H to the atton
tom 6. desember 2007
Bestu skotin í orðastríði Hatton og Mayweather Það er óralangur tími síðan maður hreinlega beið eftir boxbardaga. En það er bara ekki annað hægt þegar Ricky Hatton er annars vegar. Maðurinn er þvílíkur keppnismaður og með hjartað á réttum stað enda Englendingur.
Floyd Mayweather gerir í því að láta hata sig og það heppnast bara mjög vel hjá honum fyrir mitt leiti. Ég þoldi hann nú ekki fyrir en eftir að ég sá Mayweather, Hatton 24/7 þáttinn á Sýn hata ég manninn. Held að ég gæti bara ekki haldið meira með Hatton þó ég reyndi.
Gullkornin í fréttinni eru hressandi og það fengu fleiri að fljúga í þættinum.
Ég verð vonsvikinn ef Bubbi og Ómar mæta ekki báðir. Það er alltaf annar hvor þessa daganna þegar box er í sjónvarpinu. Sýninginn hefst kl 02:00 á laugardagsnóttina. Spurning um að taka landann á þetta eins og þegar við horfðum á Tyson í den. Það fór vel, helvíti vel.
Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.
6. desember 2007 kl. 12.44
Forðum var nú Bubbi bara alltaf, trúi ekki öðru en að hann mæti þegar Hatton er á ferli.
En ef þú sást ekki De La Hoyja - Mayweather 24/7 ættirðu að kíkja á þá. Hef aldrei haldið jafn mikið með neinum og ég hélt með Gulldrengnum eftir þessa þætti…. en svo tapaði hann ótrúlega naumt. Mayweather á samt sínar mannlegu hliðar ef grannt er skoðað. Svo er hann alltaf í United-búningi núna þar sem Hatton er City-maður, frekar fyndið
http://www.saddoboxing.com/boxing_images/ricky-pbf-manchester9.jpg