspi með sóðnum kartöflum og drukknuðu salati.

Drukknuðu salati segi ég því þegar salatið var komið í skálina var helt yfir það ca 20 dósum af fetaosti með öllu og ólíunni með. Minningarathöfn var haldin fyrir salatið áður en borðhald hófst.

Ég tók mér drjúgan tíma í að meta matinn. Þetta var ekki vont. Ekkert geðveikt. Aðeins betra en ágætt. Þetta var…spes.

laglegt

Ofan á raspbitunum bráðinn ostur og sveppir.

Fært undir Matur og drykkur, Menning og listir | 3 ummæli »

Breytingar í Fram-crew?

tom 7. desember 2007

Fram-crew (eins og ég kýs að kalla þá) er fimm manna hópur afar góðra handboltamanna sem ekki bara spila í öflugu liði Fram heldur mæta á alla handboltaleiki sem fara fram á Íslandi.

Í hópnum er hinn magnaði markvörður Björgvin Páll Gústavsson, línumennirnir Einar Ingi Hrafnsson og Haraldur Þorvarðarson, og skytturnar Jóhann Gunnar Einarsson og Rúnar/Einar/Jón Kárason/Björgvinsson.

Það er vart farandi á handboltaleik án þess að þetta myndarlega crew sé á staðnum og þá sérstaklega á leiki kvennaliðs Fram. Þeir hafa mætt á alla kvennaleiki Fram sem ég hef farið á og þeir eru ekkert að rækjusamloka þetta heldur hvetja þeir sínar konur áfram. Þeir klappa, stappa, öskra og styðja sínar stelpur áfram. Stór plús á strákana fyrir það.

Í gær voru hinsvegar breytingar crew-inu. Jóhann Gunnar er líklega í prófum og því var hægt að afsaka fjarveru hans. Hans stöðu tók miðjumaðurinn knái, Daníel Berg Grétarsson. Það athygliverðasta þó var að Ferenc Buday, þjálfari strákanna, hafði tekið stöðu Einars Inga Hrafnssonar í crew-inu. Ég sá Einar strunsa (labbaði samt bara, strunsa hljómar betur) úr úr Fram húsinu í gær. Spurning hvort strákarnir hafi verið með einhverjar breytingar fyrir leik. Einar out, Buday inn?

Það vantaði samt ekkert upp á stemninguna í Buday sem fór á kostum í sínum fyrsta leik með Fram-crew. Plötusnúður kvöldins bauð svona sjö sinnum upp á hið dýnamíska lag, Framarar…Framarar, og Buday var ekkert að leiðast það. Í hvert einasta skipti sem það kom á fóninn lyfti karlinn höndum upp fyrir haus, klappaði og söng hástöfum með. Buday gerði gott mót í gær enda geðþekkur með eindæmum og greinilega orðinn mikill Framari.

Mér finnst samt skrýtið að enginn annar hafi tekið eftir þessu. Þetta er jú eftir allt mjög eðlileg pæling.

FRAMARAR…FRAMARAR

Sjá Buday maður, flottur! Rúnar Kárason, hress líka og Bjöggi líklega að hringja í Einar og segja honum að hann sé endanlega out.

Mynd: Fram.is

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

H to the atton

tom 6. desember 2007

www.visir.is Bestu skotin í orðastríði Hatton og Mayweather

Það er óralangur tími síðan maður hreinlega beið eftir boxbardaga. En það er bara ekki annað hægt þegar Ricky Hatton er annars vegar. Maðurinn er þvílíkur keppnismaður og með hjartað á réttum stað enda Englendingur.

Floyd Mayweather gerir í því að láta hata sig og það heppnast bara mjög vel hjá honum fyrir mitt leiti. Ég þoldi hann nú ekki fyrir en eftir að ég sá Mayweather, Hatton 24/7 þáttinn á Sýn hata ég manninn. Held að ég gæti bara ekki haldið meira með Hatton þó ég reyndi.

Gullkornin í fréttinni eru hressandi og það fengu fleiri að fljúga í þættinum.

Ég verð vonsvikinn ef Bubbi og Ómar mæta ekki báðir. Það er alltaf annar hvor þessa daganna þegar box er í sjónvarpinu. Sýninginn hefst kl 02:00 á laugardagsnóttina. Spurning um að taka landann á þetta eins og þegar við horfðum á Tyson í den. Það fór vel, helvíti vel.

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Á Kiddi Jak séns í lokaumferð meistaradeildarinnar?

tom 5. desember 2007

Kjötiðnaðarmaðurinn, tuddaeigandinn og gæðadómarinn Kristinna Jakobsson dæmir leik Everton og nýkrýnda Rússlands meistarar, Zenith St. Pétursborg í kvöld í Evrópukeppni félagsliða. Við í áhugamannaklúbbi íslenskra dómara erum að binda vonir okkar við að góð frammistaða í þessum leik gæti skilað honum einum leik í 6. leikviku meistaradeildar Evrópu.

Ef svo skemmtilega skyldi fara að hann fengi leik í lokaumferðinni eru mjög miklar líkur á því að það yrði bara einhver sultu leikur til að byrja með og því reynt að finna leik sem skiptir litlu máli. Því miður fyrir Kristinn eru ekki margir leikir sem skipta ekki máli en það eru þó nokkrir.

Í A og B  riðli er enn háspenna í kringum alla leiki þar sem öll átta liðin (Liverpool, Marseille, Porto, Besiktas, Chelsea, Valencia, Shalke og Rosenborg) eru að keppa að einhverju.

Í C riðli eiga öll liðin (Real Madrid, Olympiakos, Bremen og Lazio) möguleika á sæti í 16 liða úrslitum og D riðill kláraðist í gær.

Í  E riðli skipta leikir Rangers og Lyon og Barcelona og Stuttgart máli þannig ekki er líklegt að hann fái leik þar.

Það er ekki fyrr en í F riðli að Kiddi ætti auðveldlega að geta fengið leik. Sporting og Dýnamískir Kiev eigast þá við í leik sem skiptir engu máli. Sporting eru komnir í Evrópukeppni félagsliða, eiga ekki möguleika á sæti í 16 liða úrslitum meistaradeilldarinn og Kiev eiga ekki möguleik á að ná þeim.

Í G riðli skipta báðir leikirnir máli líka en Kiddi gæti auðveldlega tekið leik Slavia Prag og Sevilla í H riðli. Sevilla eru komnir í 16-liða úrslitin og Slavia geta ekkert nema komist í Evrópukeppni félagsliða.

Sporting Lissabon - Dynamo Kiev

Slavia Prague - Sevilla

Þessa leiki getur Kristinn auðveldlega tekið.

Auðvitað getur hann dæmt alla leiki þarna en UEFA hafa hingað til ekkert gefið íslenskum dómurum of mikinn séns á meðan 5., 6. og 7. bestu dómarar Svíþjóðar og Noregs eru komnir í meistaradeildina.

Kristinn er á Goodison í kvöld á hinni umdeildu stöð, Sýn.

Fært undir Íþróttir | 4 ummæli »

Ótrúlegir Þróttarar

tom 5. desember 2007

Ég veit ekki við hverju ég bjóst þegar ég fór á leik Þróttar úr Vogum og Víkings í Eimskipsbikarnum í handbolta í fyrradag. Þróttur leikur ekki í deildarkeppni og Víkingur er í 1. deildinni.

Þegar ég mætti á staðinn tæpum hálftíma fyrir leik sá ég örfáar hræður, þó í klædd appelsínugula boli, að grilla pylsur. Þarna voru ca 4-5 stuðningsmenn og fannst mér þetta afar krúttlegt en um leið svolítið lame því ekki voru margir mættir. Það voru mistök hjá mér.

Þegar dyrnar af Strandgötunni opnuðust fór ég að heyra dynjandi köll og trommuslög innan úr sal og ég sver það ég hélt að einhver annar leikur væri í gangi. Hvort það væri að klárast körfuboltaleikur eða ég hreinlega veit ekki hvað. Því nær sem ég fór því meiri voru lætin og ég varð orðlaus þegar ég loks kom inn í salinn.

Þarna var hálf stúkan í Strandgötu gjörsamlega smekkfull af fólki, allir klæddir í appelsínugula boli, liti liðsins, og efst voru ungir krakkar að öskra sig hásan og svona fimm bassatrommur slegnar af ungum piltum. Nota bene, það voru enn 25 mínútur í leik.

saell
Svona var stemningin 25 mínútum fyrir leik.

Þegar liðið byrjaði svo að hita upp urðu öskrin enn meiri á meðan haltir en þó hressir leikmenn Þróttar skokkuðu, ekki mjög hratt, fram og aftur. Svo þegar Siggi Sveins tók eitt jogg að fólkinu haldandi á bolta ætlaði nú hreinlega allt um koll að keyra.

Þegar leikurinn hófst voru ekki margir Víkingar mættir en lætin ótrúlegt í Þrótturum. Þessi stuðningur Þróttarar kveikti svo heldur betur í stuðningsmönnum Víkings sem tóku vel við sér og fóru að öskra sig hásan í stuðningi við sitt lið.

Það skipti engu hversu langt Víkingarnir fóru fram úr Þrótturum, alltaf öskruðu Voga búar jafn hátt í hvert skipti sem þeir skoruðu mark.

Þetta hús, íþróttahúsið við Strandgötu, hefur í mörg ár boðið upp á magnaða leiki hvort sem það hafa verið derby leikir Hauka og FH eða leikir í úrslitakeppnum. Stemningin á mánudaginn var engu síðri ef við gefum okkur status þessara liða. Að vera þarna inn og verða vitni af þessu var magnað.

Fært undir Íþróttir | 3 ummæli »

Fótbolti með sjónauka

tom 3. desember 2007

Ódýr færsla hér á ferð. Skrifa bara smá texta um hvað videoið sem fylgir hér á eftir er fyndið og hendi því svo inn. Þetta er samt fáránlega fyndið. Síðuhaldið þakkar www.bilasalan.is fyrir þetta.

Eitthvað að ræða gaurinn með kanínuhausinn?

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »

Tvíhöfði með stressa og magnaðri kynningu

tom 3. desember 2007

Tók tvíhöfða í gær í sportinu. Sá Trotsenko og félaga úr Eyjum mæta í Digranesið og svo botnslag Stjörnunar og ÍR í Ásgarði í körfunni.

Trotsenko olli engum vonbrigðum og skoraði 12 mörk. Reyndar úr 27 tilraunum en þeir skora sem skjóta. Ég heimta að sjá ÍBV liðið eins og þeir voru í leiknum sem þeir unnu gegn Aftureldingu. Alltaf þegar ég sé þá er sóknarleikurinn sífellt verri og í gær voru þeir mættir aftur í brottvísana ruglið. Eitthvað sem þeir þurfa svo sannarlega ekki.

Um daginn sagði ég að ég vildi sjá meira af Friðriki Sigmarssyni, hinum 17 ára gamla markverði ÍBV. Aðalmarkvörðurinn, Kolbeinn Arnarson, sem einnig er 17 ára gamall er líka mjög efnilegur. Hann er hávaxinn og getur dottið í ágætan gír. Var með fína prósentu í gær en þessum strákum tveim er oft hrein vorkunn að standa þarna.

Höddi mætti fyrir hönd DV og lenti heldur betur í klónum á einkar einbeittum starfsmanni RÚV. Fyrst bankaði Höddi eitthvað í borðið og fékk þá höstulegar skammir og svo skömmu síðar hlógum við að fyndnu atviki út á velli og þá hreytti hann í okkur. Hann tók svo bara kameruna af þrífætinum og fór niður á gólf til að fá einhver önnur sjónarhorn. Veit ekki alveg hvað það átti að vera en það sést væntanlega í Sportinu með Hrafnkeli í kvöld. Það gæti verið að svar RÚV við betri umfjöllun um handboltann verði svarað með öðrum sjónarhornum

sur
Eins og má sjá var Höddi alveg í rusli greyið eftir öskur vonda mannsins sem stendur þarna röndóttur fyrir aftan. Þetta leystist nú samt allt í góðu og allir voru vinir í Digranesi.

Þegar ég var búinn að horfa aðeins á utandeildarlið HK í handbolta með myndarlegasta markvörð landsbankadeildarinnar, Gunnleif Gunnleifsson, sem vinstri skyttu, var haldið í Ásgarð.

Í Ásgarði var ekki bara boðið upp á Bolvíska stálið sem mætti á sínum venulega tíma heldur líka sama myndatökumann og í Digranesinu. Þar varð hann aftur reiður en núna út í aðra. Hann stillti sér upp fyrir miðri stúkunni og var sítruflaður af urmul stráka sem hengu þarna uppi. Í þetta skiptið var reiði hans mjög skiljanleg. Hann var jú bara að vinna vinnuna sína.

sur
Þarna er okkar maður með strákana í baksýn. Þeir voru mun fleiri þegar þjóðhátíðin var í gangi. Aftur skrapp hann niður á gólf til að ná öðrum sjónarhornum og takið eftir þessu… Hann var allan leikinn! Ekki veit ég hvað er að gerast á RÚV.

Sá sem rak strákana burt var einhver virkilega hress stjórnarmaður hjá Stjörnunni sem bauð upp á bestu leikmannakynningu ársins í öllu sporti og þó víðar væri leitað.

Míkrófónninn var bilaður og því skellti minn sér bara niður á gólf og út á miðjan völlinn. Þar stóð hann bara og brýndi raustina og kláraði kynninguna á hressandi máta sem fór vel í fjölmarga áhorfendur í Ásgarði í gærkvöldi.

Eflaust er ekki hægt að skila stemningunni með þessu video en það verður nú að fá að flakka með.

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »

Grindavík í ruglinu

tom 30. nóvember 2007

Svo virðist sem umgjörðin í Grindavík sé ekki að halda mönnum í fiskibænum indæla.

Grindavík:

Komnir:
(Enginn)

Farnir:
Jóhann Helgason, í Val (Til baka úr láni)
Óli Stefán Flóventsson í Fjölni
Helgi Már Helgason, hættur í Grindavík
Ivan Zgela, farinn heim
Ivan Firer, farinn heim
Marinko Skaricic, farinn heim
Mounir Ahandour, farinn heim
Paul McShane í Fram

——-

Eitthvað þurfa Grindvíkingar að gera ætli þeir sér ekki beint niður aftur. Sagan er sú að peningatréð fræga sem hefur haldið mönnum við efnið sé látið og því erfiðara að halda mönnum í liðinu. Sögusagnir vissulega en maður neyðist til að trúa því meir og meir.

Þetta er leiðinlegt fyrir þetta lið sem býður upp á svo frábæra umgjörð fyrir efstu deildar fótbolta og eiginlega bara missir af því að hafa þá ekki með. Þeir fótboltamenn sem maður talar við eru alltaf jafn ánægðir að spilar í Grindavík. Frábær völlur, stór stúka og fiskurinn eftir leiki gerir góða hluti.

Það er allavega morgunljóst að Grindjánar þurfa að bæta mönnum í fyrri flokkinn að ofan ætli þeir ekki á Selfoss tímabilið 2009.

Lykilatriði núna fyrir þá gulu: Halda Scott Ramsey.

Fært undir Íþróttir | 5 ummæli »

Sáuði leikinn í gær?! EKKI ÉG, ÉG SÁ BARA EKKI NEITT!

tom 30. nóvember 2007

Ég var búinn að bíða í viku eftir stórleik þjóðardeildarinnar í NFL, Dallas Cowboys - Green Bay Packers. Ég kom heim eftir Stjarnan - Haukar í gærkvöld, heldur betur tilbúinn í action, búinn að setja upp vott og þurrt og beið spenntari eftir leiknum en dekrað barn á jólunum. Ég var meira að segja búinn að ná mér í blund fyrr um daginn til að endast í alla nótt. Það var bara allur gærdagurinn og fyrri dagar miðaðir við að ná þessum leik.

Klukkan er að slá miðnætti og rúm klukkustund í leik þegar þetta gerist.

ju gaman

Algjört myrkur verður í húsinu.

Ég þreifa fyrir símanum, hinum dýnamíska k550i, og finn hann að endingu. Set á hið magnaða vasaljós sem síminn býður upp á og kom mér að rafmagnstöflunni. Þegar ég opnaði hana sá ég að allir sleðarnir voru uppi, skrýtið.

Um daginn sló allt út hjá vini mínum í gamla hverfinu þannig mér datt í hug að eitthvað svipað hefði gerst og opnaði útidyrahurðina. Þá sá ég að almyrkvi var yfir götunni, greinilega bilun í gangi.

Ég strauk mér nú um ennið og þakkaði guði fyrir það að það væri einn og hálfur tími í leik. Engin bilun gæti varað svo lengi yfir.

Ég hringdi í 118 til að fá símann hjá orkuveitunni þar sem konan spurði mig hvort ég væri að hringja úr Ártúnsholtinu. Ég er ekki vanur því að starfsmenn 118 séu með sál þannig mér brá aðeins í brún. Ég tjáði henni að ég væri að hringja þaðan og í sama mund sagði hún mér að ég væri nú ekki sá fyrsti og gaf mér númerið hjá beiðnaskrifandi, pendúlelskandi fólkinu í Orkuveitunni.

Ég hringdi:

OV: Orkuveitan, bilanir. (svaraði vaktmaður)

tom: já góða nóttið, rafmagnið er farið af húsinu mínu…

OV: já ertu í Ártúnsholtinu? Kvíslunum?

tom: já….

OV: Það verður slökkt þar frá 00:00 og fram á morgun, það er verið að skipta um flumflum. Þú fékkst miða um þetta í dag.

FÉKK ÉG MIÐA UM ÞETTA Í DAG????

Í ÖLLU JÓLAPAPPÍRSFLÓÐINU HVER HALDIÐI AÐ LESI EINHVERN MIÐA SEM KEMUR INN UM LÚGUNA???

EKKI NOKKUR MAÐUR ÞAÐ ER BARA ÞANNIG!!!

Ég gerði svo dauðaleit að þessum miða í morgun til að geta sýnt lesendum hann en hann var nú bara hvergi að finna. Það kannski útskýrir afhverju “ég var ekki sá fyrsti” sem hringdi í 118. Eitthvað fífl hefur svikist um að bera þetta út og því missti ég af einum af leikjum ársins í NFL. Vil bara þakka Orkuveitunni kærlega fyrir það. Ég er sko ekkert reiður, neineinei!

Hvernig Orkuveitan vilji gera betur úr þessu er þeirra mál. Ef þeir bjóða mér á leik í NFL gæti verið að ég gleymi þessu í bráð.

Fært undir Íþróttir | 5 ummæli »

N1 hraðflutningar

tom 29. nóvember 2007

leikir kvoldins

Leikir kvöldsins í DHL N1-deild karla.

Gaman að fá heila umferð loksins en þær síðustu hafa verið svolítið slitnar í sundur. N1 bauð upp á auglýsingu í Fréttablaðinu í morgun og heilar umferðir laða meira að. Það er því vonandi að mætingin verði sæmileg á leikina í kvöld.

Að öllu óbreyttu skellir maður nú sér á Stjarnan - Haukar en það besta við þessa 8 liða deild er það það er stórleikur og jafnvel fleiri en einn í hverri umferð.

Nýja skyttan hjá ÍBV sem nánast einn síns liðs lagði UMFA að velli í síðasta leik heillar reyndar líka. Spurning um að kíkja í Digranesið, verst að Siggi Braga er ennþá í banni.

Hinir tveir leikirnir heillandi einnig. Afturelding eru erfiðir heim að sækja og þá hafa Akureyri verið að stigmagnast með hverjum leik. Býst nú samt ekki við að kíkja á þá enda báðir spilaðir úti á landi.

Er ekki málið að henda spá á þetta helvíti.

HK 32 - 27 ÍBV

UMFA 25 - 30 Fram

Stjarnan 24 - 27 Haukar

Akureyri 23 - 29 Valur

Aðrar spár?

Jú búið að fresta HK - ÍBV vegna færðar frá Eyjum. Eitthvað sem hefur aldrei gerst áður.

Fært undir Íþróttir | 10 ummæli »

Spammari

tom 28. nóvember 2007

LET’S DO IT TOGETHER AS PARTNER

Greetings of the day to you, although you may be skeptical receiving this email as
we have not met before, I am Mr. Patrick K.W. Chan (Executive Director and Chief
Financial Officer) of the Hang Seng Bank Ltd., nevertheless I have a business proposition
involving the sum of $24,500,000.00usd in my bank which I know we will be of mutual benefit
to both of us, and I believe we can handle it together, once we have a common understanding
and mutual cooperation in the execution of the modalities.

Should you be interested, please forward those following information to me:
1.Full names,
2.Age
3.Occupation,
4.Private phone number,
5.Current residential address.
Via this email address: partrickchan102@yahoo.hk

Your earliest response to this mail will be highly appreciated.
Mr. Patrick Chan.

—————

Eins og email hjá bankastjóra sé hýst hjá yahoo. Pottþétt rugl.

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur | 7 ummæli »

Gamli Ferguson

tom 27. nóvember 2007

,,Hver er mættur þar nema Barry Gamli Ferguson. Þetta er ekki Massey Ferguson, þó hann sé reyndar álíka gamall.”

Arnar Björnsson - Meistaradeildarþátturinn á Sýn.

Barry Ferguson er fæddur 1978 og er því 29 ára gamall. Annar sem er 29 ára er Eiður Smári Guðjohnsen. Eiður er náttúrulega jafn gamall og Mysa.

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »

Eyjasigur - Forsíðufrétt

tom 26. nóvember 2007

Eftir 27 marka tap ÍBV gegn Stjörnunni um daginn sagði ég að ef þeir myndu vinna leik í ár hlyti það að verða forsíðufrétt. Þeir lásu þetta síðuhald, tóku sig saman í andlitinu og UNNU Aftureldingu um helgina, 24-23.

Þessi sigur sló þjóðina svo svakalega að tímamót urðu á fréttavef Morgunblaðsins. Það var boðið upp á grein um leikinn einungis örfáum tímum eftir að leik lauk. Sigursveinn Þórðarson skrifaði þar frá Vestmannaeyjum en greinina má lesa hér.

Lykilmaðurinn í sigrinum var víst Sergey Trotsenko, nýr leikmaður þeirra frá Úkraínu. Hann kom til lands daginn fyrir leik og var varla stiginn út úr Herjólfi þegar honum var skellt inn á gólf. Frændi minn sem er ókrýndur konungur Vestmannaeyja sagði mér að hann hafi enn verið vaggandi eftir sjóriðu. Það stöðvaði hann samt ekki í því að skora  átta mörk.

Zilvinas Grieze var að vanda í fantaformi fyrir ÍBV og setti 7 mörk og var eins og venjulega yfirburðamaður hjá ÍBV.

Fyrir utan sigurinn sem er kærkominn var mjög gaman að sjá að Friðrik Sigmarsson, sonur hins fornfræga Sigmars Þrastars, varði 17 skot í markinu. Friðrik, sem er skírður eftir frænda sínum, er rétt skriðinn yfir fermingaaldurinn en efnilegur nokk. Ef við gefum okkur það að hann hafi staðið allan tímann í markinu er hann með 42% markvörslu sem er mjög gott mál. Það á að láta þennan strák spila miklu meira.

Góður sigur og þeir verða vonandi fleiri. Gott að minnast á í lokin að Afturelding 2 (Júmboys) lögðu ÍBV í bikarnum fyrr í vetur.

Fært undir Íþróttir | 3 ummæli »

England takk

tom 25. nóvember 2007

www.visir.is Gætum lent í riðli með Ítalíu og Englandi

Mér er alveg sama hvað lið verða þarna bara að England verði með okkur í riðli. Hversu lengi eigum við að þurfa að bíða?

Við einfaldlega eigum það skilið fyrir allt sjónvarpsglápið.

Fært undir Íþróttir | 2 ummæli »

Afmælisbarn dagsins grét

tom 24. nóvember 2007

Afmælisbarn dagsins er litla frænka mín, Ylfa Sigurðardóttir, en hún bauð til 3ja ára afmælisveislu sinnar að Leifsgötu í dag. Eina sem hún bað um var að afi hennar og amma myndu mæta og það yrði kaka. Hún fékk nú rúmlega það og bauð móðir hennar, systir mín, upp á dýnamískar veitingar að vanda.

Á þá litlu var skellt þessi skemmtilega bleika kóróna og sama þemað var á pappadiskunum og servíettunum, bleikt Barbie. Afmælisbarnið var stútfullt af spenningi þegar að því kom að blása á kertin á kökunni en söngur gestanna var henni ofviða.

Maður getur svo sem ekki ásakað þá stuttu því ekki var söngurinn fagur hjá gestunum. Hún var þó fljót að jafna sig enda kraftastelpa og átti hún indælis afmælisdag.

spenningur
Stutta alveg að farast úr spenningi. Stutt í  að kertin syngi sitt síðasta.

ekki syngja!
Hlátur breyttist í grátur þegar gestirnir fóru að syngja.

pakki fra tom
Hún var fljót að jafna sig þegar frændi tom spanderaði í pakka.

Ylfa 3ja ára, hversu dýnamísk er þessi kóróna!

Fært undir Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Bara drasl í amerísku sjónvarpi

tom 24. nóvember 2007

Seth McFarlane, höfundur Family Guy, þreytti frumraun sína á Emmy verðlaunahátíðinni um daginn en hingað til hafa teiknaðir þætti verið gjörsamlega bannaðir aðkomu að þessari hátíð.

Hann bauð upp á skemmtiatriði þar sem Stewie og Brian Griffin sungu lag um dagskránna í amerísku sjónvarpi sem mér fannst óendanlega fyndið enda mikill Family Guy aðdáandi.

Lagið hefur áður birst í þættinum “the fellas at the friggin FCC” en Setharinn smellti nýjum texta við þetta.

Fært undir Kvikmyndir, Menning og listir | 1 ummæli »

Veszprém: Stuðningsmenn og leiðinlegt video

tom 23. nóvember 2007

Skellti mér á Valur - Veszprém í gær. Fínasti fyrri hálfleikur hjá Val en þeir áttu einfaldlega bara ekki roð í Ungverjana. Ég tek hatt minn ofan fyrir þeim að skora þessi 24 mörk því vörn sprémara var óárennileg. Hvað þá markvörðurinn Dejan Peric sem er allt í öllu þarna. Hann stjórnar varnar- og sóknarleik liðsins, ásamt því að leiðbeina þjálfaranum í sínu starfi. Þvílík virðing sem borin er fyrir manninum, enda legend.

Stuðningsmenn Veszprém ollu mér vonbrigðum. Það var ánægjulegt að sjá hversu margir þeir voru en þeir nánast héldu kjafti allan tímann fyrir utan náttúrulega að væla í dómurunum en það er jú alþjóðlegt. Þeir öskruðu nokkrum sinnum Veszprém en það var nú eiginlega bara þegar þeir voru komnir í góða forystu

Það var þó einn stuðningsmaður sem átti hug minn og hjarta. Hann var gjörsamlega trítilóður allan leikinn og í tvígang hélt ég að hann ætlaði hreinlega inn á völlinn. Hann stóð allan tímann við efsta bekkinn en í eitt skiptið hljóp hann alveg að grindverkinu og öskraði á dómarann einhverjum vel völdum orðum. Í seinni hálfleik gerði hann svo það sama þegar Peric varði eitthvað hraðaupphlaup en þá hallaði hann sér svo langt yfir grindverkið að ég hélt hann myndi detta og öskraði PERIC PERIC PERIC upp við eyrað á manninum. Hressandi.

Ágætis stemning var í húsinu og tónlistin öll glæný á nálinni. Þemað var öll lög sem þú mögulega getur fengið á heilann.

sa hressi

Vinur okkar þarna með rauðan hring í kring um sig. Full hólf af spremurum sem gáfu leiknum lit.

Ég náði líka video af Veszprém í Fótbolta. Ég hélt á þeim tíma sem ég tók það upp að það væri fyndið en við nánari athugun er það ekkert fyndið. Getið samt skoðað ef þið viljið. Það er línumaðurinn Gal sem er í sókninni og rússneski varnarmaðurinn kússíkov eða eitthvað sem er í marki.

Fært undir Íþróttir | 2 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning