fara í valmynd

Ég á minn íslenska Fan Club 11. maí 2008

Fært af yrr undir Menning og listir, Tónlist, Óflokkað. 7 ummæli

Per Svensson myndlista-, hljóðlista- og tónlistamaður er með stóra einkasýningu á safninu hjá okkur núna. En öll hanns list hefur sinn uppruna í ferð til Íslands fyrir rúmlega tuttugu árum síðan.

Á opnunni um síðustu helgi bauð Per tónlistavinum sínum að halda tónleika í sýningunni. Hér er um að ræða eina aðal tónlistamenn landsins, meðal annars Mats Gustafsson, saxofonleikara, Ebbot Lundberg frá Soundtrack of our lifes, Johnny Essing frá Bob Hund. Per vildi endilega að ég væri með og að ég læsi eitthvað gamalt íslenskt. Ég valdi Hávamál. Ég var nú pínu stressuð að koma fram með þessum ágætu tónlistamönnum og þar að auki fyrir fullan sal af fólki!

En mér var sagt “þú þarft ekkert að vera stressuð það skilur hvort eð er eingin hvað þú ert að lesa”

Halló!!! segi ég nú bara! Eins og ég sé ekki með minn eigin fan club! Á meðal áhorfenda var mamma með allan saumklúbbinn sinn frá Íslandi, Eir systir mín og frænkur mínar sem búa í Kaupmannahöfn.

Það er nú eiginlega frekar spurning um hvort einhver skildi það sem Thomas var að lesa á sænsku.

imgp7265.jpg
Henrik Rylander, Thomas Millroth, Maja Svensson og ég (sjá má í Per Svensson bakvið mig)

imgp7271.jpg
Ebbot Lundberg og Johhny Essing

Nú eru Hávamál kveðin
Háva höllu í,
allþörf ýta sonum,
óþörf jötna sonum.
Heill sá er kvað!
Heill sá er kann!
Njóti sá er nam!
Heilir þeir er hlýddu!

Hoppandi flugvél á lágflugi 16. apríl 2008

Fært af yrr undir Ferðalög. 3 ummæli

Fyrir alla sem hafa haft áhyggjur, get ég núna tilkynnt að ég er komin heim frá Líbanon och er heil á húfi. Ferðin gekk mjög vel og ekki fann ég beint fyrir hættu, nema á heimleiðinni.

Ég millilennti í París, skipti um flugvél og sofnaði. Nokkru seinna var ég vakin af flugfreyju með smá paník í augnráði skipaði mér að fella upp stólsbakið. Flugvélin hoppaði og ég leit út um gluggan og sá að við flugum mjög lágt. Ekkert var sagt, en ég hafði ekki hugmynd um hvar við vorum, eða hvað var að gerast. Stelpan við hlið mér hélt að vid værum komin til Danmerkur, en ég gat nú tilkennt henni að svo var ekki, því eingin sjór var sjáanlegur. Eftir þónokkurn tíma á lágflugi í hoppandi vél lenntum við. Loksins var eitthvað sagt “það er smá tæknivesen, en við komum því í lag”. Eingin í kringum mig hafði hugmynd um hvar við vorum stödd. Það endaði með að ég braut “sitja kyrr með sætisbelltin spennt” regluna og fór og spurði fugfreyjuna, við vorum aftur komin í Parísar.

Það er ekki alltaf betra að vera hérna megin á hnettinum.

Föst í liftu í Beirut 14. apríl 2008

Fært af yrr undir Óflokkað. 3 ummæli

I gær ákváðum við að fara á listasýningu i einu aðal galliríinu fyrir nútímalist. Við biðum í klukkutíma eftir leigubílunum, því þeir fundu ekki húsið (sem búið er að standa á sama stað í um það bil 150 ár). Svo festumst við í hinni brjáluðu traffík bæjanrins þannig bílferðin sem átti að vera stutt tók sinn tíma.

Svo festumst við í liftunni á leiðinni uppá fjórðu hæð þar sem galleríið var, í húsi sem var ansi niðurgengið. Ég hafði á tilfinnunni að liftan héngi á einum þunnum tannþræði og hef sjaldan verið eins hrædd á æfinni. Rafmagnið fór, það var brunalikt og myrkur.En eftir korter komumst við loksins út! Sem betur fer var opnun á galleíinu og boðið var uppá vín.
galleriet-web.jpg

Svo fórum við á danssýnigu með belgiskum dansara sem heimsótti borgina. Danssýningin var hreint ut sagt öööömurleg og þegar darsarinn fór að syngja “we shall overcome” var okkur nóg boðið og fórum.

Kvöldið endaði í garðinum mep pizzu og bjór.

Af einhverjum ástæðum var þetta mjög skemmtilegur dagur!

Logn á undan stormi? 12. apríl 2008

Fært af yrr undir Óflokkað. rita ummæli

Hér í Beirút er logn eins og er, en það er eins og það sé verið að bíða eftir stormi. Fullt var af fólki á tónleikunum ígær og stemningin góð. Mér var sagt að allir eru til í að fara út og gera hluti því eingin veit hversu lengi það er hægt. Vinir mínir eru ánægðir með tónlistahátíðina sem þeir voru að setja saman og þegar talað er um næstu hátið sem halda á næsta ár er alltaf sagt i sömu setningu “ef aðstæður leifa, ef landinu okkar verður ekki rústað fyrir þann tíma…”

tónleikar 11. apríl 2008

Fært af yrr undir Óflokkað. rita ummæli

Í gærkvöldi byrjaði tónleikahátiðin Iritijal. Í lítill kyrkju og fullum sal voru haldnir fjórir tónleikar í gærkvöldi.
jassem-o-basil-web.jpg
Kelvin Zero

Matarorgia 10. apríl 2008

Fært af yrr undir Óflokkað. 2 ummæli

Jæja, þá er ég komin til Beirut. Fór með vinum mínum út að borða í gærkvöldi og hef sjaldan lennt í annari eins matarorgíu.

Staðurinn sem við fórum á heitir af einhverjum orsökum Casino. Rosalega stór staður þar sem allir borðuðu og reyktu. Við vorum varla sest áður en tugi þjóna byjuðu að bera fram álíka marga rétti af ymsu tagi og allt hverju betra. Ég borðaði og borðaði þangað til að ég ar að springa og það var ekki fyrr en að ég var komin á það stig sem ég fékk að vita að þetta var bara forrétturinn!
img_0038web.jpg

Skipt var um diska og álíka margir réttir voru bornir fram. Ég hamaðist við að troða í mig aðeins meiru og þegar því var loknu, stóðu allir upp. Ég hélt að við værum að fara, en við ætluðum vísst bara að skipta um borð. En nýja borðið okkar var fullt af Sætum sítrónum, eldrauðum dýrindis jarðaber og ávekstum sem ég vissi ekki væru til.

Idag er ég að drepast úr matarþynku ef eitthvað svoleiðiðs er til.

Tilbúin í ferðalagið 9. apríl 2008

Fært af yrr undir Óflokkað. 2 ummæli

Myndavélin er hlöðuð, I-podinn er hlaðaður, talvan er hlöðuð og síminn er hlaðaður. Þá er bara að pakka þessu öllu niður og stinga með passanum.

Peningaskúr 2. apríl 2008

Fært af yrr undir Efnahagur, Óflokkað. 7 ummæli

Í dag var hringt í mig og mér tjáð að 22 maí ætti að gefa mér 10 þúsund sænskar krónur!

Ég sem alltaf hef þurft að hamast fyrir hverri einustu krónu sem komið hefur inn á reikninginn minn. Í listabransanum er ekki eins og það rigni yfir mann peningunum.

En nú kom alveg óvæntur skúr!

“Við höfum ákveðið að gefa þér styrk því þú ert svo dugleg að fremja myndlistina”

Ég er svo dugleg að fremja myndlistina!!! weeeheee!!

Skólaus á Íslandi? 28. mars 2008

Fært af yrr undir Óflokkað. 2 ummæli

Mikið er ég fegin að búa ekki á Íslandi þegar ég les þessa frétt hér.

Skór hafa hækkað um 6,3% Eina ástæðan fyrir því að búa á Íslandi er skóbúðin Kron á Laugaveginum en nú býst ég varla við að hafa efni á að skoða í gluggann.

Bara svona venjuleg vika 27. mars 2008

Fært af yrr undir Óflokkað. 2 ummæli

Mánudagur: Bíkram Yoga. Annars er hætta á að maður verði feitur og stirður.

Þriðjudagur: Bókaútgáfupartý; skáldið Ida Börjel gefur út sína þriðju bók. Hún skrifar frábær ljóð og les þau skemmtilega og þekkir fullt af áhugaverðu fólki. Ómissanlegt.

Miðvikudagur: David Bowie tribute á Debaser; fullt af góðum tónlistamönnum flytja lög eftir herra Bowie. Ómissanlegt.

Fimmtudagur: Jazztónleikar á Jeriko. Hinn frábæri saxofonisti Fredrik Ljungkvist kemur. Ómissanlegt.

Föstudagur: Opnun á galleri Elastic með listamanninum Anders Sletvod Moe. Ómissanlegt

Laugardagur: Leif Holmstrand sem er einn besti listamaður landsins er með performance i Lilith Performance studio. ÓMISSANLEGT

Sunnudagur: Var ekki einhver sem ákvað fyrir langa löngu að það væri hvíldardagur? Eða er það þá sem ég á að fara í bíó og sja No country for old men?

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning