Á Kiddi Jak séns í lokaumferð meistaradeildarinnar?
tom 5. desember 2007
Kjötiðnaðarmaðurinn, tuddaeigandinn og gæðadómarinn Kristinna Jakobsson dæmir leik Everton og nýkrýnda Rússlands meistarar, Zenith St. Pétursborg í kvöld í Evrópukeppni félagsliða. Við í áhugamannaklúbbi íslenskra dómara erum að binda vonir okkar við að góð frammistaða í þessum leik gæti skilað honum einum leik í 6. leikviku meistaradeildar Evrópu.
Ef svo skemmtilega skyldi fara að hann fengi leik í lokaumferðinni eru mjög miklar líkur á því að það yrði bara einhver sultu leikur til að byrja með og því reynt að finna leik sem skiptir litlu máli. Því miður fyrir Kristinn eru ekki margir leikir sem skipta ekki máli en það eru þó nokkrir.
Í A og B riðli er enn háspenna í kringum alla leiki þar sem öll átta liðin (Liverpool, Marseille, Porto, Besiktas, Chelsea, Valencia, Shalke og Rosenborg) eru að keppa að einhverju.
Í C riðli eiga öll liðin (Real Madrid, Olympiakos, Bremen og Lazio) möguleika á sæti í 16 liða úrslitum og D riðill kláraðist í gær.
Í E riðli skipta leikir Rangers og Lyon og Barcelona og Stuttgart máli þannig ekki er líklegt að hann fái leik þar.
Það er ekki fyrr en í F riðli að Kiddi ætti auðveldlega að geta fengið leik. Sporting og Dýnamískir Kiev eigast þá við í leik sem skiptir engu máli. Sporting eru komnir í Evrópukeppni félagsliða, eiga ekki möguleika á sæti í 16 liða úrslitum meistaradeilldarinn og Kiev eiga ekki möguleik á að ná þeim.
Í G riðli skipta báðir leikirnir máli líka en Kiddi gæti auðveldlega tekið leik Slavia Prag og Sevilla í H riðli. Sevilla eru komnir í 16-liða úrslitin og Slavia geta ekkert nema komist í Evrópukeppni félagsliða.
Sporting Lissabon - Dynamo Kiev
Slavia Prague - Sevilla
Þessa leiki getur Kristinn auðveldlega tekið.
Auðvitað getur hann dæmt alla leiki þarna en UEFA hafa hingað til ekkert gefið íslenskum dómurum of mikinn séns á meðan 5., 6. og 7. bestu dómarar Svíþjóðar og Noregs eru komnir í meistaradeildina.
Kristinn er á Goodison í kvöld á hinni umdeildu stöð, Sýn.
Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.
5. desember 2007 kl. 11.48
Körfuboltaáhugamenn á íslandi einnig ósáttir við Sýn virðist vera. Við NFL aðdáendur viljum amk fleiri leiki
5. desember 2007 kl. 21.13
Ég neita að trúa því að Sýn græði eitthvað á að sýna NFL, algjörlega neita að trúa því. Það getur ekki verið það mikill áhugi en svo veit maður aldrei.
6. desember 2007 kl. 0.18
Margur vill meira…
En möguleikar Kidda fóru í kvöld held ég. Því miður.
6. desember 2007 kl. 9.49
Hvernig stóð Kiddi sig?
Og já, ætli það sé nokkuð grundvöllur fyrir því að sýna NFL á Íslandi?