tom

Gamli keeperinn

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


  • Heimsóknir

    Í dag: 11 Alls: 99725

  • Flettingar

    Í dag: 17 Alls: 201399

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


N1 hraðflutningar

tom 29. nóvember 2007

leikir kvoldins

Leikir kvöldsins í DHL N1-deild karla.

Gaman að fá heila umferð loksins en þær síðustu hafa verið svolítið slitnar í sundur. N1 bauð upp á auglýsingu í Fréttablaðinu í morgun og heilar umferðir laða meira að. Það er því vonandi að mætingin verði sæmileg á leikina í kvöld.

Að öllu óbreyttu skellir maður nú sér á Stjarnan - Haukar en það besta við þessa 8 liða deild er það það er stórleikur og jafnvel fleiri en einn í hverri umferð.

Nýja skyttan hjá ÍBV sem nánast einn síns liðs lagði UMFA að velli í síðasta leik heillar reyndar líka. Spurning um að kíkja í Digranesið, verst að Siggi Braga er ennþá í banni.

Hinir tveir leikirnir heillandi einnig. Afturelding eru erfiðir heim að sækja og þá hafa Akureyri verið að stigmagnast með hverjum leik. Býst nú samt ekki við að kíkja á þá enda báðir spilaðir úti á landi.

Er ekki málið að henda spá á þetta helvíti.

HK 32 - 27 ÍBV

UMFA 25 - 30 Fram

Stjarnan 24 - 27 Haukar

Akureyri 23 - 29 Valur

Aðrar spár?

Jú búið að fresta HK - ÍBV vegna færðar frá Eyjum. Eitthvað sem hefur aldrei gerst áður.

10 ummæli um “N1 hraðflutningar”

  1. Hilmar Þórlindsson ritaði:

    Dýnamísk spá lítur svona út:

    HK 33 - 21 ÍBV
    UMFA 24 - 29 Fram
    Stjarnan 28 - 30 Haukar
    Akureyri 25 - 27 Valur

  2. tom ritaði:

    engin trú á trotsenko hjá ÍBV?

  3. Gussi J ritaði:

    Verð að vera sammála Hilmari í fyrsta leiknum. ÍBV eru ávallt verri upp á landi.

    HK 36 - 23 ÍBV
    UMFA - Fram 28-34
    Stjarnan - Haukar 27-26
    Akureyri - Valur 22-24

  4. tom ritaði:

    Kannski meiri von en raunsæi í fyrstu spánni, viðurkenni það.

  5. Gussi J ritaði:

    Ég var samt að velta fyrir mér af hverju þú kallar þetta DHL deild karla en minnist svo á að N1 hafi boðið upp á auglýsingu í Fréttablaðinu í morgun?

    Þegar stórt er spurt….

  6. tom ritaði:

    Það átti að fylgja hæðnislegt komment um hversu skárri umfjöllun handboltinn fékk frá RÚV þegar þetta hét DHL-deildin. Hætti svo við að vera leiðinlegur og gleymdi að breyta.

    Biðst forláts.

  7. Gussi J ritaði:

    Ekkert að afsaka Tómas.

  8. andrea ritaði:

    Án nýju skyttunar hefðirðu spáð 40-10 hjá HK og IBV. Gerir einn maður virkilega svona mikinn mun?

  9. tom ritaði:

    “tom ritaði:
    29. nóvember 2007 kl. 12.55 e
    Kannski meiri von en raunsæi í fyrstu spánni, viðurkenni það.”

  10. MSM ritaði:

    “Jú búið að fresta HK - ÍBV vegna færðar frá Eyjum. Eitthvað sem hefur aldrei gerst áður.”

    Hahaha ég hló upphátt þegar ég las þetta. Guð forði okkur frá því að ÍBV komist aftur uppí landsbankadeild karla á komandi árum..

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning