tom

Gamli keeperinn

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


  • Heimsóknir

    Í dag: 12 Alls: 99585

  • Flettingar

    Í dag: 43 Alls: 201167

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


Sáuði leikinn í gær?! EKKI ÉG, ÉG SÁ BARA EKKI NEITT!

tom 30. nóvember 2007

Ég var búinn að bíða í viku eftir stórleik þjóðardeildarinnar í NFL, Dallas Cowboys - Green Bay Packers. Ég kom heim eftir Stjarnan - Haukar í gærkvöld, heldur betur tilbúinn í action, búinn að setja upp vott og þurrt og beið spenntari eftir leiknum en dekrað barn á jólunum. Ég var meira að segja búinn að ná mér í blund fyrr um daginn til að endast í alla nótt. Það var bara allur gærdagurinn og fyrri dagar miðaðir við að ná þessum leik.

Klukkan er að slá miðnætti og rúm klukkustund í leik þegar þetta gerist.

ju gaman

Algjört myrkur verður í húsinu.

Ég þreifa fyrir símanum, hinum dýnamíska k550i, og finn hann að endingu. Set á hið magnaða vasaljós sem síminn býður upp á og kom mér að rafmagnstöflunni. Þegar ég opnaði hana sá ég að allir sleðarnir voru uppi, skrýtið.

Um daginn sló allt út hjá vini mínum í gamla hverfinu þannig mér datt í hug að eitthvað svipað hefði gerst og opnaði útidyrahurðina. Þá sá ég að almyrkvi var yfir götunni, greinilega bilun í gangi.

Ég strauk mér nú um ennið og þakkaði guði fyrir það að það væri einn og hálfur tími í leik. Engin bilun gæti varað svo lengi yfir.

Ég hringdi í 118 til að fá símann hjá orkuveitunni þar sem konan spurði mig hvort ég væri að hringja úr Ártúnsholtinu. Ég er ekki vanur því að starfsmenn 118 séu með sál þannig mér brá aðeins í brún. Ég tjáði henni að ég væri að hringja þaðan og í sama mund sagði hún mér að ég væri nú ekki sá fyrsti og gaf mér númerið hjá beiðnaskrifandi, pendúlelskandi fólkinu í Orkuveitunni.

Ég hringdi:

OV: Orkuveitan, bilanir. (svaraði vaktmaður)

tom: já góða nóttið, rafmagnið er farið af húsinu mínu…

OV: já ertu í Ártúnsholtinu? Kvíslunum?

tom: já….

OV: Það verður slökkt þar frá 00:00 og fram á morgun, það er verið að skipta um flumflum. Þú fékkst miða um þetta í dag.

FÉKK ÉG MIÐA UM ÞETTA Í DAG????

Í ÖLLU JÓLAPAPPÍRSFLÓÐINU HVER HALDIÐI AÐ LESI EINHVERN MIÐA SEM KEMUR INN UM LÚGUNA???

EKKI NOKKUR MAÐUR ÞAÐ ER BARA ÞANNIG!!!

Ég gerði svo dauðaleit að þessum miða í morgun til að geta sýnt lesendum hann en hann var nú bara hvergi að finna. Það kannski útskýrir afhverju “ég var ekki sá fyrsti” sem hringdi í 118. Eitthvað fífl hefur svikist um að bera þetta út og því missti ég af einum af leikjum ársins í NFL. Vil bara þakka Orkuveitunni kærlega fyrir það. Ég er sko ekkert reiður, neineinei!

Hvernig Orkuveitan vilji gera betur úr þessu er þeirra mál. Ef þeir bjóða mér á leik í NFL gæti verið að ég gleymi þessu í bráð.

5 ummæli um “Sáuði leikinn í gær?! EKKI ÉG, ÉG SÁ BARA EKKI NEITT!”

  1. Einar ritaði:

    Þetta er hugsanlega meira svekkelsi heldur en að þurfa að læra undir próf í staðin fyrir að horfa á leikinn.

    Náðiru ekki að fara eitthvert og horfa á leikinn?

  2. tom ritaði:

    Neibb, á enga vini.

  3. Viggó Briem ritaði:

    Ég get ekki sitið á mér….

    Gott á þig Tommi!! hahahahaha….

  4. Stefán ritaði:

    Ekkert bögg en þú verður bara að fara að horfa á fótbolta drengur.. haaaaaaalló. Samt frekar slök vinna hjá fyrirtækinu, á bara að hringja í allt liðið, mín skoðun.

  5. tom ritaði:

    ha?

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning