Tveggja daga fögnuður
tom 13. desember 2007
Tveggja daga stanslausum hátíðarhöldum samstarfsfólks míns vegna uppsagnar minnar í gær byrjaði í morgun með pomp og prakt.
Þegar ég mætti í morgun var á boðstólum tvö föt af ofnrétti, risastór brauðterta, pönnukökur, brúnar og ljósar randalínur og þrjár sortir af smákökum.
Í hádeginu var svo pantaður bakki frá Jóa Fel sem innihélt fjórar gerðir af brauði, rjómaosta, pestó, hvítan kastala og risastórar súkkulaðismákökur. Hvað verður svo í kvöld veit ég ekki. Líklega endur og Humar eða eitthvað.
Á morgun munu svo allir (ca 200) starfsmenn fyrirtækisins, fagna brottför minni með heitu súkkulaði og meðlæti í kaffitímanum á morgun.
Ef ég kynni betur á i-Símann minn myndi ég sýna ykkur myndir af þessum kræsingum en vegna tæknilegra vandamála gengur það ekki upp.
Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.
13. desember 2007 kl. 17.21
Ertu að setjast í helgan stein? Hvað er á seyði?
14. desember 2007 kl. 13.54
Segjum sem svo að Tómas sé að fara að gera það sem hann er bestur í.