Fært af tom þann 13. desember 2007
Tveggja daga stanslausum hátíðarhöldum samstarfsfólks míns vegna uppsagnar minnar í gær byrjaði í morgun með pomp og prakt.
Þegar ég mætti í morgun var á boðstólum tvö föt af ofnrétti, risastór brauðterta, pönnukökur, brúnar og ljósar randalínur og þrjár sortir af smákökum.
Í hádeginu var svo pantaður bakki frá Jóa Fel sem innihélt fjórar gerðir af brauði, rjómaosta, pestó, hvítan kastala og risastórar súkkulaðismákökur. Hvað verður svo í kvöld veit ég ekki. Líklega endur og Humar eða eitthvað.
Á morgun munu svo allir (ca 200) starfsmenn fyrirtækisins, fagna brottför minni með heitu súkkulaði og meðlæti í kaffitímanum á morgun.
Ef ég kynni betur á i-Símann minn myndi ég sýna ykkur myndir af þessum kræsingum en vegna tæknilegra vandamála gengur það ekki upp.
Fært undir Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af tom þann 7. desember 2007
Á hverjum föstudegi í vinnunni eldar einhver starfsmaður fyrir alla. Fær til þess fjárráð hjá yfirvaldinu og má elda í raun hvað sem er. Með hverjum föstudeginum sem líður nálgast mitt hlutverk í þessu en hingað til hef ég náð að koma þessu yfir á aðra.
Í dag til dæmis sagði ég að samstarfskona mín sem var ekki mætt í vinnuna hefði áhuga á að taka næsta föstudag og kom mér þannig undan því. Hún kann víst ekki að elda þannig það ætti allavega að vera fróðlegt. Síðasta föstudag kom ég þessu yfir á Pólverjana hressu, þá Tomasz, Krzystof og Przmyslaw sem vinna út í pakkhúsi. Það var alltaf augljóst að máltíðin í dag yrði athyglisverð og sú varð raunin.
Þegar ég mætti að ná mér í af hlaðborðinu sá ég að eldaður hefði verið fiskur í raspi. Ekkert að því, fiskur í raspi er tímalaus klassík frá Langholtsvegi 144 hjá ömmu allt síðan 1984. Ekki var þetta fiskur, ekki alveg. Það sem Pólverjarnir geðþekku buðu upp á var kjúklingur í raspi með sóðnum kartöflum og drukknuðu salati.
Drukknuðu salati segi ég því þegar salatið var komið í skálina var helt yfir það ca 20 dósum af fetaosti með öllu og ólíunni með. Minningarathöfn var haldin fyrir salatið áður en borðhald hófst.
Ég tók mér drjúgan tíma í að meta matinn. Þetta var ekki vont. Ekkert geðveikt. Aðeins betra en ágætt. Þetta var…spes.

Ofan á raspbitunum bráðinn ostur og sveppir.
Fært undir Matur og drykkur, Menning og listir | 3 ummæli »
Fært af tom þann 24. nóvember 2007
Afmælisbarn dagsins er litla frænka mín, Ylfa Sigurðardóttir, en hún bauð til 3ja ára afmælisveislu sinnar að Leifsgötu í dag. Eina sem hún bað um var að afi hennar og amma myndu mæta og það yrði kaka. Hún fékk nú rúmlega það og bauð móðir hennar, systir mín, upp á dýnamískar veitingar að vanda.
Á þá litlu var skellt þessi skemmtilega bleika kóróna og sama þemað var á pappadiskunum og servíettunum, bleikt Barbie. Afmælisbarnið var stútfullt af spenningi þegar að því kom að blása á kertin á kökunni en söngur gestanna var henni ofviða.
Maður getur svo sem ekki ásakað þá stuttu því ekki var söngurinn fagur hjá gestunum. Hún var þó fljót að jafna sig enda kraftastelpa og átti hún indælis afmælisdag.

Stutta alveg að farast úr spenningi. Stutt í að kertin syngi sitt síðasta.

Hlátur breyttist í grátur þegar gestirnir fóru að syngja.

Hún var fljót að jafna sig þegar frændi tom spanderaði í pakka.
Ylfa 3ja ára, hversu dýnamísk er þessi kóróna!
Fært undir Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af tom þann 29. október 2007
Það er boðið upp á rándýra eldamennsku í vinnunni í dag. Líklega svona c.a. milljón kall.
Framkvæmdastjórinn par exelance, skellti sér út í búð, henti á sig svuntu og tók sig til við eldamennskuna. Nú bíður fyrirtækið eftir því að bragða á grænmetissúpunni hans sem er að eigin sögn hreint stórkostleg.
Ég skaust með k550i inn í eldhús að ná mynd af viðburðinum.

Nýbakað brauð vinstra megin og á bakvið hann er leynið. Parmesan ostur sem á víst að fara ofan á súpuna.
Það eru klárlega ekki allir sem elda með headset.
Fært undir Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »
Fært af tom þann 22. október 2007
Sviðin gríma af sjálfdauðri rollu og maukaðar rófur. Íslenskt, já takk!

Það var annaðhvort það eða ég.
Fært undir Matur og drykkur | 4 ummæli »
Fært af tom þann 19. október 2007
Olís í Grafarvoginum ætla heldur betur að blanda sér í slaginn um rómantíska staði til að snæða á. Hvort sem það séu ofnbakaðar nauta eða lambasteikur, fiskur eða kjúklingur, Olís eru með þetta allt.

Hver vill ekki steik sem gerð er á mínútu. Ég meina það er bara svo traustvekjandi.
Fært undir Matur og drykkur, Umhverfi | 1 ummæli »
Fært af tom þann 16. október 2007
Í framhaldi af þessu vil ég benda á þetta.
“Eftir klukkutíma af blóð, svita og tárum í H&M var að sjálfsögðu tekið McDonalds take away með i rútuna.
Fært undir Matur og drykkur, Slúður, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af tom þann 14. október 2007
Kvennalið Vals eru þessa dagana í Belgíu að leika í milliriðli Evrópukeppni meistaraliða. Þær halda uppi þrælskemmtilegri dagbók sem birt er daglega á Fótbolta.net. Þar fara markvörðurinn, Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir yfir farinn veg hvers dags og gera vel.
Eftir að hafa lesið fyrstu fjóra dagana var eitt sem ég staldraði oft við og nú sérstaklega eftir dag fimm. Stelpurnar éta ekkert annað en ruslfæði alla daga. Hótelið þeirra býður víst upp á stórkostlegan Túnfisk alla daga sem þær fúlsa bara við og panta sér pizzur og fleira.
Þær voru tíu mínútum frá því að ná jafntefli gegn stórliði Frankfurt sem er helmingur þýska landsliðsins, núverandi heimsmeistara. Hvort þrekið hafi ekki verið meira út af frönskum og kexi skal ekki segja en grípum niður í smá búta frá dögunum sem komnir eru inn.
Dagur 1
“Við keyrðum frá París til Belgíu með pit stoppi í verstu búllu landsins þar sem flestir enduðu á að kaupa sér stóran skammt af frönskum sem var ekki einu sinni góður.”
Dagur 2
“Maturinn eftir leikinn var ekki upp á marga fiska…þó svo að það hafi verðið fiskur í matinn (innskot frá síðuhaldara: haha). Þannig nú sitjum við í káetum okkar og bíðum eftir ljúffengum Dominos pizzum!!“
Dagur 3
“Við náðum þó að redda okkur í bæinn og versluðum nauðsynjar (kex og annað tilheyrandi).”
Dagur 4
“Nú erum við aftur að bíða eftir Dominos pizzum, þar sem það var aftur túnfiskur í matinn.”
Dagur 5
“Eftir vonbrigði verslunarferðarinnar var ákveðið að fara á McDonalds sem sárabót. “
Þetta fæði hindraði þær hinsvegar ekkert í að rúlla yfir Wetzlaar og eru þær búnar að leggja upp stórkostlega stöðu fyrir sig. Sigri þær Everton í næsta leik mæta þær líklega núverandi Evrópumeisturum Umea í leikjum heima og að heiman í 8-liða úrslitum keppninar í nóvember.
Áður en að dyggustu stuðningsmenn kvennaboltans missa vitið og fara að leita mig uppi verður að taka fram að þetta er góðlátlegt spaug.
Baráttukveðjur!
Fært undir Matur og drykkur, Slúður, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af tom þann 21. september 2007
Ljósmyndarinn par exelance, ég, var að sjálfsögðu með Sony Ericson k550i á lofti í gær. Fyrir utan Heiðrúnú, næstu bestu vínbúð landsins, komst ég að því að fólk á jeppum og jepplingum leiðist ekki vínandinn. Það voru nú ekki margir mættir að versla sér sopann en næstum hver einasti var á þessum týpum bíla. Hvort það segi eitthvað um fólk sem á svona bíla eða almenna eign Íslendinga á jeppum og litlu bræðrum þeirra veit ég ekki.

10 bílar af 12, jeppar eða jepplingar. ´
Það er líka alltaf hressandi þegar bílar með æfingaakstur mæta í ríkið. Úr þessum bíl steig maður sem skokkaði í ríkið á meðan unglingurinn með æfingaraksturinn sat úti í bíl.

Kompás tom býður góða helgi.
Fært undir Ferðalög, Matur og drykkur, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »