tom

Gamli keeperinn

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


  • Heimsóknir

    Í dag: 13 Alls: 99727

  • Flettingar

    Í dag: 19 Alls: 201401

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


Skotastúkan í fyrsta sinn.

tom 17. september 2007

Helgin byrjaði vel með enn einum 1-0 sigri United, í þetta skiptið á Goodison. Það verður nú eitthvað að fara að detta í gírinn þarna en það verður ekki deilt við karlinn um 9 stig af 9 mögulegum.

Ég skellti mér svo í Grafarvoginn til að fjalla um leik Fjölnis og Þróttar, toppslaginn í 1. deildinni. Þegar ég labbaði út um dyrnar var ég svo viðutan að ég fattaði ekki hvernig veður var en sá það þegar ég var mættur á Fjölnisvöll. Grenjandi rigning og rok með því fyrir allan peninginn. Fjölnismenn bjóða ekki upp á neina blaðamannaaðstöðu, ekki einu sinni hægt að standa innandyra þannig ég tók mig bara til og fór í skotastúkuna!

ALDREI í lífinu hélt ég að ég mundi finna sjálfan mig í skotastúkunni. Skotastúkan á Fjölnisvelli er á gangstéttinni fyrir ofan völlinn það er reyndar ágætis útsýni. Þar gat ég skrifað þurr og hlustað á BBC WS í leiðinni í útvarpinu.

Ég er ekkert að kítast út í Fjölni fyrir aðstöðuna enda vissi ég alveg að hverju ég gekk þegar ég mætti. Það var samt frekar glatað þegar gæslumennirnir komu og rukkuðu fólkið sem var í skotastúkunni með mér. Mér finnst frábært að fólk í skotastúkum sé rukkað enda eru það óþarfa fólk sem skilar knattspyrnunni engu nema nokkrum flautum á bíl þegar mark er skorað.

Þegar gaurinn mætti að mér sýndi ég honum fjölmiðlapassann og sagðist vera að skrifa um leikinn.  Sýndi honum líka blokkina sem ég var búinn að hripa niður nokkur atriði og XD pennan góða sem ég fann í skúffunni heima. Manninum var eitthvað misboðið og sagði að þetta væri ekki venjuleg aðstaða fyrir fjölmiðla. Ég sagði við manninn að þarna væri ENGIN aðstaða fyrir fjölmiðla þess vegna sæti ég hér.

Þá hreytti hann í mig að Hafliði Breiðfjörð væri nú þegar mættur og við værum ekki báðir að skrifa um leikinn. Eins og hann væri bara alveg með það á hreinu. Ég benti honum á Hafliða sem stóð við völlinn með myndavél og sagði honum að hann væri einungis að mynda leikinn. Þá bara fussaði hann og gekk í burtu eins og ég væri það almesta fífl sem til væri.

rigning
Það var engin smá rigning og svona leit leikurinn út rétt áður en rúðuþurrkurnar mættu til leiks.

semirigning
Rétt eftir rúðuþurrkurnar. Þær réðu varla við í fyrri hálfleik.

Þessi þurfti að borga sem betur fer
Félagar mínir í skotastúkunni.

Eirëur ekki parsáttur
Eiríkur Stefán á Fréttablaðinu alveg paparazzi-aður í drasl á Fjölnisvelli. Hann stóð úti eins og maður.

Ein ummæli um “Skotastúkan í fyrsta sinn.”

  1. » Ljósmyndarinn ég tom ritaði:

    [...] http://blogg.visir.is/tom/2007/09/17/skotastukan-i-fyrsta-sinn/ [...]

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning