Veszprém: Stuðningsmenn og leiðinlegt video
tom 23. nóvember 2007
Skellti mér á Valur - Veszprém í gær. Fínasti fyrri hálfleikur hjá Val en þeir áttu einfaldlega bara ekki roð í Ungverjana. Ég tek hatt minn ofan fyrir þeim að skora þessi 24 mörk því vörn sprémara var óárennileg. Hvað þá markvörðurinn Dejan Peric sem er allt í öllu þarna. Hann stjórnar varnar- og sóknarleik liðsins, ásamt því að leiðbeina þjálfaranum í sínu starfi. Þvílík virðing sem borin er fyrir manninum, enda legend.
Stuðningsmenn Veszprém ollu mér vonbrigðum. Það var ánægjulegt að sjá hversu margir þeir voru en þeir nánast héldu kjafti allan tímann fyrir utan náttúrulega að væla í dómurunum en það er jú alþjóðlegt. Þeir öskruðu nokkrum sinnum Veszprém en það var nú eiginlega bara þegar þeir voru komnir í góða forystu
Það var þó einn stuðningsmaður sem átti hug minn og hjarta. Hann var gjörsamlega trítilóður allan leikinn og í tvígang hélt ég að hann ætlaði hreinlega inn á völlinn. Hann stóð allan tímann við efsta bekkinn en í eitt skiptið hljóp hann alveg að grindverkinu og öskraði á dómarann einhverjum vel völdum orðum. Í seinni hálfleik gerði hann svo það sama þegar Peric varði eitthvað hraðaupphlaup en þá hallaði hann sér svo langt yfir grindverkið að ég hélt hann myndi detta og öskraði PERIC PERIC PERIC upp við eyrað á manninum. Hressandi.
Ágætis stemning var í húsinu og tónlistin öll glæný á nálinni. Þemað var öll lög sem þú mögulega getur fengið á heilann.
Vinur okkar þarna með rauðan hring í kring um sig. Full hólf af spremurum sem gáfu leiknum lit.
Ég náði líka video af Veszprém í Fótbolta. Ég hélt á þeim tíma sem ég tók það upp að það væri fyndið en við nánari athugun er það ekkert fyndið. Getið samt skoðað ef þið viljið. Það er línumaðurinn Gal sem er í sókninni og rússneski varnarmaðurinn kússíkov eða eitthvað sem er í marki.
Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.
23. nóvember 2007 kl. 15.19
Dýnamískt video
23. nóvember 2007 kl. 18.24
Þvílíkt video. NICE! Kæmi mér alls ekki á óvart þó að þettta video yrði vinsælast á B2, 69.is og öllum þeim síðum innan skamms. NICE!