tom

Gamli keeperinn

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


  • Heimsóknir

    Í dag: 16 Alls: 99548

  • Flettingar

    Í dag: 23 Alls: 201080

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


Fabregas þorði ekki til Íslands út af tom

tom 7. september 2007

Í Ágúst á síðasta ári komu Spánverjar í heimsókn og léku gegn Íslandi æfingaleik sem var nú ekki upp á marga fiska.

Leikurinn endurspeglaði gjörsamlega áhuga Spánverja á komunni hingað en þeir gjörsamlega gátu ekki beðið eftir því að komast heim. Það var nánast ómögulegt að fá viðtöl við leikmennina en hvorki þeir né forráðamenn liðsins gerðu nokkra tilraun til þess að ræða við íslenska fjölmiðla.

Það virðist vera sama sagan fyrir leikinn á Laugardaginn. Þeir lentu fyrst í nótt og voru ekki búnir að vera á landinu nema 5 sekúndur þegar þeir voru farnir að væla yfir veðrinu. Enginn frá Spáni hefur sett sig í samband við forsvarsmenn íslenskra fjölmiðla og er nokkuð ljóst að þeir hafa engan áhuga á að ræða við landann. Þess má geta að Norður Írar eru búnir að senda sitt plan sem er öflugt og virðingarvert.

Það var samt engum sem langaði minna að koma til Íslands heldur en miðjumaður Arsenal, Francesc Fabregas. Í fyrra hitti ég hann fyrir á æfingu og spurði mjög kurteislega ,,Hello Mr. Fabregas. My name is Tómas and I write for the biggest football website in the country. Could you spare a minute for a short comment about tomorrows match?”.

Hann svaraði um hæl ,,I´m sorry, I have to go to treatment now, after that is ok.” Ég tók því bara trúanlegu og hleypti manninum í nudd. Hann að sjálfsögðu gerði sig ekkert líklegan til að koma aftur út á hlaupabraut þannig ég, spænski sérfræðingur Fóbolti.net og bolvíska stálið af mogganum fórum upp á Nordica Hotel og ákváðum að bíða eftir þeim þar.

Þegar Fabregas kom á Hótelið mætti ég honum aftur og spurði ,,Do you have 1 minute now?” Hann svaraði ,,I have to go eat now.” Ég vildi nú leyfa manninum að borða enda grindhoraður greyjið. Ég áttaði mig fullkomlega á að hann mundi ekkert koma aftur og duttum því við stálið og spænskur sérfræðingur Fótbolta.net bara á barinn.

Það er augljóst að þessi framkoma situr í Fabregas og hann þorði ekki til landsins í hættu um að hitta tom aftur. Hann er í leikbanni fyrir tvö gul spjöld en seinna gula spjaldið fékk hann í síðasta leik gegn Liechtenstein og hann var snöggur að, fékk spjaldið strax á 6. mínútu.

Það er engin önnur möguleg ástæða fyrir því að Fabregas mundi fá spjald gegn Liechtenstein og hvað þá svona snemma.

Ég vil bara biðja alla Arsenal stuðningsmenn afsökunar.

6 ummæli um “Fabregas þorði ekki til Íslands út af tom”

  1. Styrmir G ritaði:

    Hahahahah já þetta er magnað. Gastu ekki verið svona aðgangsharður við fleiri spænskar stjörnur? Hefði verið fínt ef fleiri heimsklassa leikmenn hefðu verið í banni fyrir leikinn á laugardag.

  2. Þóri Sig. ritaði:

    Þetta er bara týpískur Arsenalmaður!

  3. Einar Guðna ritaði:

    Hann hlýtur að hafa séð United örið sem þú ert með á sálinni. Ég hefði gert nákvæmlega það sama og hann

  4. tom ritaði:

    Haha! þú mundir aldrei neita viðtali

  5. Svava ritaði:

    Ég get sagt þér það að Fabregas kom með til Íslands ég sá hann meira að segja þannig vertu nú ekki að segja mikið. kveðja Svava sem veit miklu meira um þennann mann en þú!

  6. tom ritaði:

    Auðvitað kom hann með þar sem Spánn átti leik aftur á miðvikudegi og hann bara í eins leiks banni.

    Mikilvægt samt að taka þessu svona vel.

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning