fara í valmynd

Ný leið brátt á leið …

Fært af gylforce undir Óflokkað. 2 ummæli


Von bráðar mun milljarður sem ríkisvaldið skuldbatt sig til að setja í almenningssamgöngur ár hvert fara að hafa áhrif fyrir oss vagnverja. Hörmungarskerðingar sem leiðakerfið varð fyrir 2009 & svá aptur 2011 munu að mestu ganga til baka aukinheldur sem ný leið mun lita veganna ljós.

Í sumar eða í haust mun ný leið aka frá Firði í gegnum Kauptún & alla leið að Mjódd þeirra Breiðhyltinga.  Leið þessi er góð viðbót við leiðakerfið & er ekki alveg ný af nálinni. Eitthvað rámar nú doksa kallinn í leið 142 sálugu sem skrölti svipaða leið en var blásin of snemma af.

Fyrir oss Kópvæginga skiptir gríðarlega miklu máli að fá leið 36 á nýjan leik. Það er í hæsta máta skrýtið að leið 35 aki alltaf í sömu átt & er ósanngjarnt fyrir vagnverja í gamla vesturbænum.

Aukinheldur vantar enn leið sem ekur frá Hamraborg, fram hjá Smáralind & Smáratorgi, upp að Salalaug & svo áfram í gegnum Kóra- & Þingahverfi áleiðis að Mjóddinni. Það verða að vera til fleiri leiðir sem aka nánast eingöngu stofnbrautir & fara lítið inn í hverfin til þess að flýta fyrir för okkar vagnverja. Leið 28 er alltof alltof lengi á leiðinni & verður að koma til önnur leið til móts við hana.

Þá er mikilvægt að leið 1 aki á 15 mínútna fresti á laugardags- & sunnudagseftirmiðdögum en vagninn er núna nánast alltaf kjaftfullur. Það er vart tilhlökkunarefni þegar reiðfákarnir bætast við í sumar.

Vagn, von & upprisa …

Fært af gylforce undir Óflokkað. rita ummæli

Hinn skírþórslegi & skírlífi dr. Gylforce skemmti sér konunglega yfir málsháttum í eggjum sínum hvar hann fékk urmul þeirra yfir hátíðarnar.

& merkilegt nokk báru þeir allir að sama bus-i - eða því sem næst.

Lítum á nokkra sem komu upp úr eggjum doksa kallsins:

Sjaldan fellur klinkið langt frá dallinum
Opt ekur lítill vagn stórum vagnverjum
Volvo-inn er vagna bestur
Aldrei er góðum liðvagni ofaukið
Betri er einn vagn á leið en tveir af leið
Skröltir hæst í tómum vagni - þó ekki sænskættuðum

Já - þar hafiði það vagnverjar!

Fljótandi reinar …???

Fært af gylforce undir Óflokkað. rita ummæli

http://visir.is/segja-gamaldags-ad-breikka-miklubraut/article/2012703289893

Hvað segja vagnverjar? Vilja þeir fljótandi reinar eins og hverfaráð Hlíða leggur til. Er ekki hætt við að þær verði of blautar???

Hvað gengur fólki til …???

Fært af gylforce undir Óflokkað. rita ummæli

http://mbl.is/frettir/innlent/2012/03/26/brotist_inn_i_thrja_bila/

Hvað gengur fólki eiginlega til að grýta vagnana - vini vora???

Þetta minnir dr.-inn á Hrólf hellu sem henti hellubroti (10×20 sm) í húddið á bílnum hans fyrir mörgum mörgum árum á Sæbrautinni.

Aldrei fékkst það bætt enda Hrólfur slyppur & snauður útigangsmaður í henni Reykjavík.

Hinn guli meðalvegur …

Fært af gylforce undir Óflokkað. rita ummæli

Hinn reiginlegi & rembingslegi dr. Gylforce reikaði hálfrotaður í vagninn í morgun. Vinalegi vagnstjórinn bauð góðan dag á leið 35 er hann rann í hlað við Stútulautina um kl. 6:41.  Doksi kallinn var annar vagnverjinn í þessari fyrstu ferð með hinum stutta MAN vagni þeirra Kynnisferða.  Gott var að mjaka sér aptast í vagninn & sitja við hlið vélarinnar & góna út um gluggann.

Dag er farið að lengja & fylgdist dr.-inn með gjörhygli þegar birtan læddist yfir Voginn.

Frá Hamraborg okkar Kópvæginga hóf hinn sænskættaði 303 vagn upp raust sína. Leið 28 er fámenn frá kl. 7:07-7:33 en notalegt var að lygna aptur augum & ná eins & einni kríu meðan vagninn hossaðist um hraðahindranir bæjarins.

Svá mun dr.-inn rata hinn gula meðalveg á nýja leik eptir hádegið.

… & meira laust …

Fært af gylforce undir Óflokkað. rita ummæli

Heyrðu vinur, vagninn minn
vinur snjalli kæri
Ert´að aka hringinn þinn
eins & ekkert væri?

Lausavísur vagnverjans …

Fært af gylforce undir Óflokkað. rita ummæli

Vagnar liggja til allra átta
ægifagrir að sjá.
Doktorinn bæði dags & nátta
dvelur títt þeim hjá.

Vagnarnir með bros á brá
bæta mannlífsflóru.
Alltaf þrái ég ilminn frá
ykkar pústum stóru.

Sá guli sparar okkur spöl
sprækur kemur að gagni.
Sit í honum ef indælt öl
ég innbyrði í magni.

Í vögnum kraumar kraptur
kraptbirting tær.
Doktor þeim enn & aptur
ásjónu sína ljær.

Svá var dr. Gylforce einhverju sinni í París á sama tíma og Benedictus PP. XVI páfi.

Páfa fagnað í París
predikandi um frið.
Doktorinn í paradís
með Drottin sér við hlið.

Benedikt - sextándi
bað um sáttargerð.
Doktorinn - sá fyrsti
dreif sig í vagnaferð.

Amen.

Teknir til kostanna …

Fært af gylforce undir Óflokkað. rita ummæli

Hinn vafalausi & vagngóði dr. Gylforce var loksins á ferðinni í gær hvar hann tók hina nýju/notuðu rauðgulu Volvovagna sem Strætó bs. hefir nýlega fest kaup á.

Allir fjórir vagnarnir sem keyptir voru að þessu sinni aka leið leiðanna, leið 1, & eru á A-D vacht. Doksi kallinn gerði (of) stuttan stans í 189,190 & 191 vögnunum. Það var ekki annað að sjá en að þeir séu allir mjög áþekkir með fögru  bláu áklæði en skrítið er þó að hafa þá rauðgula á litinn. Þá eru fremsti fjögur sætin skemmtileg þar sem maður situr á móti öðrum fögrum vagnverjum.

Dr.-inn endasentist með vögnunum frá Hamraborg okkar Kópvæginga að Firði & svá aftur frá Voginum að miðbæ þeirra Reykvíkinga.

Vonandi verður framhald á ferðum doksa með þeim rauðgulu.

Hvert þó í skíðlogandi … ???

Fært af gylforce undir Óflokkað. rita ummæli

Skíðlogandi vagn

Öskur-dagur …

Fært af gylforce undir Óflokkað. rita ummæli

Hinn öskugi & óhreini dr. Gylforce óð í unaðstvennd í gær hvar hann tók venju samkvæmt fyrstu ferð hjá leið 35 hér í Voginum.  Óvenjumörg ný andlit voru í vagninum sem gladdi dr.´s hró enda er vagnverjum að fjölga statt & stöðugt.

Hinn stutti en þó varmi MAN 305 vagn kom aðvífandi að laut doksa stundvíslega kl. 6:41.  Þegar upp var staðið - úr vagninum - höpðu um 15 innstig átt sér stað inn í vagninn.

Við Hamraborg okkar Kópvæginga var ekkert annað að gera en að skunda yfir í leið 28 & bauðst 301 vagninn til fararinnar.

Svá tók doksi kallinn þrenndina heim - leið 28/4/35. Allt þekkt þar - ójá!

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning