Fært af tom þann 12. desember 2007

Flott mynd í frétt á Eyjunni í dag.
Hvert sendir maður reikninga fyrir svona?
http://blogg.visir.is/tom/2007/09/17/skotastukan-i-fyrsta-sinn/
Fært undir Fjölmiðlar, Umhverfi, Umræðan, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af tom þann 20. nóvember 2007
Virkilega metnaðarlaus færsla. Dagurinn í dag og næstu dagar verða eiturhressir í vinnunni eins og alltaf um þetta leyti mánaðarins vegna uppgjörs á launatímabili. Mjög gaman að fara yfir tíma hjá yfir hundrað starfsmönnum.
Orðinn temmilega spenntur fyrir landsleiknum á morgun. Viðmælendur vefmiðlanna hver öðrum hressari og allt gengur víst frábærlega. Það gekk samt allt frábærlega fyrir leikina gegn Lettum og Liechtenstein þannig maður tekur þessu öllu með fyrirvara.
Mýrin í kvöld en þar mæta ÍBV sem er alltaf hressandi að horfa á. Ef þeir tapa sannfærandi (einhver hætta á öðru?) býð ég upp á Eyjafærslu í kvöld.
Ljósi punktur dagsins:

Fært undir Umhverfi, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af tom þann 29. október 2007
Það er byrjað að snjóa og ekki kominn nóvember. Var ekki samtaka átak allra um að hætta þessum snjó bara almennt. Fólk er ekki búið að vera nógu duglegt við að hafa bílana í gangi á næturnar og það er allt of mikil endurvinnsla í gangi.
Þetta er náttúrulega klárlega Húsasmiðjunni og Ikea að kenna. Þau eru farin að auglýsa jólin á fullu þannig sá sem sér um þennan snjó veit ekki hvað skal til bragðs að taka.

Come on! Eins og ég nenni á nagla strax.
Fært undir Efnahagur, Umhverfi | Engin ummæli »
Fært af tom þann 24. október 2007
Það muna allir eftir einföldu leiðinni til að búa til mótorhjól þegar maður var lítill. Setja spila í teinanna þannig þetta ágæta bruurururuururur hljóð komi.
Nú má nota sama trick til að vera erfiður á vinnustaðnum.
Eina sem þarf til er gulur post-it miði og vifta. Einfaldlega brjótið miðann saman þannig smá af líminu stendur eftir. Setjið svo inn í viftuna þannig límið festist við og voila.
Skýringarmynd:

brururururururururururur. Vinsæll.
Fært undir Heilbrigði, Umhverfi | 2 ummæli »
Fært af tom þann 19. október 2007
Olís í Grafarvoginum ætla heldur betur að blanda sér í slaginn um rómantíska staði til að snæða á. Hvort sem það séu ofnbakaðar nauta eða lambasteikur, fiskur eða kjúklingur, Olís eru með þetta allt.

Hver vill ekki steik sem gerð er á mínútu. Ég meina það er bara svo traustvekjandi.
Fært undir Matur og drykkur, Umhverfi | 1 ummæli »
Fært af tom þann 7. október 2007
Rannsóknarblaðamaðurinn ég komst að því í gær afhverju íslenskur landbúnaður hefur átt undir högg að sækja svo lengi. Ég einmitt fór út á land í gær, gegn mínum vilja, var í óvissuferð með vinnunni. Ferðin endaði á bóndabýli upp í Skorradal þar sem farið var í leiki, etið og drukkið.
Undir lok kvöldins brá ég mér á klósettið sem var í lítilli hlöðu á svæðinu og opnaði þar dyr inn í aðra hlöðu. Ekki voru þar beljur, hestar, kýr eða hæsn. Ónei. Eina sem var boðið upp á var fótbolta spil á miðju hlöðugólfinu og grænar mottur hengu út um allt.

Landbúnaðarráðherra á mikið verk fyrir höndum.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Umhverfi, Umræðan | Engin ummæli »
Fært af tom þann 4. október 2007
Reglur handknattleikshreyfingarinnar segja til um að stuðningsmenn liðanna meiga einungis hafa eina trommu per lið. Þetta var líklega eina reglan sem MJÖG fáliðaðir gæslumenn Stjörnunnar framfylgdu í Mýrinni í gær. Á leik Stjörnunnar og Fram í gær mættu tveir ungir Framarar með sitthvora trommuna en líklega eftir kvart og kvein heldra fólks sem sat nálægt þeim voru þeir beðnir um að slökkva í annari af tveimur ungum gæslumönnum.
Þessir tveir gæslustrákar voru mjög kurteisir og eiga hrós skilið fyrir gærkvöldið en eins og áður segir höfðu þeir í ýmsu að snúast. Ekki var til að bæta gráu ofan á svart allir krakkarnir sem hlupu um. Á löngum stundum leit Mýrin út sem leiksvæði og einhver handboltaleikur væri bara fyrir. Á endanum náðu þessir tveir piltar að skrúfa fyrir það líka. Helöflugir strákar.
Þessi atvik voru hinsvegar ekkert að trufla fólk við að horfa á hinn ágætasta handboltaleik í þessu glæsilega húsi. Framarar mættu með nokkur stykki af ansi skemmtilegu tóli til að búa til hávaða. Það voru trékplattar með áheftuð gúmmíhandföng sem hægt var að bera saman. Í takt við eina góða trommu myndar þetta fínasta hávaða en auðvitað er bara langbest að klappa, stappa og segja hey hey hey hey þegar hitt liðið er í sókn. Hugvitið í Safamýrinni samt til eftirbreytni.

Sniðugir plattar.
Fært undir Umhverfi, Umræðan, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af tom þann 27. september 2007
Það eru ekki öll fyrirtæki sem bjóða upp á heilu lónin á bílastæðum starfsmanna en það gerir vinnan mín. Nú Lónið sem ég nefndi í fyrravetur Suðurhraunslón er nú í haustveðrinu alveg að blómstra. Upp á grínið tók ég mynd af lóninu áður en ég fór í útvarpið kl 11:35 og svo aftur þegar ég kom til baka kl 13:15.
Þegar ég kom til baka hafði ég nefnilega tekið eftir því að lónið var farið að flæða yfir bakka sína. Vöxturinn í lóninu hafði verið umtalsverður.

11:35. Kannski ekki ýkja merkilegt en miðið vöxtinn við hvítu gámana til hægri.

13:15. Suðurhraunslónið ógurlega gjörsamlega að flæða yfir bakka sína. Manni líður alltaf eins og fjallajeppakarli þegar maður ekur Focusnum yfir þetta.
Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Umhverfi | 1 ummæli »
Fært af tom þann 21. september 2007
Ljósmyndarinn par exelance, ég, var að sjálfsögðu með Sony Ericson k550i á lofti í gær. Fyrir utan Heiðrúnú, næstu bestu vínbúð landsins, komst ég að því að fólk á jeppum og jepplingum leiðist ekki vínandinn. Það voru nú ekki margir mættir að versla sér sopann en næstum hver einasti var á þessum týpum bíla. Hvort það segi eitthvað um fólk sem á svona bíla eða almenna eign Íslendinga á jeppum og litlu bræðrum þeirra veit ég ekki.

10 bílar af 12, jeppar eða jepplingar. ´
Það er líka alltaf hressandi þegar bílar með æfingaakstur mæta í ríkið. Úr þessum bíl steig maður sem skokkaði í ríkið á meðan unglingurinn með æfingaraksturinn sat úti í bíl.

Kompás tom býður góða helgi.
Fært undir Ferðalög, Matur og drykkur, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af tom þann 21. september 2007
Skellti mér með vinnufélögunum á stórleik meistarakandídata Stjörnunnar og Íslandsmeistara Vals í gær. Það er gaman þegar handboltinn byrjar aftur en íslenskur handbolti stórlega vanmetinn og þrælskemmtilegur. Líka ágætt að fara að komast inn en veðráttan klikkar sjaldan innanhús.
Hún klikkaði ekki heldur í nýja húsi Garðbæinga, Mýrinni. Flott hús og ég vil óska Stjörnumönnum til hamingju með það. Eitt sem er þó stórt vandamál við húsið, leikklukkan. Hún er á svo hrikalega bjánalegum stað, alveg upp við áhorfendabekkina sem þýðir að ef maður situr lengst frá innganginum sér maður mjög illa á hana.
Tvennt sem var sérstaklega skemmtilegt í gær svona fyrr utan handboltann. Skemmtilegt klúður vallarþulsins í byrjun leiks sem hafði ruglað saman leikskýrslunum. Hlynur Morthenz byrjaði í marki Stjörnunnar og þegar hann varði sagði þulurinn hátt og snjallt, NÚMER 16! PÁÁÁÁLMAR PÉTURSSON! sem er jú Húsvíkingur knár og markvörður Vals.
Sama var upp á teningnum þegar Ólafur Víðir Ólafsson, leikmaður Stjörnunnar, var að skora úr þremur fyrstu vítum sínum. Þá var boðið upp á, NÚMER 23! FANNAR ÞÓR FRIÐGEIRSSON! sem fyrir utan að vera menntskælingur við sund er einnig leikmaður Vals.
Þetta lagaðist strax og var nú bara krúttlegt. Það var samt annað sem var sérstaklega skemmtilegt að sjá og það var Finnur Jóhannsson. Finnur sem þekktur fyrir sín tattoo og leikið í bíómynd þar sem sköp voru rökuð er einnig handknattleiksmaður. Þegar hann var að hita upp með Val hélt ég að hann væri bara svona að halda sér í formi kallinn en hann var mættur inn á í fyrri hálfleik. Finnur bauð upp á fínasta varnarleik á köflum, stolna bolta, varin skot en endist því miður ekki lengi. Mjög gaman samt að sjá þennan Rodman Íslands aftur á fjölunum.
Handboltinn á það sameiginlegt með fótboltanum að fólk er mjög duglegt að mæta seint á völlinn. Það er jafnvel enn verra í handboltanum ef eitthvað er. Rótið á fólki er líka óþolandi og ég veit ekki hversu oft fólk var að standa upp og fara og koma allan tímann og líka á meðan leik stóð. Auðvitað þarf fólk kannski að létta á sér eða fá sér kaffibolla en það getur ekki verið afsökun fyrir því að helmingur vallargesta er að mæta 10-15 min eftir að leikur byrjar og standa upp 3-4 sinnum í hálfleik sem er jú bara 30 mínútur.
Um leikinn má margt segja en það er ljóst að Valsmenn þurfa að laga ansi margt fyrir þáttöku þeirra í Evrópukeppninni. Auðvitað verður það ævintýri en ég held að töpin verði það stór að þau muni yfirgnæfa ánægjuna af reynslunni. Óska þeim auðvitað hins besta og þakka þeim kærlega fyrir að flytja inn þessi stórlið sem koma til landsins í haust.

Liðin stilla sér upp fyrir fyrsta leik í Mýrinni.
Fært undir Alþjóðamál, Heilbrigði, Umhverfi, Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af tom þann 19. september 2007
Það er orðið nokkuð ljóst að ég hata ekki myndirnar og þar verður engin breyting á. Spandera hérna í semmí dýra getraun þar sem spurt er.
Hvaða völlur er þetta?

Það er óþarfi að segja að þeir sem viðstaddir voru myndatökuna hafa ekki leyfi til að giska.
Svarið komið því læt ég alla myndina fylgja. Hver kannast ekki við brekkuna góðu og mestu skotastúku allra tíma þarna uppi hjá hvíta húsinu.

Fært undir Umhverfi, Íþróttir | 7 ummæli »
Fært af tom þann 17. september 2007
Það er ekki oft sem ég þakka fyrir það að vinna í Hafnafirði. Það er temmilega löng leið úr Ártúnsholtinu í Suðurhraunið og til baka alla daga en ég þakka þó fyrir að vera ekki að fara hina leiðina.
Eftir að Vegagerðin mín kæra bauð út tvöföldun á veginum alla leið er ég enga stund í vinnuna en það sama verður ekki sagt um fólkið sem fer frá Hafnafirði til Reykjavíkur á morgnanna. Ég smellti af tveimur myndum í morgun til að sýna muninn á minni leið og greyjanna sem þurfa að fara hina leiðina.

Aðeins áður en myndin er tekin var umferðin bókstaflega bíl við bíl. Sjáið mig krúsa nánast einan á veginum.

Aðeins farið að skána en þessi bílar stefna beint á röðina fyrir framan þá. Þarna er ég bara orðinn kóngurinn á veginum.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Menning og listir, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan | 4 ummæli »
Fært af tom þann 14. september 2007
Nú er sá tími kominn að fólk er farið að benda mér á að fara í klippingu. Það byrjaði í gær þegar gamli sagði að rakarinn biði eftir mér og svo bættust tveir við í hópinn í dag.
Ég skal viðurkenna það að makkinn er orðinn fullmikill og mjög erfitt er orðið að díla við hann. Oft hefur það verið leti og metnaðarleysi sem orsakar að ég læt hárið vaxa of mikið en núna hef ég góða og gilda ástæðu. Rakarinn minn er fluttur á Akranes.
Alveg þangað til í ár hafði ég sótt sömu rakarastofuna, Hársnyrtistofu Dóra á Langholtsvegi, eða allt frá því ég var fjögurra ára gamall. Ég var þá með helmagnaðar Davíð Oddson krullur sem faðir minn lét strauja af mér og lét næstum lífið af höndum móður minnar við það.
Það var nú svo að tveir bestu rakararnir þar og þar með talinn rakarinn minn, stofnuðu sína eigin stofu í Kópavogi. Þeim tókst svo líka að splitta í sundur og nú er rakarinn minn kominn upp á Akranes.
Ég hef verið að reyna að ákveða mig hvort það sé þess virði að fara upp á Akranes fyrir klippingu og er ég alltaf farinn að hallast að því að það sé rétta leiðin. Ansi dýrt prógram samt að borga klippingu, bensín og 2x göng. Líklega þess virði samt. Góð klipping er gulli betri.
Fann þess mynd á símanum, hef ekki hugmynd um hver tók hana.

Sjáið hvernig hárið liðast neðst. Það eru leifar af Davíð Oddson krullunum sem ég skartaði í barnæsku.
Fært undir Menning og listir, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | 8 ummæli »
Fært af tom þann 5. september 2007
Það er deginum ljósara að Jón Gnarr er krónprins gamanmála á Íslandi. Hann hefur svo sem sagt áður og ég skil hann ansi vel núna þegar hann segir að það sé stundum óþolandi.
Í viðtali hans í Kastljósinu í gær var hann bara mættur sem venjulegur maður að vernda sköpun sína fyrir jú ekki ómerkari manni en Guð. Eða allavega sendisveinum hans.
Ég verð samt að viðurkenna að ég beið og beið eftir því að hann mundi segja eitthvað fyndið. Mér er kannski fyrirgefið því hann kemur nú varla í viðtöl nema það tengist einhverju nýju fyndnu sem hann gerir en þarna bara leiddist mér hann og á endanum slökkti ég bara á honum.
Var samt athyglisvert að hann mætti í Kastljósið en Inga Lind þurfti að segja skömmustulega í Ísland í dag að hann hafi afþakkað. Er Þórhallur bara svona mikið skemmtilegri?
p.s Nýju þættir Tvíhöfða eru í fyndnara laginu og liður sem þeir bjóða upp á sem heitir ,,á grillinu” er fádæma snilld. Þáttur 3 af þessum magnaða lið er jafnframt eitt það fyndnasta og eitt það óhuggnalegasta sem ég hef heyrt.
http://http.ruv.straumar.is/static.ruv.is/stufar/tvihofdi/tvihofdi.2007-06-18.wma
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Menning og listir, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan | 2 ummæli »