Stuðningsmenn liðanna í Landsbankadeildinni brydda oft upp á helv… skemmtilegum lögum á hverju ári. Ég sá leiki með öllum liðum í ár, fleiri en einn, fleiri en tvo og… já bara frekar mjög marga. Þessa valdi ég besta hjá hverju liði fyrir sig.
Það er svona betra að hafa heyrt söngvanna til að átta sig á hvað ég er að tala um.
Valsmenn hafa nú ekki verið með öfluga stuðningsmenn í gegnum tíðina en þessir fjórir sem halda stemningunni á lofti komu með eitt ágætis lag undir lokin.
Koma Valur…stolt Reykjavíkjur…og við viiiinnum, vinnum þennan leik.
Koma Valur…stolt Reykjavíkur, við skorum mörkin og vinnum þennan leik.
FH Mafían er mjög dugleg að semja lög og eiga held ég lög um hvern einasta leikmann liðsins. Verst hvað þeir voru sárlega lélegir í ár á of mörgum leikjum. Þeirra besta lag er texti úr nýja FH laginu með strákunum úr botnleðju.
FH, öll við höldum með
FH, hjörtun slá fyrir
FH, hrópum hátt fyrir
F - H - F - H -F - F - H - H
Skagamenn fylgdu góðu gengi með jöfnu og góðum stuðningi. Sveit þeirra, Skagamörkin sömdu lag um fyrrverandi Íslandsmeistara FH í ár.
Það eru litlar stelpur í fimleikum
Það eru litlar stelpur í fimleikum
Dýnur og trampólín
Flikk, flakk og heljarstökk
Það eru litlar stelpur í fimleikum.
Nýstofnuð stuðningsmannasveit Fylkis, Kiddi Tomm, er líklega sú daufasta og leiðinlegasta á landinu. Það heyrist nánast aldrei neitt í þeim nema þegar andstæðingarnir brenna af færi. Þá syngja þeir sitt skársta en jafnframt ekkert spes lag.
,,Aldrei hætta, aldrei hætta, ole ole ole ole ole.”
Grænda Pandan hjá Blikum tóku heldur betur kipp í sumar og hefðu klárlega átt að fá stuðningsmannaverðlaunin í umferðum 7-12. Því miður gátu þeir það ekki því KSÍ hafði drullað upp á bak fyrr í sumar og ekki gefið KR verðlaunin fyrir umferðir 1-6 sem þeir áttu svo sannarlega skilið. Því neyddust þeir að gefa KR í umferðum 7-12 og létu Blika sitja eftir. Lag þeirra um framherjann Prince Rajkomar er algjört gull.
,Það skorar enginn mörkin eins og Prince..Polo.
Hjá Keflvíkingum eru Joey Drummer og Pumasveitin allsráðandi. Pumasveitin byrjaði feykivel en fór dalandi með lélegu gengi Keflavíkurliðsins. Í toppformi er Pumasveitin samt ásamt Mafíunni og Miðjunni þrjár bestu sveitirnir á landinu. Þegar þeir láta alla í stúkunni lyfta upp og hrista höndum og taka svo ef þú fílar keflavík er alveg frábært.
Ef þú fílar Keflavík þá gef mér klapp *klapp klapp*
Ef þú fílar Keflavík þá gef mér klapp *klapp klapp*
og ef þú fílar Keflavík og ert’í Keflavíkurflík
og ef þú fílar Keflavík þá gef mér klapp *klapp klapp*
Framarar því miður eiga ekki stuðningsmenn og það besta sem þeir bjóða upp á er Framarar…Framarar.
Þá er komið að kóngum sumarsins, Miðjunni hjá KR. Þeir tóku undirbúningstímabilið með trompi og hituðu sig rækilega upp í körfunni þar sem þeir nánast unnu titilinn fyrir KR þar. Þegar þeir mættu svo til leiks í Landsbankadeildinn snérist þeim enginn snúning. Lagið sem þeir íslenskuðu frá frændum okkar í FCK var klárlega lag sumarsins.
Viiiiiiiiið erum KR….Reykjavíkurstoltið…..sanna stórveldið oooo ohhhhh oooo ohhhh VIIIIIÐ ERUM KR….REYKJAVÍKURSTOLTIÐ….SANNA STÓRVELDIÐ!!
Binnamenn hjá HK gerðu nú ekki miklar gloríur í ár. Það var samt rándýrt þegar þeir, bæði gegn Breiðablik og KR sungu.
Stöndum upp fyrir stórveldi.
Falllið Víkings býður upp á eina bestu stuðningsmannasveit síðari ára, Berserki. Í gegnum tíðina hafa þeir samið haug af flottum lögum en það er eitt lag sem vekur alltaf jafn mikla hrifningu. Allir á vellinum, ungir og gamlir, Víkingar og stundum jafnvel mótherjar geta ekki staðist mátið að syngja lagið sem ómar þegar andstæðingurinn brennir af. Það er ekki flókið en svo sannarlega vinsælt.
Ekkert mark er nógu stórt *klapp klapp*
Ekkert mark er nógu stórt * klapp klapp*
Ekkert mark er nógu stórt *klapp klapp*
til að þessi fari inn!