tom

Gamli keeperinn

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


  • Heimsóknir

    Í dag: 9 Alls: 99723

  • Flettingar

    Í dag: 15 Alls: 201397

  • tom

    Hlíðargerði 3, Logi Bergmann. Hlíðargerði 4, tom. Stjörnufans í Bústaðahverfinu.


Færslur í flokknum 'Vinir og fjölskylda' Category


Kveðjugjöfin ekki ódýr

Fært af tom þann 14. desember 2007

Þegar það er rétt rúmur klukkutími eftir af rúmlega tveggja ára starfi mínu hér verður tilfinningin að fara heim í síðasta skiptið héðan æ skrýtnari.

Ég er búinn að mynda allt í bak og fyrir og mun bjóða upp á kveðjufærslur þegar jú, gamla sagan, ég læri á iSímann.

Kveðjugjöfin var hressandi frá yfirvaldinu. Miði á leik á Old Trafford. Get valið milli leikja Manchester United og Portsmouth, City, Bolton, Villa eða West Ham.

Auðvitað fylgdi vínandinn með og hann var ekki af ódýrari gerðinni. Tólf ára Chivas Regal, Premium Viskí. Get menningað yfir mig um jólin með því. Þakka Samstarfsfólki mínu kærlega fyrir þetta.

Fært undir Vinir og fjölskylda | 9 ummæli »

Tveggja daga fögnuður

Fært af tom þann 13. desember 2007

Tveggja daga stanslausum hátíðarhöldum samstarfsfólks míns vegna uppsagnar minnar í gær byrjaði í morgun með pomp og prakt.

Þegar ég mætti í morgun var á boðstólum tvö föt af ofnrétti, risastór brauðterta, pönnukökur, brúnar og ljósar randalínur og þrjár sortir af smákökum.

Í hádeginu var svo pantaður bakki frá Jóa Fel sem innihélt fjórar gerðir af brauði, rjómaosta, pestó, hvítan kastala og risastórar súkkulaðismákökur. Hvað verður svo í kvöld veit ég ekki. Líklega endur og Humar eða eitthvað.

Á morgun munu svo allir (ca 200) starfsmenn fyrirtækisins, fagna brottför minni með heitu súkkulaði og meðlæti í kaffitímanum á morgun.

Ef ég kynni betur á i-Símann minn myndi ég sýna ykkur myndir af þessum kræsingum en vegna tæknilegra vandamála gengur það ekki upp.

Fært undir Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »

Afmælisbarn dagsins grét

Fært af tom þann 24. nóvember 2007

Afmælisbarn dagsins er litla frænka mín, Ylfa Sigurðardóttir, en hún bauð til 3ja ára afmælisveislu sinnar að Leifsgötu í dag. Eina sem hún bað um var að afi hennar og amma myndu mæta og það yrði kaka. Hún fékk nú rúmlega það og bauð móðir hennar, systir mín, upp á dýnamískar veitingar að vanda.

Á þá litlu var skellt þessi skemmtilega bleika kóróna og sama þemað var á pappadiskunum og servíettunum, bleikt Barbie. Afmælisbarnið var stútfullt af spenningi þegar að því kom að blása á kertin á kökunni en söngur gestanna var henni ofviða.

Maður getur svo sem ekki ásakað þá stuttu því ekki var söngurinn fagur hjá gestunum. Hún var þó fljót að jafna sig enda kraftastelpa og átti hún indælis afmælisdag.

spenningur
Stutta alveg að farast úr spenningi. Stutt í  að kertin syngi sitt síðasta.

ekki syngja!
Hlátur breyttist í grátur þegar gestirnir fóru að syngja.

pakki fra tom
Hún var fljót að jafna sig þegar frændi tom spanderaði í pakka.

Ylfa 3ja ára, hversu dýnamísk er þessi kóróna!

Fært undir Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Tiesto

Fært af tom þann 9. nóvember 2007

untiss untiss

Hinn sérlega dýnamíski og einkar ungi (fæddur ‘69) plötusnúður DJ Tiesto leikur fyrir dansi á Breiðvangi í kvöld. Staðsetning gæti vart verið verri enda Breiðvangur yfirburða leiðinlegt hús og veigarnar þar svo dýrar að fólk þarf að fara í greiðslumat til þess að spandera í einn lítin öl.

Þar sem þetta er á vegum Techno.is má fastlega búast við aðeins of stressuðum gaurum á hlýrabolum og góðvinum þeirra, fíkniefnalögreglunni, á svæðinu en þeim leiðist nú ekkert að mæta á dansiböllin eða “reivin” eins og þeir kalla þau.

108 massive verður með hópferð frá Genda15 þar sem verður fyringur að hætti hússins. Að venju verða spiluð öll bestu lög frá upphafi alda enda tónlistin í 108 fyringum á borð við ekkert annað sem sést í heiminum.

Brot úr playlistanum:

Dave Guetta vs The Egg - Love is Gone

230 - 230

Alex Gaudino - Destination Calabria

Prodigy - bluefire mix

Og jú tvö bestu lög sem hafa verið gerð:

Ken och Ayo - Slang era skallar

MC Steinbítur - 100.000 kall!!!

Góða skemmtun.

Fært undir Menning og listir, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Rándýr eldamennska

Fært af tom þann 29. október 2007

Það er boðið upp á rándýra eldamennsku í vinnunni í dag. Líklega svona c.a. milljón kall.

Framkvæmdastjórinn par exelance, skellti sér út í búð, henti á sig svuntu og tók sig til við eldamennskuna. Nú bíður fyrirtækið eftir því að bragða á grænmetissúpunni hans sem er að eigin sögn hreint stórkostleg.

Ég skaust með k550i inn í eldhús að ná mynd af viðburðinum.

joi fel, spoi mel

Nýbakað brauð vinstra megin og á bakvið hann er leynið. Parmesan ostur sem á víst að fara ofan á súpuna.

Það eru klárlega ekki allir sem elda með headset.

Fært undir Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Liðskipan Eyjólfs á laugardaginn

Fært af tom þann 11. október 2007

Landliðið keppir við Letta á laugardaginn og eðlilega eru hafnar umræður um hvernig Eyjólfir eigi að stilla upp liði sínu. Allt ætti nú að ganga sinn vanagang en það er tvennt sem menn deila um.

Hermann Hreiðarsson er í banni og því þarf að leysa vinstri bakvarðarstöðuna með einhverjum ráðum og þá er víst skylda að Eiður Smári spili þannig einhver af þessari 3ja manna miðju, Brynjar Björn, Kári Árna eða Jói Kalli dettur út.

Jói var gagnrýndur fyrir sinn leik sem framsækinn miðjumaður með Brynjar og Kára fyrir aftan sig og ef við gefum okkur það að Eiður spili verður það líklega Kári Árna sem dettur út. Jói er samt frábær sem varnarsinnaður miðjumaður og mun því örugglega spila þar á laugardaginn. Kári hefur alltaf staðið sig með sóma með landsliðinu en frammistaða hans gegn Norður-Írum orsakaði miklum deilum hjá mörgum um getu hans. Það má því búast við að Jói Kalli verður færður niður með Brynjari Birni og Eiður taki stöðu hans undir Gunnari Heiðari.

Indriði Sigurðsson sem var á tímapunkti fyrsti kostur Eyjólfs sem vinstri bakvörður var valinn aftur en hann hefur verið að spila allt tímabilið með Lyn sem miðvörður. Staðan verður því að öllum líkindum leyst með Hjálmari Jónssyni sem hefur hingað til sýnt nákvæmlega ekki neitt þegar hann hefur spilað með landsliðinu.

Spurningin er hvort þessi leikur gegn Lettum sé ekki akkurat tækifærið fyrir Hjálmar að reyna að koma þessu orðspori af sér. Hann hefur svona hingað til fylgt með í fréttum af Ragnari Sigurðssyni hjá Gautaborg en ekki mikið meira en það. Valkostirnir eru ekki margir í stöðuna þannig hvort Indriði eða Hjálmar verða fyrir valinu er eiginlega eina spurningin. Hjálmar fær tækifærið á laugardaginn er ég viss um.

Þessu liði munu Eyjólfur og Bjarni stilla upp á laugardaginn.

                         Árni Gautur

Kristján Örn - Ívar - Raggi Sig - Hjálmar

                 Jói Kalli - Brynjar Björn

Grétar Rafn            Eiður                   Emil

                        Gunnar Heiðar

Það verður erfitt fyrir Eyjólf að halda Veigari áfram út úr liðinu en hann hefur verið sjóðheitur upp á síðkastið í Noregi og er náttúrulega bara frábær framherji. Eyjólfur talaði mikið um að halda 4-5-1 skipulaginu eftir leikina gegn Kanada og Spáni en breytti svo í 4-4-2 gegn Norður-Írum. Breyting sem heppnaðist vel og fín ákvörðun hjá þjálfaranum en meira að segja í þeirri uppstillingu er ekki pláss fyrir Veigar. Þá yrðu Brynjar og Jói á miðjunni með Eið og Gunnar Heiðar frammi.

Hversu lengi Veigar sættir sig við þetta er spurning en það er að sjálfsögðu alveg frábært fyrir land eins og okkur að eiga svona mann á bekknum. Metnaður hans er samt mikill sem sást þegar hann rauk heim eftir að hafa verið skipt út af í leik með Stabæk, hvort sem það sé kallað fýla eða metnaður verður að liggja á milli hluta en það er augljóst að maðurinn vill spila.

Glöggir menn tóku eftir því að þegar hann fékk ekki tækifærið gegn Norður-Írum voru fyrstu svipbrigði hans ekki kátína og réttilega enda leikmaður sem þrífst á því að spila fótbolta. Ég bara svo sannarlega vona að hann fari ekki að hætta að gefa kost á sér vegna þessa því það er mikilvægt fyrir liðið að eiga svona kost innan handar.

Það er ótrúlegt að tala um einn besta framherjann í Noregi sem einhvern varamann íslenska liðsins en að hafa þessa breidd fram á við er frábært og ég vona svo sannarlega að Veigar sjái það líka. Ég hef líka engar áhyggjur af því að hann gerir það ekki. Veigar er toppmaður og grípur sitt tækifæri þegar það gefst.

Svo gæti verið að Eyjófur komi öllum að óvörum á laugardaginn en þangað til verður þetta að standa.

Fært undir Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 5 ummæli »

gaman með á stóð

Fært af tom þann 29. september 2007

it was good while it lasted

Bless í bili…

Fært undir Vinir og fjölskylda | 6 ummæli »

Upprúllun tom og Elvars

Fært af tom þann 28. september 2007

Það er skemmst frá því að segja að ég og Elvis rúlluðum upp 2on2 PES móti Fótbolta.net í gær. Skipt var í þrjú lið, ég og Elvis, Höddi og Kelz og síðast en ekki síðst parið sem bað um að vera saman, Gunnar Jarl og Maggi.

Maggi hafði fyrr í vikunni verið með mér í liði gegn Hödda og Kelz og þrátt fyrir að við tókum best of 5 seríu í rassgatið, 3-0, fannst honum ég öskra of mikið á hann og því vildi hann vera með Gunnari í liði. Ákvörðun sem hann átti eftir að sjá eftir.

Við Elvis rústuðum þessu svo mikið að ég man ekki einu sinni tölurnar

Gunnar Jarl fór á kostum. Ekki bara öskraði hann á Magga stanslaust í klukkutíma nánast heldur gjörsamlega trylltist hann þegar ég skipti um mann til að taka aukaspyrnur.

Til að gefa ykkur dæmi um hversu “rólegur” Gussi getur verið býð ég hér upp á video í lélegum gæðum frá mótinu í gær. Því miður náði ég bara á video þegar hann var sem rólegastur:

Fært undir Heilbrigði, Menning og listir, Tækni og vísindi, Vinir og fjölskylda | 7 ummæli »

,,Bara ekki að hlusta”

Fært af tom þann 27. september 2007

Það er ekki furða að ungviðið á Íslandi sé alltaf að verða heimskara (segir 23 ára reynsluboltinn, ég)

Msn samtal.

[08:31]  tom: tókstu þér bara frí í skólanum í dag?

[08:31] Höddi: nei er í skóla

[08:31] Höddi: bara ekki að hlusta

[08:31] Höddi: er í striker of the month(tölvuleikur) að æfa mig að klára færin

[08:31]  tom: haha

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Nám, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Ekki gott að toppa of ungur.

Fært af tom þann 24. september 2007

Víkingar eru komnir í heldur betur vond mál eftir tapið á Skaganum í gær. Enn virðist þeim fyrirmunað að setja boltann í net andstæðinganna en klikka ekkert á því að fá á sig eins og eitt sjálfir. Ekkert minna en stig á heimavelli gegn særðum Íslandsmeisturum dugar fyrir liðið að halda sér uppi. Ferðir á næsta ári til Eyja, Eskifjarðar, tvisvar til Akureyrar, Ólafsvíkur og Garðabæ eru yfirvofandi en ekkert búið fyrr en það er búið.

Það hefði nú verið allt annað upp á teningnum hjá Víkingum í sumar hefðu þeir sýnt svona flotta takta:

Þessi snjalli piltur er enn að í dag og sýnir enn þessa frábæru takta. Youtube frægðin steig honum þó til höfuðs og náðist þessi Paparazzi mynd af pilti á k550i fyrr í sumar.

erfitt að vera frægur

Það er þó kannski alveg honum að kenna þegar liðsfélagar hans sýna þetta fordæmi:

gott að pissa � sólinni

Fært undir Heilbrigði, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 1 ummæli »

Knútur Birgir Ottersted fyrsti Haugsbikarmeistarinn (local)

Fært af tom þann 23. september 2007

Fyrsta Haugsbikarmótið í Pro Evolution Soccer var haldið í gærkveld í mekka PES menningarinnar á Íslandi, Breiðholti, nánar til tekið í Vesturberginu.

Breiðholtið státar líklega af bestu PES spilurum Íslands en því miður komust tveir þeir bestu ekki. Magnús Már Þorvarðarson, fyrrverandi leikmaður Leiknis og Gunnar Hilmar Kristjánsson, leikmaður ÍR. Það voru þó sjö færir spilarar sem tóku þátt, fimm Breiðhyltingar, einn Akureyringur og tom hélt uppi merkjum smáíbúðarhverfisins.

Ég get verið allt annað en sáttur við mína frammistöðu því eftir öruggan sigur á Andra Þór Ingvarssyni, silfurverðlaunahafa mótsins, í fyrstu umferð og jafntefli gegn Ragnari Þór Ásgeirssyni í annari fór að síga á ógæfuhliðina. Ég tapaði fyrir Hólmari Sigmundssyni í þriðju umferð og var það eini sigurleikur Hólmars á mótinu. Eftir það þurfti ég að gefa frá mér leik vegna magakveisu gegn Vigfúsi Arnari Jósefssyni, miðjumanni og vítaskyttu Leiknis. Þegar tvær umferðir voru eftir átti ég samt möguleika á sigri í mótinu en var rassskelltur af Knúti Birgi Ottersted með tölum sem ég gef ekki upp.

Það var því um að gera að klára mótið sem sæmd sem ég og gerði með 2-1 sigri á gestgjafanum, Skarphéðni Grétarssyni, í lokaumferðinni. Mikil spenna var fram í lokaumferðina og áttu bæði Knútur og Andri möguleika á sigri. Knútur lék gegn Hólmari og dugði sigur til að vinna mótið á meðan Andri lék gegn Fúsa en tveir vellir voru í gangi í einu. Það er skemmst frá því að segja að Knútur lagði Hólmar 2-0 og sigraði því mótið á meðan Vigfús kom sér upp í 3-4. sætið með jafntefli gegn Andra.

Sigur Knúts verður að teljast góður því tekið var upp á því að dæla í hann Kronenborg bjór sem hann drakk í lítratali og var orðinn ansi valtur undir restina. Hann var vel að sigrinum kominn og hampaði fyrsta Haugsbikarnum. Mótið var vel heppnað í alla staði og er vonandi að stjörnurnar láti sjá sig á næsta móti.

1. Knútur Birgir Ottersted 13 stig

2. Andri Þór Ingvarsson 10 stig

3-4. Ragnar Þór Ásgeirsson og Vigfús Arnar Jósefsson 9 stig

5. tom 7 stig

6. Skarphéðinn Grétarsson 5 stig

7. Hólmar Sigmundsson 4 stig

Verð að afaka arfaslaka mynd, ég reyndi þrisvar en K550i var að klika illilega. Í sigurlaun fékk Knútur enn einn Kronenborg sem hann gat ekki beðið með að opna. Aðrir fengu Toblerone mola.

Verðlaunahafarnir.

Frá vinstri til hægri: Vigfús Arnar, Ragnar, Sigurvegarinn Knútur Birgir, Andri Þór.

Fært undir Menning og listir, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Vinir og fjölskylda | 5 ummæli »

Jeppafólkinu leiðist ekki ríkið.

Fært af tom þann 21. september 2007

Ljósmyndarinn par exelance, ég, var að sjálfsögðu með Sony Ericson k550i á lofti í gær. Fyrir utan Heiðrúnú, næstu bestu vínbúð landsins, komst ég að því að fólk á jeppum og jepplingum leiðist ekki vínandinn. Það voru nú ekki margir mættir að versla sér sopann en næstum hver einasti var á þessum týpum bíla. Hvort það segi eitthvað um fólk sem á svona bíla eða almenna eign Íslendinga á jeppum og litlu bræðrum þeirra veit ég ekki.

de var brennevin àflasken svo sannarlega

10 bílar af 12, jeppar eða jepplingar. ´

Það er líka alltaf hressandi þegar bílar með æfingaakstur mæta í ríkið. Úr þessum bíl steig maður sem skokkaði í ríkið á meðan unglingurinn með æfingaraksturinn sat úti í bíl.

bädu hérna meðan pabbi nær àkarlakók

Kompás tom býður góða helgi.

Fært undir Ferðalög, Matur og drykkur, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »

Farðu í klippingu!

Fært af tom þann 14. september 2007

Nú er sá tími kominn að fólk er farið að benda mér á að fara í klippingu. Það byrjaði í gær þegar gamli sagði að rakarinn biði eftir mér og svo bættust tveir við í hópinn í dag.

Ég skal viðurkenna það að makkinn er orðinn fullmikill og mjög erfitt er orðið að díla við hann. Oft hefur það verið leti og metnaðarleysi sem orsakar að ég læt hárið vaxa of mikið en núna hef ég góða og gilda ástæðu. Rakarinn minn er fluttur á Akranes.

Alveg þangað til í ár hafði ég sótt sömu rakarastofuna, Hársnyrtistofu Dóra á Langholtsvegi, eða allt frá því ég var fjögurra ára gamall. Ég var þá með helmagnaðar Davíð Oddson krullur sem faðir minn lét strauja af mér og lét næstum lífið af höndum móður minnar við það.

Það var nú svo að tveir bestu rakararnir þar og þar með talinn rakarinn minn, stofnuðu sína eigin stofu í Kópavogi. Þeim tókst svo líka að splitta í sundur og nú er rakarinn minn kominn upp á Akranes.

Ég hef verið að reyna að ákveða mig hvort það sé þess virði að fara upp á Akranes fyrir klippingu og er ég alltaf farinn að hallast að því að það sé rétta leiðin. Ansi dýrt prógram samt að borga klippingu, bensín og 2x göng. Líklega þess virði samt. Góð klipping er gulli betri.

Fann þess mynd á símanum, hef ekki hugmynd um hver tók hana.

svolôið mikið

Sjáið hvernig hárið liðast neðst. Það eru leifar af Davíð Oddson krullunum sem ég skartaði í barnæsku.

Fært undir Menning og listir, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | 8 ummæli »

Amma með lausnina fyrir Eyjólf.

Fært af tom þann 11. september 2007

Amma mín, 92 ára gömul var í kaffi um helgina. Hún er mikill íþróttaáhugamaður og er alveg með lausnina fyrir Eyjólf og landsliðið. Henni finnst vanta að bakverðirnir eða Full backararnir eins og hún svo atvinnumannslega orðaði það þyrftu að koma meira upp. Hún er ekki sátt með þennan mikla varnarleik og vill sjá bakverðina taka mun meiri þátt í sóknarleiknum.

Maður leiksins að hennar mati á Laugardaginn var samt annar kantmaður Spánverja. Hún var agndofa yfir hvernig svona gamall maður gæti verið í landsliði í fótbolta. Eftir smá stund fattaði ég það að hún var að tala um Luis Aragones, þjálfara Spánar sem er kominn vel yfir sjötugt en hann stóð alltaf við hlíðarlínuna.

Amma hefur samt mest dálæti á handbolta og fylgist hún vel með ÍBV í kvennaboltanum eða Vestmannaeyjum eins og það heitir hjá henni. Það er óborganlega fyndið að heyra hana bölva Öllu Georgísdóttur í sand og ösku. Alla var máttarstólpi ÍBV liðsins þegar stjarna þeirra skein sem bjartast og amma hefur ALDREI fyrirgefið henni fyrir að SVÍKJA hina fallegu heimaey. Þar eru stóru orðin ekki spöruð, Alla SVEIK Vestmannaeyjar.

Það er svolítið útlendingaþema í aðdáun hennar en Alexander Petterson eða Pétursson í hennar huga er hennar uppáhalds leikmaður íslenska karlalandsliðsins. Ástæðan er einföld. Hann hendir boltanum alltaf í markið, annað en hinir.

Fært undir Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 2 ummæli »

Kári heitur?

Fært af tom þann 10. september 2007

Landsliðið æfði í dag fyrir leikinn gegn Norður-Írum á miðvikudagskvöldið. Hvernig sem fer með deilur KSÍ og íþróttafréttamanna þá verða nú strákarnir að hreyfa sig. Reyndar er nú varla hægt að kalla það deilur þegar annar aðilinn hefur engan áhuga á að ræða við hinn.

Meistari Hafliði Breiðfjörð var með myndavélina á lofti og náði líka þessari hressandi mynd af Víkingnum, Kára Árnasyni.

Spurt er: Er Kári svo heitur að það rýkur úr honum eða er þetta vel misheppnuð hráka?

kariarna

Á hvað er Eiður svo að horfa?

Fært undir Fjölmiðlar, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »

Við eigum þýskan handbolta, og þú vilt battla?

Fært af tom þann 9. september 2007

Það er stórkostlegt að horfa á tvö af fjórum bestu handboltaliðum í Þýskalandi etja kappi og enn betra að sjá þar sex Íslendinga.

Gummersbach voru að tapa fyrir Flensburg á heimavelli sem er slæmt fyrir Alfreð og félaga en þeir hafa ekki farið nógu vel af stað.

Maður fylltist samt bara guðdómlegri yfirvegun á tímabilum þegar að maður sá Íslendingana í leiknum. Þegar ég kom til leiks voru Gummersbach að tapa með átta mörkum en þá sagði Guðjón Valur Sigurðsson bara á ég að sjá um þetta strákar og gerði svo. Hann tók leikinn í sínar hendur, varnarlega og sóknarlega. Hann skoraði tvö mörk úr horninu og færði sig svo inn á miðjuna og stjórnaði spilinu. Í vörninni var hann í kunnulegri stöðu, fremstur í 5-1 vörn að trufla andstæðinginn. Hann hreif allt liðið með sér og nokkrum mínútum síðar var liðið komið aftur inn í leikinn.

Róbert Gunnarsson var að vanda flottur líka, reyndar með full mikið hár núna og enga stælklippingu. Alfreð svo alltaf flottur á línunni. Fyrir utan að vera með þetta attitude “þú veist að ég get gert og hef gert betur en þú” sem er mjög svo töff þá var það náttúrulega hans hugmynd að setja Guðjón meira inn í leikinn.

Þeir komust alveg að Flensburg, jöfnuðu og áttu möguleika að komast yfir en orkan sem fór í það að vinna upp forskotið var of mikil og þeir höfðu ekki kraftinn undir lokin, því miður.

Í liði Flensburg sem er stórlið í heimshandboltanum eru líka tveir Íslendingar eins og allir vita, Alexander Petterson og Einar Hólmgeirsson. Ég sá lítið til Einars en Petterson var flottur. Flensburg þjálfarinn veit greinilega að Petterson er maðurinn sem reddar þér út úr vandræðum. Eitt gott dæmi var þegar þeir voru einum færri og Gummersbach að nálgast. Þá var skipunin að láta hann fá boltann og redda þessu sem og hann gerði. Víti og tvær mínútur á leikmann Gummersbach niðurstaðan.

Samt á löngum köflum þegar EKKERT gekk hjá Flensburg, þeir klúðruðu sókn eftir sókn og Gummersbach voru að nálgast þá. Á þeim tímapunkti lét þjálfari Flensburg þá Einar og Lexa sitja á bekknum bara í rólegheitum, mjög skrýtin ákvörðun. Sérstaklega því þegar Alex kom inn á næst þegar Flensburg voru aftur einum færri tók hann sig til og skoraði með hægri fyrir utan punktalínu en markið reyndar dæmt af sem var bull.

Flensburg vann en Íslendingarnir voru sigurvegarar dagsins.

Gaupi og Atli Hilmars lýstu leiknum af sinni alkunnu snilld en fróðari menn um boltann er vart að finna. Gaupi klikkaði ekki á að koma með dýnamíska línu sem ég ætla að ljúka þessu með. Þar minntist hann örlítið á hæð Ljubomil Vranjes, stubbnum frá Svíþjóð.

,,Vranjes er bara 1.66. Hann rétt nær yfir meterinn, það verður bara að segjast alveg eins og er.”

Fært undir Alþjóðamál, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | Engin ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning