tom

Gamli keeperinn

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


  • Heimsóknir

    Í dag: 12 Alls: 99726

  • Flettingar

    Í dag: 18 Alls: 201400

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


Færslur í flokknum 'Fjölmiðlar' Category


Ljósmyndarinn ég

Fært af tom þann 12. desember 2007

flott mynd

Flott mynd í frétt á Eyjunni í dag.

Hvert sendir maður reikninga fyrir svona?

http://blogg.visir.is/tom/2007/09/17/skotastukan-i-fyrsta-sinn/

Fært undir Fjölmiðlar, Umhverfi, Umræðan, Íþróttir | 1 ummæli »

Dauft á Nesinu

Fært af tom þann 1. nóvember 2007

Það var nú ekki miklu til tjaldað á Seltjarnarnesi í gær fyrir blaðamenn á leik Gróttu og Stjörnunar í N1 deild kvenna. Maður bjóst nú ekki við miklu en það hefði nú verið skemmtilegra að vera með þrjá stóla undir mannskapinn. Þá var netið í ólagi sem er mjög slæmt.

Þar sem ég mætti fyrstur að vanda fékk ég fyrri stólinn og Kristján Jónsson sem jú mætti vel rúmlega fyrir leik fékk hinn. Það var hinn einkar seini Viðar Guðjónsson frá DV sem þurfti að standa vegna seinagangs síns. Hann talaði um að Textavarpið hafði svikið hann en því er erfitt að trúa.

empty

Þessi mynd lýsir verunni á Seltjarnarnesi í gær ágætlega.

gaybasher

(Árni Johnsen er hommi) 

Þetta var það eina sem Gróttan bauð upp á. Hressandi skilaboð, væntanlega frá starfsmanni þjóðleikhússins tússuð í blaðamannastúkuna.

Fært undir Fjölmiðlar, Íþróttir | Engin ummæli »

Afhjúpun á nýjum landsliðsþjálfara kl 13:00

Fært af tom þann 29. október 2007

Hver verður næsti landsliðsþjálfari? Nöfnin sem mest hafa verið á milli tannana á fólki eru Guðjón Þórðarson, Willum Þór Þórsson og Ólafur Jóhannesson.

Stöð 2 sagðist í gær hafa hert einhverjar sögur af því að gamla FH teymið, Óli Jóh og Leifur mundu taka við en það var skotið niður sama kvöld af vefmiðlum.

Nú hittist nefndin í gær fyrst og nýr þjálfari kynntur í dag. Fyrst þetta gekk svona fljótt fyrir sig má þá ekki ætla að nýji þjálfarinn hafi verið laus allra mála. Mjög líklegur er samt Willum Þór og það má vel vera að KSÍ hafi komist að skjótu samkomulagi við Val en ég verð að leyfa mér að efa það.

Ég ætla að skjóta á að Óli Jóh taki við eftir hádegi í dag.

(09:19) Mbl.is með traustar Ghilmars heimildir fyrir þessu samkvæmt frétt á vef þeirra. Stuðullinn var nú ekki hár á Óla.

Fært undir Fjölmiðlar, Umræðan, Íþróttir | 2 ummæli »

Þátturinn á morgun

Fært af tom þann 26. október 2007

Dýnamík

http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=54027 (html í ruglinu á Vísi)

Ég hreinlega hef ekki húmynd um hvernig við ætlum að troða efni morgundagsins í tvo tíma. Við þyrftum nú helst að vera frá 11-16 en félagar okkar í Morðingjaútvarpinu mæta alltaf, bíddu, stroka út, næstum alltaf kl 13 og ekki viltu trufla menn sem stjórna þætti með þessu nafni.

Auðun Helga verður gestur þáttarins sem er töff því Auðun er öflugur og liggur ekkert á skoðunum sínum. Undanfarna viku hefur hann í fjölmiðlum m.a. sagst ekki vera sáttur við FH og hvernig þeir stóðu að málum hans og einnig sagðist hann, í formi, vera besti miðvörður landsins.

Þorsteinn hressi sem hringdi inn í síðustu viku og tippaði með okkur og Jónasi Grana tók sig til og vann okkur. Reyndar vorum ég og hann jafnir með níu rétta en við erum þáttur hlustandans þannig við hringjum í karlinn og gefum honum eitthvað skemmtilegt. Hann fær svo að tippa aftur sem og nýr hlustandi fær tækifæri til að sigra okkur og Auðun Helga.

Mesta dýnamíkin er náttúrulega að við munum gefa Football Manager 2008. Ég er hundrað prósent viss um að það verði slegist um eintökin en við fengum reyndar alveg slatta. Það var merkilegt hvað BT tóku vel í þetta með okkur. Gussi hringdi tvö símtöl um kl 16:30 og klukkustund síðar vorum við komnir með slatta af eintökum. BT og Sena ekkert að slora við þetta.

Menn verða að svara alvöru spurningum á morgun ætli þeir sér að landa eintaki af þessum legendary leik. Það verður ekki boðið upp á einhverjar vísbendingar eða rugl, mæli með að menn fari að skoða fræðin í kvöld.

Reykjavík FM 101.5, á morgun, laugardag milli 11-13. Hlustaðu eða vertu ferhyrningur.

Fært undir Fjölmiðlar, Umræðan, Íþróttir | Engin ummæli »

Konur eru konum verstar

Fært af tom þann 20. október 2007

Það er ótrúlegt hvað gerðist á lokahófi KSÍ í gær. Eða öllu heldur hvað gerðist fyrir hófið. Konurnar, eins og karlarnir, kusu besta leikmann deildarinnar sem augljóslega er Margrét Lára Viðarsdóttir. Fyrir utan að vera bara best í fótbolta, skoraði hún 38 mörk í 16 leikjum í deildinni og átta í jafnmörgum leikjum með landsliðinu. Þá varð hún Íslandsmeistari með félaginu.

Margrét Lára var ekki valin heldur Hólmfríður Magnúsdóttir. Það verður að skilja það alveg eftir í umræðunni hvort Hólmfríður átti titilinn skilið því hún er í raun bara fórnarlamb í þessu máli. Hólmfríður er frábær knattspyrnukona og góður kandídad til þessa titils en málið er að hún er einfaldlega bara ekki best.

Það sem gerðist fyrir hófið var að stelpur í deildinni létu ganga á milli, sms þar sem stóð að allir ættu að standa saman og kjósa ekki Margréti Láru. Það sem ekki fylgdi var hvern átti að kjósa og því voru hugmyndir að þetta hafi mistekist því stelpurnar voru að kjósa til skiptis Alicu Wilson, Olgu Færseth og Hólmfríði.

Þetta aftur á móti tókst á endanum og þær náðu að sniðganga Margréti. Hvernig í andskotanum ætla konur að láta taka sig alvarlega þegar svona gerist. Hvernig datt þeim í hug að gera þetta? Þetta er hreint ótrúlegt að ekki talandi um barnalegt. Til hvers eru þær í þessu spyr maður bara?

Kvennaknattspyrnan er alltaf að biðja um meiri athygli og réttilega, umfjöllun um deildina er ábótavant en hver á að taka þær alvarlega þegar þær taka þessu ekki alvarlega sjálfar. Gærdagurinn var svartur blettur á kvennaknattspyrnuna sem var búin að fá svo jákvæða umfjöllun eftir frábæra framgöngu landsliðsins. Eins og mannlífið er á Íslandi í dag gæti það allt bara gleymst út af þessum barnalátum.

Það er lítið sem KSÍ geta gert. Ég er ekki á því að það eigi að sauma saman titil handa Margréti þó hún eigi það meira en skilið. Hólmfríður heldur bara titilinum en dagurinn í gær var skref aftur á bak fyrir kvennaknattspyrnu í landinu.

Meyerinn kom með fínan sleikjupistil á grasinu sem ber nafnið “Á að gera lítið úr þeim sem vinna?”. Það er enginn að gera lítið úr Hólmfríði, hún bara vann titilinn vegna barnaláta annara kvenna í deildinni. Það er erfitt að tala um þetta án þess að það virki eins og Hólmfríður átti ekki titilinn skilið en fólk verður að geyma það aðeins og horfa á stóru myndina.

Hann segist ekki hafa trú á því að konurnar muni gera þetta þó það sé alveg staðfest að þetta gerðist. Segir þetta fullorðna einstaklinga í valinu sem viti hvað þeir eru að gera. Það er bara ekki þannig. Sumar stelpurnar og greinilega all flestar voru ekki þroskaðari en þetta og fóru langt með að eyðileggja knattspyrnusumarið hjá sjálfum sér.

Skemmtilegt niðurlag pistilsins þar sem hann segir viðurkenninguna athyglisverða því Hólmfríður var frá í þrjá mánuði á undirbúningstímabilinu. Einmitt Meyer, það er það athyglisverða við valið.

Hólmfríður Magnúsdóttir er frábær knattspyrnukona en í gær tók hún við verðlaunum sem voru eyrnamerkt annari konu.

Fært undir Fjölmiðlar, Heilbrigði, Umræðan, Íþróttir | 10 ummæli »

Smekkfullt prógram í útvarpinu á morgun

Fært af tom þann 19. október 2007

Ég, Gussi og Elvar bjóðum upp á rándýrt prógram að vanda í útvarpsþættinum Fótbolti.net á morgun.

Landsliðið verður í umræðunni og ætlum við að fá sérfræðing með pung til að segja sína skoðun á þessu ömurlega gengi. Stóra spurningin núna virðist vera hver tekur við landsliðinu og við ætlum að heyra hvað hlustendum finnst. Fá fólkið sem þarf að horfa upp á þennan viðbjóð til að tjá sig og segja hvern það vill sem næsta landsliðsþjálfara.

Í síðasta þætti var Bjarni Guðjónsson gestur þáttarins en hann var í frábæru 40 mínútna spjalli um allar hliðar fótboltans en gestur þáttarins á morgun er ekki af ódýrari gerðinni. Þrettán marka maðurinn, Jónas Grani Garðarsson, mætir skelþunnur, líklega beint úr einhverju eftirparty eftir lokahófið í kvöld og fer yfir málin með okkur.

Svo er enski að byrja aftur þannig það þarf að fara rækilega ofan í saumana á honum og við upplýsum hlustendur um gang mála í Liverpool slagnum.

Ef tími gefst verður boðið upp á skemmtilegar spurningar þar sem hlustendur geta unnið til skemmtilegra verðalauna.

ReykjavíkFM 101.5, á morgun, laugardag milli 11-13.

Síminn er 563-9000.

Fært undir Fjölmiðlar, Umræðan, Íþróttir | Engin ummæli »

Lokahóf Fótbolta.net - Myndaveisla

Fært af tom þann 18. október 2007

Lokahóf Fótbolta.net fyrir 1. og 2. deild karla fór fram með pomp og prakt í höfuðstöðvum KSÍ í dag. Að sjálfsögðu sá enginn fjölmiðill sér fært að mæta þó við vissum að Vísir reyndi að koma en tíminn hentaði þeim illa.

Víkurfréttir voru eini miðilinn sem mætti en meistari Jón Björn flexaði vélina af myndarskap eins og ávallt. Enginn annar mætti þó við vissum að Vísir reyndi að komast en gat ekki sökum tímasetningu.

Veitt voru verðlaun fyrir einstaklinga í liði ársins í báðum deildum, besta og efnilega í báðum deildum og markaskorara. Allt þær upplýsingar eru hér: 1. deild og 2. deild

Það var gaman á hátíðinni og menn kunnu að meta þetta framtak að venju. Guðjón Guðmundsson, Gaupi var veislustjóri og leysti það verkefni af sinni alkunnu snilld.

Hófið verður alltaf dýrara og dýrara en í þetta skiptið borgaði Fótbolti.net flug undir alla leikmenn sem komu utan af landi og bauð upp á bílaleigubíla fyrir þá í bænum. Rándýrt og takk!

k550i var á lofti til að gefa fólki smá bragð af hófinu.

landsbankalokur
Þegar við komum var veisluþjónusta að leggja matinn á borðið. Ekki hressustu veitingakonur í heimi en þær kunnu sitt fag.

Geggjadur banki
Þetta var allt í boði Landsbankans sem er þvílíkt frábærir og æðislegir(þetta kostaði 10.000 Hilmar)

Hilmar vinur VISA
Maðurinn á bakvið Landsbankadeildina, Hilmar Þór Guðmundsson, sá um að Landsbankinn sæist nógu vel. Kannski ekki nógu vel á þessari mynd en hann var ánægður eins og við.

kongaspjall
Rándýr mynd. Frá vinstri til hægri, Hjörtur Hjartar, Gaupi, Ásmundur Vilhelmsson (framkv. stjóri, Þróttar) og Hilmar Þór Guðmundsson.

sodalega hressir
Gussi, Elvis og Maggi í hresskeppni. Sigurvegarinn augljós.

jakkafot verkamanna
Gaupi og Þórhallur Dan sem var í liði ársins í 2. deild. Dan geymdi sparifötin heima og mætti í rafvirkjagallanum sem vakti mikla lukku. Þess má geta að á verðlaunum Þórhalls stóð “Þorvaldur Dan Jóhannesson”, hversu mikið af villum eru það í einu nafni.

kongurinn
Þeir gerast ekki meiri fagmenn. Það er bara þannig.

randyrt program
Verðlaun fyrir leikmenn í liði ársins vinstra meginn, stóru verðlaunin hægra megin.

20 mork og bestur
Verðalaun Sævars Þórs Gíslasonar fyrir að vera besti leikmaður 2. deildar.

pakkfullt
Það vantaði ekki fjöldann á hófið. Hið gífurstóra bílastæði fyrir utan KSÍ höllina nánast fullt.

tiltekt
Konurnar farnar að taka til eftir hófið. Það var skellt á rassinn á okkur.

fyndinn hundur
Þessi hundur kemur málinu ekkert við en hann er aftur á móti mjög fyndinn. Þarna er hann að borða blóm úr krukku á næsta borði við mig í vinnunni. Hann meig á skrifborðið skömmu síðar.

Fært undir Fjölmiðlar, Íþróttir | 4 ummæli »

Ekkert stress á Jolla eða KSÍ

Fært af tom þann 18. október 2007

Íslensk knattspyrna var borin til grafar í gær. Hún var jarðsungin frá Vaduz, í Liechtenstein. Kistuberar voru íslenska landsliðið og um jarðaförina sá Eyjólfur Sverrisson.

Ég bjóst í alvöru við því að Eyjólfur mundi segja í viðtali eftir leik bara ,,OK, OK, ég ræð ekki við þetta. Takk fyrir mig.” Hvernig mér datt það í hug er ótrúlegt því auðvitað var landsliðsþjálfarinn bara hress eftir leik að vanda og sagðist EKKI ætla að hætta með liðið. Enn fremur sagðist hann NÚNA vita hvað þyrfti að laga þannig þetta væri allt í góðu.

Þá má ekki gleyma Geir Þorsteinssyni sem finnst ekkert betra en að sitja úti þegar hann horfir á fótboltaleik. Hann ítrekaði við Vísi í gær að Eyjólfur mundi klára keppnina. Maðurinn er bara í persónulegu stríði við fjölmiðla sem er orðið barnalegt og minnir sem helst á frekan krakka sem notar rökin “jú víst” eins og hann eigi lífið að leysa.

Klári Eyjólfur keppnina og svo verði ráðinn nýr landsliðsþjálfari mundi það þýða að Eyjólfur fengi æfingarmótið í janúar sem auðvitað nýr þjálfari á að fá til að móta sitt lið. Nú hefur Eyjólfur fengið mjög fáa æfingaleiki, ekki að hann kvarti yfir því enda hlýðinn strákur. Þetta mót í janúar er mjög mikilvægt fyrir nýjan þjálfara og með því ásamt Danaleiknum, kannski plús einn æfingaleikur til viðbótar er nýr þjálfari kominn með a.m.k. 4-5 leiki áður en næsta undankeppni hefst.

Íslenska þjóðin er bara ósjálfbjarga hvað varðar þetta landslið því það virðist engu máli skipta hvað hún og eða fjölmiðlar segja, KSÍ er einfaldlega ósnertanlegt. Þeir gera það sem þeir vilja, þegar þeim hentar og spurja engan álits. Alþingi á ekki neitt í KSÍ. Á alþingi þarf að ræða málin og leggja fram frumvörp og allir þurfa að samþykkja. Það er nú bara fyrir aumingja, niður í Laugardal er bara gert það sem Geir dettur í hug.

Næsti landsliðsþjálfari?

Tveir menn hafa komið upp á pallborðið hvað mest, Willum Þór Þórsson og Ólafur Jóhannesson. Mjög eðlilegir kostir enda sigursælir þjálfarar með skap og sigurvilja. Ef það verður ekki Gaui Þórðar eða erlendur þjálfari vil ég sjá Willum taka við starfinu að þessu sinni.

En ég stórlega efast um að hvorugur þeirra fái starfið. Luka Kostic er næstur í röðinni held ég en hann er búinn að vinna mikið starf fyrir KSÍ með öll yngri landslið og afreksþjálfun. Að einhver sé næstur í röðinni er hryllilegt hugtak þegar kemur að svona stórri ákvörðun eins og KSÍ ætti að þurfa að taka. Það er hinsvegar bara þannig að klíkan hefur yfir röksemdir hjá sambandinu.

Munið bara að þið sáuð það hér. Luka Kostic verður næsti landsliðsþjálfari og Magnús Gylfason verður honum til aðstoðar.

Ég hef ekkert á móti þessum mönnum, langt því frá, en ég vona til guðs að KSÍ troði þessu ofan í mig og ráði einhvern annan.

Fært undir Fjölmiðlar, Heilbrigði, Umræðan, Íþróttir | 3 ummæli »

Eistland, Lettland, hver er munurinn?

Fært af tom þann 14. október 2007

Síðuhaldara barst þessi mynd sem sýnir hressandi fréttaflutning. Síðast þegar ég vissi var Eistland að keppa við England í gær. En það gæti náttúrulega bara verið bull í mér.

eistland?
Eistland, Lettland. Tómatur, Túmatur.

Fært undir Fjölmiðlar, Heilbrigði, Íþróttir | 1 ummæli »

Vilja þeir ekki fólk á völlinn?

Fært af tom þann 14. október 2007

HSÍ og eða N1, hverjir svo sem skila inn auglýsingum fyrir leiki í N1 deildinni eru ekkert að hjálpa sjálfum sér með eftirfarandi vinnubrögðum.

Það er nú nógu erfitt að fylgjast með hvenær þessir leikir eru spilaðir að þeir þurfi nú líka að fara að rugla fólk í ríminu.

Þessi auglýsing frá HSÍ/N1 er á íþróttasíðu Fréttablaðsins í dag.

4. okt er buinn
Ef mönnum er sama ætla ég á Ásvelli í dag, þ.e. sunnudaginn 14. október, að sjá þennan stórleik.

Fært undir Fjölmiðlar, Umræðan, Íþróttir | 1 ummæli »

Daprir Íslendingar

Fært af tom þann 13. október 2007

Íslenska landsliðið olli…já…ótrúlegum vonbrigðum gegn Lettum í dag. Bjartsýnin var mikil og ekki var það ofan á bætandi þegar Eiður skoraði í upphafi. Svo á tíu mínútna kafla var leikurinn búinn þegar Lettar skoruðu þrjú mörk.

Varnarmistökin voru svo mörg í dag að annað eins hefur ekki sést. Bilið á milli varnar og miðju var ótrúlegt og vörninni hrein vorkunn oft að fá alla hersinguna framan á sig.

Ég held að það sé staðfest að Hjálmar Jónsson eigi að afþakka pent, næst þegar hann er valinn í landsliðið. Hann stöðvaði ekki eina sókn og hleypti Lettunum trekk í trekk í gegn hjá sér. Hann fékk sénsinn, hann er ekki nógu góður. Nú verða hann og Stefán Gísla bara heima að horfa á leikina

Mér var boðið upp á blaðamannabox með Rúv aftur og nafna mínum Meyer á grasinu. Þorlákur Árnason var að lýsa með Felaranum sem var flott enda Láki toppmaður. Hann var ekki að kippa sér upp við þó tom öskraði aðeins eins og Gummi Hreiðars síðast sem hélt að hann ætti bara klefann.

Erikson k550i var á lofti og hér er uppskeran.

somi af somanum

Sómabakkinn var mættur að vanda. Orðinn soldið þreyttur en það var boðið upp á Pítubita í þetta skiptið. Nýjung.

RUV
Láki hugsi við hlið Fel. Láki var allt annað en sáttur við íslenska liðið og er það ekki furða.

clatti
Stórdómarinn Mark Clattenburg var bara rólegur á hliðarlínunni í dag. Þarna niðri var að hann að klára skiptingu sem hann gerði með miklum sóma. Þess má geta að skallabletturinn frægi á honum sást jafnvel betur lengst upp í rjáfum þar sem við vorum.

stuka
Mætingin ekkert geðveik, svona semmí bara.

tveir flottir
Elvar Geir (til vinstri, Vísir.is) og Kristján Jónsson (appelsínugulur, morgunblaðið) ræða málin.

sunnudags…
Kristján var bara að halda Elvis uppteknum, hann stökk svo á Árna Gaut og tók hann í sunnudags.

andarunginn
Þessi ungi og þrælmyndarlegi piltur fékk treyju Eiðs Smára eftir leik. Það vantaði ekkert upp á spillinguna sem varð til þess að hann fékk treyjuna :) En þar sem ég þekki of vel til í þessu máli segji ég ekki meira um það

Fært undir Fjölmiðlar, Íþróttir | 1 ummæli »

Fyrirsagnapakki

Fært af tom þann 12. október 2007

Nokkrir knattspyrnuáhugamenn urðu varir við dýnamískar fyrirsagnir Meyersins á grasinu eftir síðustu landsleiki. Aðrar eins svakalegar fyrirsagnir hafa vart sést en eftir Spánarleikinn var boðið upp á “Landsliðið, sómi Íslands, sverð og skjöldur” eða eitthvað í þeim dúr. Sigri á Norður-Írum var svo fagnað með fyrirsögninni “Stolt siglir landsliðið”.

Ég átta mig alveg á að svona fyrirsagnir koma ekkert að sjálfsdáðum. Þess vegna ætla ég að hjálpa nafna mínum með nokkrar fyrirsagnir sem hann má nota að vild.

Nú ef við vinnum eru nokkrar sem hægt er að bjóða upp á.

Sú besta er auðvitað “Ó guðs vors landslið”.

Einnig er hægt að fara í “Landsliðið er land þitt, þú ávallt skalt geyma”.

Mjög flott væri líka “Landsliðið ögrum skorið”.

Svo tvær útfærslur af sömu fyrirsögninni, annarsvegar “Landsliðið við ána” eða “Öxar við landsliðið”, hvort sem hentar betur.

Ekki má gleyma góðri fyrirsögn ef við rústum nú Lettunum. Þá hentar “Ó hve létt er þitt landslið” mjög vel.

Nú ef við ösnumst til að tapa leiknum er hægt að bjóða upp á til dæmis “Nú er frost í landsliði frýs í æðum blóð.”

Ef mjög illa fer væri gott að bjóða upp á “Sofðu unga landsliðið”.

Átta fyrirsagnir tilbúnar til afgreiðslu.

Fært undir Fjölmiðlar, Íþróttir | Engin ummæli »

Hver er maðurinn?

Fært af tom þann 4. október 2007

Ég tók eftir ansi athyglisverðum ljósmyndara á leik Stjörnunar og Fram í Mýrinni í gær. Fyrst ætlaði ég bara að taka mynd af honum og segja frá en þegar ég sá hversu illa sést hver maðurinn er ákvað ég að breyta þessu í getraun.

Ég er að tala um ljósmyndarann sem er við fjærstöngina á markinu sem sést á myndinni. Þetta gæti verið erfitt, kannski mjög auðvelt. Fjölmiðlungar ættu samt að kannast við hvernig maðurinn stendur.

Hver er maðurinn?

Vísbending: Aðalstarf hans er ekki ljósmyndun.

who?

Fært undir Fjölmiðlar, Umræðan, Íþróttir | 2 ummæli »

Meyer sér um þetta strákar

Fært af tom þann 3. október 2007

Síðunni barst stórskemmtilegur linkur sem tengist vefsíðunni gras .is. Sendandi hafði ruglað eitthvað í slóð á eina frétt og fundið skilaboð ritstjórans, nafna míns Meyer, til starfsmanna sinna. Samvkæmt skilaboðunum mun hann sjá alfarið um upphitun fyrir bikarúrslitaleik FH og Fjölnis á laugardaginn kemur.

im on it guys

Mönnum skal sko ekki detta svo mikið í hug að skrifa um leikinn.

Ég get ekki beðið þangað til á föstudaginn.

Fært undir Fjölmiðlar, Heilbrigði, Íþróttir | Engin ummæli »

Kaffibrúsaknattspyrna

Fært af tom þann 26. september 2007

Spænsku mörkin eru klassaþáttur á mánudögum á Sýn. Þar fara íþróttafrétt menn Sýnar, oftar en ekki Höddi Magg yfir leiki helgarinnar með Heimi Guðjónssyni. Heimir er hafsjór af fróðleik um knattspyrnu og það er alltaf gaman að hlusta á hann fara yfir leikina sem bjóða líka alltaf upp á mörk, spjöld og hlægilegan varnarleik.

Það sem fór í taugarnar á mér við þáttinn í fyrra var settið og klæðnaður þáttastjórnenda. Þeir sátu við eitthvað lítið kaffiborð sem var yfirburða kjánalegt. Þá þurfti Heimir alltaf að halda að sér höndum því hann vissi ekkert hvað hann ætti að gera við hendurnar á sér.

Það var og er annað upp á teningnum hjá Heimi og Guðna í meistaradeildinni, nú ensku deildinni. Þar sitja menn við flott borð, geta hallað sér aftur og sveiflað höndum eins og þeir vilja. Þar var einnig og er dress code sem hentar íþróttaþáttum. Jakkafatajakki og skyrta með efstu töluna hneppta frá.

Í spænsku mörkunum í fyrra voru menn samt alltaf í jakkafötunum og Heimir karlinn bauð meira að segja stundum upp á vesti innanundir jakkann. Þá sátu þeir þarna, uppstílaðir við kaffiborð eins og tveir frændur í fermingu sem voru ekki alveg vissir hvert fermingarbarnið væri.

Settið er aðeins skárra í ár, ekki þessi pappaspjöld fyrir aftan sem voru ekki alveg að gera sig. Kaffiborðið er samt ennþá sem er ekki vel því þannig samtöl í setti bjóða ennþá upp eilítið þvingaðar samræður. Það er samt allt annað að sjá strákana eftir að þeir fóru að hneppa frá efstu tölu. Þeir eru svo lausir og liðugir og í góðum fíling. Höddi Magg tók sig meira að segja til á mánudaginn og bauð upp á gallabuxur.

flottir

Kaffihúsasamræður um spænska boltann.

Fært undir Fjölmiðlar, Umræðan, Íþróttir | 1 ummæli »

Það var víst handboltaleikur í gær

Fært af tom þann 26. september 2007

Ég hafði sama og ekkert að gera í gær og hefði ég vitað af Afturelding - Valur í gær í N1 deildinni hefði ég skellt mér á völlinn.

Klukkan rúmlega 21:00 verð ég vitni af símtali þar sem verið er að tala um að Afturelding hafi lagt Íslandsmeistarana í ágætis leik í Mosfellsbæ, leik sem ég hafði ekki hugmynd um að færi fram í gærkvöld. Þetta bara hreinlega gæti ekki komið fyrir í fótboltanum enda mun meiri auglýsingar fyrir hann. Upphitunarfréttir í blöðum og á netinu og síðast en ekki síðst, hin einfalda “Leikir dagsins hér heima” frétt á Fótbolta.net

Það stendur alltaf í Mogganum í litlum dálk hvað er að gerast í sportinu og maður verður víst að temja sér að lesa það alltaf því annars víst gerast þessir hlutir. Það er auðvelt að skilja afhverju blöðin eyddu ekki síðuplássi í upphitun fyrir leikinn en maður fer að velta fyrir sér hvað HSÍ þurfi að gera.

Það vita allir að handboltinn hefur átt undir högg að sækja í aðsókn og það er ekki vel enda N1 deildin mikil skemmtun í alla staði. Það þarf miklu fleiri og aktívari fréttir af deildinni sem og erlendum handknattleik.

Það er eitt form fjölmiðils sem hafa endalaust pláss og það eru vefmiðlar. Tveir þeir stærstu, Vísir.is og MBL.is, geta vel og eiga að gera fréttir um leiki kvöldsins þannig fólk sem fær allar sínar upplýsingar gegnum veraldarvefinn sé með á nótunum.

Vísir.is bauð upp á frétt um leikina kl 17:42 í gær sem er bara alltof seint. Það eru mjög margir sem vinna við nettengdar tölvur sem eru löngu farnir heim á þeim tíma og farnir að huga að öðru. Þeir þó allavega gerðu frétt á meðan MBL.is sváfu og skrifuðu ekkert um leikinn fyrr en hann var búinn.

Þetta er auðvelt vandamál að laga en þangað til fylgist ég bara betur með “Í kvöld” dálknum í Mogganum. Það er ekkert að gerast í kvöld nema kvenna hand- og körfubolti.

Fært undir Fjölmiðlar, Umræðan, Íþróttir | 2 ummæli »

Úrvalsdeildarumgjörð í Grindavík.

Fært af tom þann 19. september 2007

Það er eitt lið í 1. deildinni sem býður upp á Úrvalsdeildarumgjörð, Grindavík. Þrátt fyrir fallið í 1. deild í fyrra hætti hið frábæra fólk í kringum félagið ekkert að sýna metnað og það er gjörsamlega allt til alls þarna. Með úrslitunum í kvöld eru þeir líka nánast komnir upp og verður gaman að fá að komast oftar í Grindavík að ári.

Fjölmiðlaaðstaðan er frábær, risastór með stórum og miklum gluggum sem bjóða upp á 100% útsýni. Meira að segja í 1. deildinni fylla þeir út leikskýrslunar inn á vef KSÍ og prenta það út þaðan þannig maður þarf ekki að rýna í lélegar rithendur sem er óþolandi. Það er alltaf heitt á könnunni og bakkelsi til staðar. Það er meira að segja hellt upp á kaffið í stúkunni, ein kanna í hvorum hálfleik þannig ferskleikinnn verður ekki mikið meiri.

Umgjörðin í kringum völlin er líka flott. Gæslumenn á öllum svæðum sem eru með enga stæla, bara þetta góðlátlega sveitaviðmót og allir hinir elskulegustu. Það er einmitt málið við Grindavík líka að viðmót heimamanna er alltaf til sóma. Hjá þeim njóta fréttamenn mikillar virðingar og alltaf tekið á móti manni með pomp og prakt

Ég bara endurtek hvað það verður gaman að fá Grindavík aftur upp í úrvalsdeild. Að sjálfsögðu var Sony Ericson K550i á lofti enda fór ég bara sem gestur og gat notið frábærra tilþrifa Scott Ramsey í 90 mínútur.

Hressandi vedur
Það vantaði ekki rigninguna í Grindavík í kvöld. Reyndar um allt Suðvestuhornið þannig ekki verða þeir skammaðir fyrir það.

Það er gjörsamlega allt til alls � Grindav�k
Það vantar ekki metnaðinn í Grindavík. Ef svo skyldi fara að þráðlausa netið virki ekki þá eru tengi fyrir netsnúrur líka og auðvitað snúrur til boða. Rafmagn að sjálfsögðu.

Fjölskyldustemningin hlýleg
Meistari Palli að skrifa fyrir vefinn umfg.is sem mæta alltaf með umfjallanir. Sómi af því.

það var scotty…
Scott Ramsey skorar 3. mark Grindvíkinga. Þess má til gamans geta að vallarþulurinn söng í hátalarakerfið þegar hann tilkynnti markaskorarann. Eitthvað sem ég væri mjög til að sjá meira af.

Vel planað kaffi
Tvær kaffikönnur. Kaffið alltaf ferskt, Grindvískt hugvit.

vel étið
Var aðeins of seinn að taka mynd af bakkelsinu. Höddi át svo svakalega af því maður, shit!

unglingafæði
Hödda dugði ekki bara kökurnar. Hann datt í unglingafæðið líka og fékk sér popp og kók.

frábært útsýni
Það vantar ekki útsýnið á völlinn.

Fært undir Fjölmiðlar, Íþróttir | 2 ummæli »

Kalt og kósý í Breiðholti.

Fært af tom þann 18. september 2007

Það var heldur betur kalt í Breiðholti í kvöld þegar Leiknir tóku á móti Stjörnunni. Við Max skelltum okkur í smá umfjöllun enda eini leikur kvöldsins. Leiknismenn bjóða ekki upp á neina blaðamannaðstöðu en bæta upp fyrir það með dýnamískum Elvis, hressum sem vallarþul og góðri stemningu.

Elvis er næsti Páll Sævar
MC Elvar Geir að tilkynna skiptingu Leiknismanna.

Ollu reddad
Tæknibíllinn góði sem stjórnar Leiknisvelli á leikdegi.

Kalt og gott
Elvar tók 100 metra sprettinn inn að ná í veitingar!

arnar dadi
Fótbolti.net, Hafnarfjörður - Arnar Daði Arnarsson villtist úr sveitinni og upp í breiðholt í kvöld.

taeknitrollid
Veit ekki nafnið á þessum manni en hann sá um tæknibílinn ógurlega. Held að Leiknir mundi fresta heimaleik ef þessi ágæti maður væri ekki til staðar á leikdag.

Fært undir Fjölmiðlar, Íþróttir | 7 ummæli »

Skotastúkan í fyrsta sinn.

Fært af tom þann 17. september 2007

Helgin byrjaði vel með enn einum 1-0 sigri United, í þetta skiptið á Goodison. Það verður nú eitthvað að fara að detta í gírinn þarna en það verður ekki deilt við karlinn um 9 stig af 9 mögulegum.

Ég skellti mér svo í Grafarvoginn til að fjalla um leik Fjölnis og Þróttar, toppslaginn í 1. deildinni. Þegar ég labbaði út um dyrnar var ég svo viðutan að ég fattaði ekki hvernig veður var en sá það þegar ég var mættur á Fjölnisvöll. Grenjandi rigning og rok með því fyrir allan peninginn. Fjölnismenn bjóða ekki upp á neina blaðamannaaðstöðu, ekki einu sinni hægt að standa innandyra þannig ég tók mig bara til og fór í skotastúkuna!

ALDREI í lífinu hélt ég að ég mundi finna sjálfan mig í skotastúkunni. Skotastúkan á Fjölnisvelli er á gangstéttinni fyrir ofan völlinn það er reyndar ágætis útsýni. Þar gat ég skrifað þurr og hlustað á BBC WS í leiðinni í útvarpinu.

Ég er ekkert að kítast út í Fjölni fyrir aðstöðuna enda vissi ég alveg að hverju ég gekk þegar ég mætti. Það var samt frekar glatað þegar gæslumennirnir komu og rukkuðu fólkið sem var í skotastúkunni með mér. Mér finnst frábært að fólk í skotastúkum sé rukkað enda eru það óþarfa fólk sem skilar knattspyrnunni engu nema nokkrum flautum á bíl þegar mark er skorað.

Þegar gaurinn mætti að mér sýndi ég honum fjölmiðlapassann og sagðist vera að skrifa um leikinn.  Sýndi honum líka blokkina sem ég var búinn að hripa niður nokkur atriði og XD pennan góða sem ég fann í skúffunni heima. Manninum var eitthvað misboðið og sagði að þetta væri ekki venjuleg aðstaða fyrir fjölmiðla. Ég sagði við manninn að þarna væri ENGIN aðstaða fyrir fjölmiðla þess vegna sæti ég hér.

Þá hreytti hann í mig að Hafliði Breiðfjörð væri nú þegar mættur og við værum ekki báðir að skrifa um leikinn. Eins og hann væri bara alveg með það á hreinu. Ég benti honum á Hafliða sem stóð við völlinn með myndavél og sagði honum að hann væri einungis að mynda leikinn. Þá bara fussaði hann og gekk í burtu eins og ég væri það almesta fífl sem til væri.

rigning
Það var engin smá rigning og svona leit leikurinn út rétt áður en rúðuþurrkurnar mættu til leiks.

semirigning
Rétt eftir rúðuþurrkurnar. Þær réðu varla við í fyrri hálfleik.

Þessi þurfti að borga sem betur fer
Félagar mínir í skotastúkunni.

Eirëur ekki parsáttur
Eiríkur Stefán á Fréttablaðinu alveg paparazzi-aður í drasl á Fjölnisvelli. Hann stóð úti eins og maður.

Fært undir Fjölmiðlar, Íþróttir | 1 ummæli »

David Healy - Viðtalið sem aldrei varð

Fært af tom þann 13. september 2007

Í hádeginu á mánudaginn fékk ég hringingu frá Magnúsi Má Einarssyni, ritstjóra Fótbolta.net og framtíð Íslands í fréttamennsku. Hann og Höddi Snævar voru þá nýbúnir að ljúka keppni á fréttamannafundi Norður-Írska landsliðsins og voru á leið heim í hús að skrifa upp.

Hann sagðist ætla að bjóða upp á dýnamík á síðunni því hann hafði fengið einkaviðtal við David Healy, skærustu stjörnu Norður-Írska liðsins. Þeir hefðu báðir furðað sig á því afhverju Healy var ekki á fundinum en héldu sig hafa dottið í lukkupottinn þegar þeir sáu leikmann sem ekki var á fundinum í sjónvarpsviðtali fyrir utan fundarherbergið.

Þeir voru ekki lengi að bregðast við og réðust að stjörnunni af mikilli ákefð og spurðu hvort þeir gætu fengið stutt viðtal og þar með verið eini íslenski miðilinn sem fengið hefði viðtal við Healy. Leikmaðurinn spurði fjölmiðlafulltrúa sinn leyfis og svaraði svo spurningum strákanna.

Hér má sjá Healy svara spurningum með diktafóninn í andlitinu.

Leit svo spaðalega út

Glöggir lesendur taka kannski eftir er þetta alls ekkert David Healy.

Maðurinn sem Norður-Írska sjónvarpið var með í viðtali í fimm mínútur og allir ljósmyndarar biðu eftir, maðurinn sem var þarna eins og stórstjarna var enginn annar en Ivan Sproule, leikmaður Bristol á Englandi sem kemst ekki einu sinni í byrjunarliðið hjá Norður-Írlandi.

Maður sér alveg fyrir sér svipinn hefðu þeir tekið hann í hina hliðina. “Full name?”

Ivan Sproule!

Þetta er David Healy.

Eini sanni

Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Íþróttir | 1 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning