tom

Gamli keeperinn

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


  • Heimsóknir

    Í dag: 38 Alls: 99702

  • Flettingar

    Í dag: 71 Alls: 201359

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


Kveðjugjöfin ekki ódýr

tom 14. desember 2007

Þegar það er rétt rúmur klukkutími eftir af rúmlega tveggja ára starfi mínu hér verður tilfinningin að fara heim í síðasta skiptið héðan æ skrýtnari.

Ég er búinn að mynda allt í bak og fyrir og mun bjóða upp á kveðjufærslur þegar jú, gamla sagan, ég læri á iSímann.

Kveðjugjöfin var hressandi frá yfirvaldinu. Miði á leik á Old Trafford. Get valið milli leikja Manchester United og Portsmouth, City, Bolton, Villa eða West Ham.

Auðvitað fylgdi vínandinn með og hann var ekki af ódýrari gerðinni. Tólf ára Chivas Regal, Premium Viskí. Get menningað yfir mig um jólin með því. Þakka Samstarfsfólki mínu kærlega fyrir þetta.

9 ummæli um “Kveðjugjöfin ekki ódýr”

  1. Sonja ritaði:

    bless:(

  2. yngvi ritaði:

    Tommi!

    Ég er á leiðinni út á Chelsea-Liverpool og Man.Utd-Man.City sömu helgina.

    Ert þú ekki maður í svoleiðis eða????

  3. Bjarni ritaði:

    Ég myndi segja að þetta væri dýnamísk kveðjugjöf!

  4. Sindri ritaði:

    Hvar varstu að vinna, ef ég má forvitnast aðeins?

  5. Dagur ritaði:

    Það liggur við að ég hætti við þá vinnu sem ég er að fara í og sæki um á Pósthúsinu, vinna þar í rúm tvö ár og hætta síðan. Í mínum huga er ekki spurning að ég myndi velja United-City. Tala nú ekki um ef Yngvi er að fara, eflaust eðalmaður, þekki hann ekki neitt.

  6. Gestur ritaði:

    búið?

  7. Bolvíska Stálið ritaði:

    Tekur innan úr einni viskíflösku og getur ekki bloggað í rúman mánuð !

  8. MEISTARINN ritaði:

    BLOGGAÐU MANNFÝLA!!

  9. Ég er hér ritaði:

    3 MÁNUÐIR !!!!!

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning